Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 47
ins, í samspili við fossgröft í því
gljúfri. Þannig varð Eyjan til utar-
lega rnilli gljúfranna, 2 km löng. Að
sjálfsögðu gróf hlaupið mikið i vest-
urgljúfrinu.
Jarðvegssnið XXI—XXII eru mæld
á austurbrún Eyjunnar með um 200 m
millibili, spölkorn sunnan við jökul-
rákaða vörðuhólinn. Sniðin sýna 30—
60 cm þykkt grjótlag á um 700 m
löngum kafla á austurbrúninni sunn-
an hólsins, ofan á báðum ljósu ösku-
lögunum H3 og H4, óhögguðum, eða
aðeins ofan á H4 (snið XXI, sjá 7. og
8. mynd). Virðist þó vera um sama
grjótlag að ræða. Grjótið er mest
stuðlabrot, með sama jjvermáli og
stuðlar í dyngjuhrauni Eyjunnar,
mest 10—20 cm jjykkar hellur, yfir-
leitt óvelktar, en ávalir hnullungar
innan um. Sams konar helludreif ligg-
ur í blásnu flögunum alveg fram á
hamrabrún.
í fljótu bragði er merkilegt, að
grjótlagið er hvorki að finna á vestur-
brúnunum né Eyjaroddanum og nær
aðeins urn 60—80 m vestur á Eyjuna
inn frá brúninni. En hér á móts við
Eyjubrúnir var eystra gilið, sem flóð-
ið steyptist niður í eins og brimskafl,
af svo miklu afli að grjót, sem grófst
óðfluga úr gilhömrunum, kastaðist í
boðaföllum upp á brún Eyjunnar,
eða losnaði úr sjálfri brúninni. Á NV-
horni Eyjunnar, í 10—15 m hæð yfir
gljúfurbotni, er jjunnt samsvarandi
sandlag, um 9 cm yfir H3. Á eystri
barmi Ásbyrgis er líka þunnt sam-
svarandi sandlag á kafla (snið XX).
Sýnist sem eystra gljúfrið hafi verið
fremur þröngt, þegar ldaupið kom
ofan. Veggir Ásbyrgis eru úr jjunnu,
óreglulegu beltabergi.
7. mynd. Grjótröstin í jarðvegi á austur-
barmi Eyjunnar, ofan á öskulögunum H3
og H4, 35—40 m yfir gljúfurbotni (sbr.
snið XXI—XXII). — Water-transported
rocli debris, overlying H3 and H4, on the
eastern rim of the Eyjan Island cliff in
the middle of tlie Ásbyrgi Canyon, 35—
40m above the bottom of the canyon (cf.
soil profiles XXI—XXII).
Svo virðist sem lilaup jjetta hafi
farið sem mikil, snögg flóðalda niður
Jökulsá og verið straumharðara en
fyrri hlaup. Það hefur ekki skilið
eftir mikil setlög uppi í Gljúfrunum,
nema lægri hjallarnir niðri í víða
klettagljúfrinu eru líklega frá lokum
Jjessa hlaups. Hlaupið fór bak við
Hljóðakletta, en ekki Rauðhóla sem
fyrra hlaup, og náði þó um 8 m upp
í vesturhlíð nyrsta gjallglgs Rauðhóla
móti Lambafelli. Litlu munaði að Jjað
sópaði burt síðustu leifum Hljóða-
173