Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1978, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1978, Page 31
1. mynd. Vatnabjöllur. a) Haliplus ful- vus Fabr., b) Hydroporus nigrita Fabr., c) Colymbetes dolabratus thomsoni Sharp., d) Agabus bipustulatus solieri Aubé, e) mynstur á bakskildi A. b. solieri Aubé, f) mynstur á bakskildi A. uliginosus L. vængi) og afturvængirnir eru lagðir saman undir þeim. Helst væri hægt að rugla þeim saman við tjarnatítu (Arctocorisa carinata C. Sahlb.). Framvængir tjarnatítunnar eru harð- ir að hluta, en munnpartar eru um- myndaðir í harðan rana, sem liggur aftur undir dýrið. Bjöllur og vatns- kettir hafa hins vegar vel þroskaða kjálka. Vatnskettir eru auðgreindir frá öðrum skordýralirfum í vatni. Þeir greinast frá vorflugulirfum á ]>ví að vorflugulirfur byggja um sig sívaln- ingslaga hús sem þær bera með sér hvert sem þær skríða. Vatnskettir eru greindir frá tvívængjulirfum á því, að hinar síðarnefndu hafa enga fætur, og ungviði steinflugna (Capnia vidua Kap. (Plecoptera)) og dægurflugna (CAo'éon simile Etn. (Ephemeroptera)) hafa vængpoka á baki. Fyrrnefnda tegundin hefur tvo hala aftur úr sér, en hin síðarnefnda þrjá. Orðskýringar: Ristarliðir (tarsus): Ystu liðir fóta utan við fjórða lið. Koxa: Stofnliður hvers fótar. Hyrna (scutellum): Sá hluti bakskjald- ar (tergum) á miðlið bols (meso- thorax), sem sést á sumum tegund- um sem lítill þríhyrningur milli fremsta bakskjaldar (prothorax) og skjaldvængja. Fálmarar (antennae): Fyrsta par út- 2. mynd. Vatnskettir. a) Haliplus fulvus Fabr., b) Hydroporus sp. (eftir teikningu Macans (1959)), c) Agabus bipustulatus solieri Aubé. 157

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.