Náttúrufræðingurinn - 1978, Side 76
og Austurlandi. Á 8 veðurstöðvum mæld-
ist svo til engin úrkoma og víða var hún
1—5 mm. Maí er oft ntjög þurr á þessum
slóðum en jafnúrkomulítið hefur þó ekki
orðið á svo stóru svæði síðan 1931. Á
Vestur- og Suðvesturlandi varð úrkoma
nálægt meðallagi.
Júní, júlí og ágúst voru heldur kaldari
en í meðalári á landinu 1 heild. ICaldast
var að tiltölu á Suðvesturlandi í júní en
mildast í júlí norðantil á landinu. í júní
og júlí rigndi meira en í meðalári nema
í innsveitum norðaustanlands.
Mikið úrfelli var sunnanlands 21.—22.
júní og var þá sólarhringsúrkoman í íra-
fossi 102 ntm. í Reykjavík mældist úr-
koman 31 mm frá 28. kl. 09 til jafnlengd-
ar þ. 29., og er það mesta sólarhrings-
úrkoma þar í júní frá upphali mælinga.
1 byrjun júlí gerði síðan stórrigningu á
Austfjörðum og með ströndum allt til Ör-
æfajökuls. í Neskaupstað var sólarhrings-
úrkoma að morgni 3. júlí 186 mm og 100
mm mældust á Kvískerjum þ. 4. Sólskins-
stundir voru færri en í meðalári Iræði í
Reykjavík og á Akureyri í júní og júlí
en í ágúst voru þær fleiri en venja er til
á báðum stöðvunum. Urkoma var einnig
innan við meðallag í þeim mánuði, nema
á Suðausturlandi, en jtar var stórrigning
þ. 10,—11. og mældist sólarhringsúrkoma
á Kvískerjum 190 mm. Sæmileg heyskap-
artíð var um allt land og heyskap lauk
víðast i mánuðinum. Fyrsta djúpa lægðin
á haustinu kom 27. ágúst og olli hvass-
viðri og mikilli úrkomu um allt land.
I september var svalt en frernur stillt
veður, hitinn var um 1° undir meðallagi.
Urkoma var minni en venja er til nema
sums staðar vestan til á landinu.
Fyrstu 10 daga október var kalt, en
síðan lengst af hlýtt fram til mánaðar-
móta, en nóvember varð mjög kaldur þar
til í síðustu vikunni. í jreim mánuði varð
hitinn um 3° undir meðallagi, en í októ-
ber var heldur hlýrra en 1 meðalári sunn-
anlands, en norðanlands var hitinn undir
meðallagi. Gott haustveður var fram til
11. nóv. en þá gerði norðan hvassviðri
með slyddu og snjókomu norðan og aust-
an til á landinu og eftir það var tíð
rysjótt. Urkoma var mjög ntikil norðan-
lands og austan í október en annars var
úrkomulítið [ressa tvo mánuði.
Desember liefur einkennst af mjög tíð-
um sveiflum milli frosts og þíðu. Mjög
hlýtt var fyrstu vikuna, hiti komst upp í
9—10° en þ. 18. og 19. var víða meira en
20° frost. I>. 14. gerði afspyrnu sunnan
veður við suðurströndina, vindur komst í
119 hnúta í Vestmannaeyjum í snöggri
hviðu, og er það mesta vindhviða sem
mælst hefur á landiuu.
í heild verður árið um 14° kaldara en
meðaltal áranna 1931—1960, en um meðal-
lag sé miðað við árin eftir 1960. Úrkoma
verður lalsvert innan við meðallag eða
um þj af meðalúrkomu.
Addti Bára Sigfúsdóttir.
Nýtt rit um viðarfræði
Haraldur Ágústsson, kennari, hefur gef-
ið út fjölritað hefti um viðarskaðvalda,
sem ætlað er til nota við kennslu í viðar-
lræði við Iðnskólann í Reykjavík. í þessu
hefti gerir höfundur grein tyrir helstu
skaðvöldum í smfðaviði, hinum ýmsu
sveppa- og dýrategundum, sem máli
skipta. Fjallað er um viðarskaðvalda í sjó
og loks um ráðstafanir gegn viðarskemmd-
um.
Haraldur hefur áður tekið saman rit
um viðarfræði og nefnast þau: Heiti úr
viðarfræði (1968), Heili úr viðarlíffræði
(1970), 25 viðarlýsingar (1973), Viðarein-
kenni (1973) og Ýmislegt úr viðarfræði
(1977).
202