Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1978, Page 34

Náttúrufræðingurinn - 1978, Page 34
Sigurvin Elíasson: Molar um Jökulsárhlaup og Asbyrgi Inngangsorð Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi liafa hin síðari ár vakið athygli náttúrufræð- inga og annarra ferðalanga, enda furðuverk. Kunn er sú niðurstaða Sig- urðar Þórarinssonar (1959, 1960), að Jökulsá á Fjöllum hafi runnið til Ás- byrgis þar til fyrir um 2500 árum. Haukur Tómasson og Kristján Sæ- mundsson, jarðfræðingar hjá Orku- stofnun, birtu samtímis ritgerðir (1973) og voru á einu máli um Jrað, að Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi hefðu að mestu grafist í tveimur ógurlegum stórhlaupum, s.k. hamfarahlaupum — hinu fyrra fyrir meira en 7100 ár- um, hinu síðara fyrir um 2500 árum. Þá greindi á, hvort hlaupið hefði ver- ið meira. Kristján taldi að fyrra hlaup- ið hefði áorkað sýnu meira og grafið Ásbyrgi, að frátalinni totu innst í botni, og líka þrönga dalinn 20 knt uppi í Gljúfrum, milli Þórunnarfjalla ogSauðafells (Sveigar, Forvöð, Hólma- tungur). Hið forna risahlaup virðist Jiann tengja jökulhopun á hálendinu í lok ísaldar (Kristján Sæmundsson, 1973). Haukur taldi að síðara hlaupið hefði verið miklu mest, ósvikið ham- farahlaup með hámarksrennsli ekki undir 400—500 þús. m;!/sek. Hefði jiað í striklotu grafið Jökulsárgljúfur, að meðtöldu Ásbyrgi, í höfuðdrátt- um eins og þau eru nú á dögum. Hann samdi líkan af geysimiklum vatnsgeymi inni á miðjum Vatnajökli, lóni milli fjalla, sem nú eru undir jökli, til Jress að hýsa vatnið og hafði til hliðsjónar Jrá skoðun Sigurðar Þór- arinssonar (1956, 1964), að jöklafar á miðhálendinu ltefði þá verið frá- brugðið Jrví sem nú er. Risahlaup þetta gat þá verið í tengslum við jöklagang á kuldaskeiðinu, sem hófst 600—700 árum f. Kr.b. Eldgangur í Kverkfjallakvos eða jafnvel í Gríms- vatnakvos kæmi til greina. Um fyrra hamfarahlaupið var hann fáorður (Haukur Tómasson, 1973). Frumhug- myndina um hamfarahláup í Jökuls- árdal á Haukur. Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur, sem mörg sumur vann við Jökulsá, virðist samjjykkur meginkenningum Jreirra Hauks og Kristjáns, eða gerir engar athugasemdir (1975). Mín kynni af Jressum gljúfradölum Náttúrufræðingurinn, 47 (3—4), 1977 160

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.