Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 8
Höfundur hefur athugað 10 berg-
þynnur af sýnum úr báðum hraun-
unum og úr Eldborginni. Munurinn
milli hraunanna er ekki eins mikill
og Jóhannes vill vera láta. Hraunið
er plagíóklas- og ólivíndílótt, en stærð
díla og fjöldi er breytilegur. Dílarnir
eru þó yfirleitt fleiri og stærri í Brun-
anum. f helluhrauninu eru ólivíndíl-
arnir frá 0.3 upp í 1.5 mm að stærð,
en plagíóklasdílarnir eru ívið stærri
eða allt að 2 mm. Grunnmassinn er
vel kristallaður og yfirleitt með inter-
granúlar mynstri (textúr), en subófit-
ískt mynstur finnst. Bruninn er að-
eins dílóttari og ólivíndílar eru allt
að 3 mm í þvermál og plagíóklas allt
að 3 mm á lengd. Grunnmassinn er
yfirleitt vel kristallaður nema í skrof-
inu ofan á hrauninu, sem er fínna og
glerkenndara. Hann hefur intergra-
núlar mynstur. Lítill munur er á
kornastærð í grunnmassa helluhrauns-
ins og Brunans. Bergið í Eldborginni
er mjög blöðrótt og glerkennt, en að
öðru leyti svipað hrauninu. Megin-
munurinn á helluhrauninu og Brun-
anum er, að gabbróhnyðlingar eru al-
gengir í Brunanum en mjög sjald-
gæfir í helluhrauninu. Hnyðlingarnir
eru allt að 5—6 cm í þvermál og sam-
settir úr plagíóklasi, klínópyroxeni
og einstaka ólivíni. Stöku risa-plagíó-
klaskristallar hafa og fundist (allt að
3 cm).
Sterkasta röksemd Jóhannesar Ás-
kelssonar fyrir því að hraunin væru
tvö og misgömul var byggð á segul-
mælingum sem Ari Brynjólfsson gerði
(sjá Ara Brynjólfsson, 1957). Mæling-
ar þessar byggðust á jtví, að segul-
skaut jarðar eru á stöðugu flakki (se-
cular variation) og cf staða jreirra á
hverjum tíma er sett á kort, kemur
fram óreglulegur ferill. Þegar hraun
storknar segulmagnast jjað í samræmi
við segulsvið Jress tíma. Ef ferill segul-
skautanna er Jjekktur, ætti að vera
gerlegt að ákvarða aldur hrauns með
mælingu á segulstefnu Jress. Ari tók
nokkur sýni, bæði úr helluhrauninu
og Brunanum, og komst að því, að
Bruninn hefur aðra segulstefnu en
helluhraunið.
Þessar mælingar voru bornar saman
við aðrar mælingar sem Ari hafði gert,
og kom í ljós, að Bruninn hafði svip-
aða segulstefnu og yngstu hraunin á
Meitilssprungunni á Hellisheiði, sem
eins og Jóhannes orðar jjað, ,,ætla
má“ að séu frá árinu 1000 (sjá og
Þorleif Einarsson, 1960). í nýútkom-
inni grein eftir Jón Jónsson (1977) er
birt aldursgreining (C14) á yngsta
hrauninu á Meitilssprungunni og
reyndist J)að vera 1800—1900 ára gam-
alt. Þessar upplýsingar einar kippa
stoðurn undan Jjeim rökum, sem Jó-
hannes reisti kenningu sína á, um að
Bruninn sé frá landnámstíð.
Þá má einnig geta Jjess, að árið 1972
birti Richard R. Doell niðurstöður
athugana sinna á segulmögnun ís-
lensks bergs. Hann kannaði meðal
annars segulstefnu nokkurra hrauna
sent vitað var hvenær höfðu runnið.
Ætlun hans var að fá gleggri mynd
af ferli Jteim sem Ari Brynjólfsson
(1957) setti frarn. Doell segir um nið-
urstöður sínar (í lauslegri jtýðingu):
,,Það er auðséð að hinar nýju upplýs-
ingar bæta ekki miklu við (né stað-
festa) feril þann sem Brynjólfsson
setti fram“ (Doell 1972, bls. 466). í
stuttu máli eru niðurstöður Doells
þær, að segulstefna í hraunum frá
134