Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 66

Náttúrufræðingurinn - 1978, Blaðsíða 66
svæði eru svo breið, ;ið hún verður þeirra vör áður en snjóbíll kenmr að hættulegum sprungum. Þegar komið er inn á sprungusvæði, verður að senda menn í bandi á undan snjó- bílnurn til þess að velja færa leið. Óvarlegt væri að reyna að rneta breidd sprungna í íssjánni, en vænt- anlega mætti smíða nákvæman sprungukanna með lítil loftnet, sem beint yrði fram undan snjóbíl. Það tæki gæti þó aðeins kannað næsta ná- grenni snjóbílsins, varla lengra en 100 metra. Könnun á S7ijóalögum Issjáin, sem ég hef rætt um, sér gegnum jökul frá jökulsporðum nið- ur á botn dýpstu jökla. En smíða rnætti aðra gerð íssjár, nærsýnni, sem sér gegnum snjó og greinir snjóþykkt svo að ekki skakkar meir en örfáum sentimetrum. Með slíku tæki ætti að mega kanna á fljótvirkan hátt snjó- magn á liálendi, væntanlega úr flug- vél. Hvert vor er mikilvægt við rekst- ur virkjana að vita hve mikið leys- ingarvatn er væntanlegt í safnlón. Sama tæki gæti oft fundið sauðfé, sem fennt hefur, og flýtt fyrir ieit að fólki í snjóflóðum. I snjóflóðum ægir að vísu oft saman ýmsu lauslegu, en lík- legt er, að með reynslu megi greina mun á endurkasti rafsegulbylgna frá mönnum og öðrum hlutum. Helsta gagn tækisins yrði væntanlega, að með því mætti útiloka svæði, sem óþarft er að leita á. Þar sem hins vegar grun- samlegt endurkast kæmi frant á tæk- inu, yrði snjóþekjan könnuð nánar með stöngum. Enginn má skilja orð mín svo, að ég telji eitt tæki leysa snjóflóðavandamál á íslandi. Þau mál eru margþætt. En íssjá, sem skyggnist til botns í dýpstu jökla, hefur opnað færa leið að smíði tækis, sem gæti fundið fólk og fé í snjó. Þannig þró- ast tækni og vísindi oft í fleiri áttir en stefnt var að, þegar lagt var af stað. Könnun á hraunum í byrjun þessarar greinar gat ég þess, að jökulís hefði þá sérstöðu nteðal þeirra efna, sem mynda yfir- borð jarðar, að auðvelt væri að kanna hann með rafsegulbylgjum. Við könn- un á jarðlögum hér á landi er því ólíklegt, að unnt verði að nota þá tækni, sem beitt er með íssjánni. Þó virðast hraun ofan jarðvatnsborðs vera mikilvæg undantekning. Nokkr- ar tilraunir hafa verið gerðar með ís- sjá Raunvísindastofnunar í hraunum í Heiðmörk og Þrengslunum. Þær til- raunir gáfu svo góða raun, að nú er stefnt að því að fá sem fyrst endan- lega skorið úr, hve örugglega raf- segulbylgjur geti greint jarðvatnsborð og hraunlagamót, og hver væri hent- ugasta gerð tækis við slíkar mælingar. Til mikils er að vinna, ef unnt yrði að fljúga yfir hraun eða aka um þau eftir þjóðvegum og skrá samfellt jarð- vatnsborð, telja hraunstrauma ofan við jarðvatnsborð og meta flatarmál og þykkt einstakra hraunlaga. LOKAORÐ Könnun á jöklurn landsins með ís- sjánni verður helsta verkefni jökla- rannsókna á næstu árum. Stefnt er að því, að gera kort af landi undir jökl- unum. Þá verður unnt að meta ís- magn á vatnasviðum jökulánna. 192
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.