Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 37
1. mynd. Grettistök á hraunhvolfum í Ásheiði. — Erratic blocks resting on knolls of
pahoehoe lava in Asheidi.
Klappir — straumgnúðar eða
jökulsorfnar?
Kristján Sæmundsson fann hátt á
Eyjunni í Ásbyrgi „gnúðar klappir,
sem í engu eru frábrugðnar jökul-
sorfnum klöppum" (1973, bls. 52) og
bendir einkutn á stakt holt, auðþekkt
af vörðu. Er niðurstaða hans sú, að
þessar flúðir liafi mótast og rákast í
straumi hamfarahlaups fyrir meira
en 7100 árum. í heiðinni þarna eru
bæði þvegnar klappir og rákaðar og
rná greina 2—3 gerðir og skiptingu
eftir svæðum, þ. e. 1) straumgnúðar
klappir, 2) jökulsorfnar klappir og 3)
jökulsorfnar klappir, sem hafa sand-
fágast og/eða lent í vatnsflóðum.
Straumgnúðar klappir (2. mynd)
eru í flóðfarvegum Jökulsár syðst sem
nyrst. Það eru fágaðar klappir með
ávölum brúnum, bryggjunt og hnjót-
um, smáskálum og holum. Safn af
straumgnúðum klöppum er að finna
í Kvíafarvegi og stöllum í Gljúfrun-
um. Þar sem straumur hefur verið
yfrið jryngstur kemur fram mjög stór-
gert afbrigði slíkra klappa, með stór-
um skálum og liáum hryggjum, sem
enda oft í hnúðum (2. mynd). Víðir
skessukatlar eru þar oft. Allvíða nærri
fossbrúnum er |)etta grófa afbrigði
þéttfínrispað í straumstefnu — hár-
fínar rispur. Þessi grófa klappagerð
er algengust nærri brúnum fornra
stórfossa, s. s. á Botnsbrún Ásbyrgis
og brúnum Kvía (þurr fossglúfur í
samnefndum farvegi). Klappir þessar
eru mjög frábrugðnar jökulsorfnum
klöppum.
Jökulsorfnar klappir (3. rnynd)
finnast hér allvíða, bæði á hálendi og
láglendi, þ. á m. dreift í Ásheiði.
163