Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 58

Náttúrufræðingurinn - 1975, Page 58
48 N Á T T ÚRUFRÆÐINGURINN (Papaver radicaturn) eru víða, jöklaklukka (Cardamine bellidifolia) er nokkuð algeng og sums staðar vaxa mosalyng (Harrimanella hypnoides), fjallasmári (Sibbaldia procumbens) og skollafingur (Huperzia selago) nokkuð hátt uppi, einnig grasvíðir (Salix herba,- cea) og grávíðir (Salix callicarpaea). í fjöllunum milli Furufjarðar og Hrafnsfjarðar hef ég Furufjarðarmegin aðeins fundið um 30 tegundir háplantna ofan 500 m hæðar, en annars staðar enn færri, svo tegundafjöldinn er ekki mikilk í neðanverðum hlíðunum er hér oft erfitt, eins og annars staðar á Norðvesturlandi, að draga skörp mörk milii gxóðurlenda. Snjóa- lög eru mikil eins og áður var sagt og mörk milli eiginlegra snjó- dælda og jurtastóða verða af þeim orsökum óglögg. Leysingavatn í hlíðum verður oft mikið og áhrifa þess á gróðurinn gætir meiri hluta vaxtartímabilsins, með þeim afleiðingum að mörk jurtastóða og mýra geta líka orðið óglögg. Sömu sögu er ennfremur að segja um jurtastóð og lynggróður, eða mólendi, þar eru mörkin ekki alltaf skörp heldur. Melar eru ekki eins víða hér um neðanverðar hlíðar og við mætti búast, fremur en annars staðar á Norðvesturlandi (sbr. Stein- dór Steindórsson, 1946), snjórinn og ef tii vill friðunin undanfarin ár sjá um það. Fjallategundirnar, sem áður voru taldar, ná einnig niður á þessa mela, jafnvel niður undir sjó. Mjög mikið vex líka af ljónslappa (Alchemilla alpina) á þeirn stöðum þar sem fannirnar eru þynnstar á veturna og meira en í flestum öðrum landshlutum. Ljónslappi nær jafnframt niður í snjódældirnar, sem eru hér mjög algengar og að mestu vaxnar sömu tegundum og annars staðar á landinu, nefnilega grámullu (Gnaphalium supinum), fjallasmára, grasvíði, fjalladeplu (Veronica alpina) og fjalladúnurt (Epilobium anagallidifolium), en oft er allmikið um skollafingur og stunduin litunarjafna í snjódældunum. Sérstæðar eru burkna- dældirnar eða burknastóðin, en þau eru einkennandi fyrir Norð- vesturland og útskaga norðanlands; slíkar dældir eru oft barma- fullar af samfelldum burknagróðri, sem iðulega nær ]/> m hæð eða jafnvel meira. Nærri undantekningarlaust er það þúsundblaðarós, sem myndar þessi burknastóð í hlíðum á Hornströndum og í Jökul- fjörðum, en niðri á láglendi kemur fjöllaufungur þó hér og þar í stað hennar. Aðrar plöntur eru hér lítt áberandi, samanborið við burknana, en stundum vex nokkuð af skollafingri innan um þús-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.