Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 10
mundar hefur land sigið um 5 m síð-
ustu 4500 árin (þ. e. sjór stendur nú
um 5 m hærra en fyrir 4500 árum) og
á tímabilinu frá 5000 til 9000 árum
var sjávarstaða um 6—10 m lægri en
nú. Þessar tölur eiga, eins og áður
sagði, við Reykjanesskagann, en þær
verða eitthvað lægri fyrir sunnanvert
Snæfellsnes. Ef við göngum út frá því
sem gefnu, að sjór hafi staðið 5 m
neðar en nú, er Eldborgarhraun
brann, þá getur það vart verið yngra
en 5000 ára. Hraunið liefur þá runn-
ið á tímabilinu fyrir 5000—9000 ár-
um, sennilega fyrri hluta þess, þar
sem ætla má, að sandar og melar hafi
gróið upp tiltölulega fljótt eftir að
jöklar hörfuðu af láglendi.
RAUÐHÁLSAR OG
RAUÐHÁLSAHRAUN
í.f’gn og lýsing hrauns og eldstöðvar
Rauðhálsahraun markast að norð-
an af Kaldalæk, að austan af KoJ-
beinsstaðafjalli, að sunnan af Skjálg-
urlæk og Landbrotalæk og að vestan
af Haffjarðará (1. ntynd). Rauðhálsar
(4. mynd), sem hraunið er frá komið
og við kennt, eru austast í því. Gígur-
inn er aðeins einn og rís hæst 60—80
m yfir umhverfi sitt. Hann er 500—
600 m langur frá suðri til norðurs,
en innan við 300 m breiður. í slakk-
anum norðan til í gígnum er nokk-
urra tuga metra djúp gígskál, sem er
innan við 180 m í þvermál, en háls-
arnir báðum megin við hana eru úr
rauðu gjalli. Suður af gígnum er mjór
vikurgeiri, sem teygir sig liðlega einn
kílómetra út á hraunið. Næst gígnum
ber mest á helluhrauni, en úfið apal-
hraun tekur við er fjær dregur.
Hraunjaðarinn er víðast 10—15 m hár
nema að norðaustan, þar sem liann
er um 2—5 m hár. Hraunið frá Rauð-
hálsununt hefur runnið upp að og
líklega út á nyrstu totur Eklborgar-
hraunsins við Skjálgurlæk. Það hefur
líka runnið út á Gullborgarhraun á
nokkrum stöðum við Kaldalæk.
Hraunkvikan hefur runnið eftir upp-
hleyptum rásum (hrauntröðum), sem
ýmist eru opnar eða lokaðar. Rásirnar
eru þröngar næst gígnum en víkka er
fjær dregur. Tveir óbrennishólmar
eru í hrauninu vestanverðu (1. mynd).
Sá nyrðri og stærri nefnist Nauthólmi,
en sá syðri Eldhólmi. Bergið er nokk-
uð þétt og ólivíndílótt. Dílarnir eru
oftast 0.5—1 mm að stærð, en þeir
stærstu ná 3 mm. Grunnmassinn er
nokkuð fínkornóttari en í Eldborgar-
hrauninu, vel kristallaður og hefur
intergranúlar mynstur. Fáeinir súrir
Itnyðlingar hafa fundist í hrauninu.
Gossaga og aldur Rauðhálsahrauns
Ekki hafa fundist merki um fleiri
en einn gíg. Líklegt er þó, að gosið
hafi hafist á stuttri sprungu, eins og
títt er, og síðan dregist saman í einn
gíg. í upphafi gossins var töluverð
kvikustrókavirkni og barst askan til
suðurs undan norðlægri átt. Athuguð
voru liðlega eitt hundrað jarðvegssnið
á svæðinu sunnan Rauðhálsahrauns
og austan Eldborgarhrauns. Mæld var
þykkt öskulagsins og kornastærð þess.
Öskugeirinn er sýndur á 5. mynd
ásamt þykkt öskunnar, og fjögur snið-
anna eru sýnd á 6. mynd. Geirinn
hefur tvo þykktarása. Næst hrauninu
er askan þykkust um 6—15 cm, en þó
136