Náttúrufræðingurinn - 1975, Síða 107
NÁTTÚRU FRÆÐIN GURINN
97
Arnþór GarSarsson:
Skýrsla um Hið ísl. náttúrufræðifélag 1974
Félagsmenn
Félagaial Hins íslenska náttúrufræðifélags var endurskoðað í árslok 1974.
Tala skráðra félaga reyndist vera sem liér segir: Heiðursfélagar 2, kjörfélagar 2,
ævifélagar 62, ársfélagar 1396, ársfélagar og áskrifendur erlendis 49. Félagar
eru því alls 1511. Auk þess kaupa 66 félög og stofnanir Náttúrufræðinginn.
Stjórn og adrir starfsmenn
Stjárn félagsins: Arnþór Garðarsson, Ph. D., formaður, Kristján Sæmunds-
son, dr. rer. nat., varaformaður, Tómas Helgason ritari, Ingólfur Einarsson,
verslunarmaður, gjaldkeri og Sólmundur Einarsson, cand. real., meðstjórnandi.
Varamenn i stjórn: Einar B. Pálsson, dipl. ing., og Ólafur B. Guðmundsson,
lyfjafræðingur.
Endurskoðendur: Eiríkur Einarsson, verslunarmaður, og Magnús Sveinsson,
kennari. Varaendurskoðandi: Gestur Guðfinnsson, blaðamaður.
Ritstjóri Nátlúrufræðingsins: Sigfús A. Schopka, dr. rer. nat.
Afgreiðslumaður Náttúrufrccðingsins: Stefán Stefáttsson, bóksali, Laugavegi
8, Reykjavík.
Stjórn Minningarsjóðs Eggerts Olafssonar: Guðmundur Eggertsson, Ph. D.,
Bergþór Jóhannsson, cand. real., og Ingólfur Davíðsson, mag. scient. — Til
vara: Ingimar Oskarsson, náttúrufræðingur, og Sigurður Pétursson, dr. pltil.
Aðalfundur
Aðalfundur Hins ísl. náttúrufræðifélags fyrir árið 1974 var haldinn í stofu
101 í Lögbergi laugardaginn 22. febrúar 1975. Fundinn sóttu 28 félagsmenn.
Fundarstjóri var kjörinn Sveinn Jakobsson og fundarritari Hákon Aðalsteins-
son.
Formaður flutti skýrslu urn störf félagsins á árinu. Gjaldkeri las upp reikn-
inga félagsins og reikninga Minningarsjóðs um Stefán skólameistara Stefáns-
son. Bergþór Jóhannsson, gjaldkeri Minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar og Dán-
argjafar Helga Jónssonar, las upp reikninga þessara sjóða. Þessu næst var geng-
ið til stjórnarkjörs. Úr stjórn skyldu ganga þeir Kristján Sæmundsson og Sól-
mundur Einarsson og voru þeir báðir endurkjörnir. I varastjórn voru endur-
kjörnir þeir Einar B. Pálsson og Ólafur B. Guðmundsson. Endurskoðendur
voru endurkjörnir þeir Eiríkur Einarsson og Magnús Sveinsson og varaendur-
skoðandi Gcstur Guðfinnsson.
7