Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 2
2 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
Verð á mann í tvíbýli:
124.900kr.
Borgarferð
12.–19. júlí 2009
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
hótelgisting á 3* Hotel Mercure Montmartre ásamt
morgunverðarhlaðborði.F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hin óviðjafnanlega París
Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar
á expressferdir.is eða í síma 5 900 100
SAMFÉLAGIÐ Tíu manna hópur á höf-
uðborgarsvæðinu hefur tekið sig
saman og býður þeim sem á þurfa
að halda ókeypis aðstoð. Um er að
ræða innkaup, gluggaþvott, reið-
hjólaviðgerðir, garðahreinsun, mat-
reiðslu og fataviðgerðir.
„Við ætlum þessa aðstoð fyrir þá
sem þurfa á henni að halda,“ segir
Vigdís Linda Jack sjúkraliði, ein úr
hópnum. „Okkur langaði til að gera
eitthvað gott í þessu þjóðfélagi og
bæta Ísland,“ svarar hún spurð um
ástæður sjálfboðavinnunnar. „Við
ákváðum að gera þetta á hverjum
sunnudegi út júní og vorum alveg
á haus í verkefnum síðastliðinn
sunnudag. Næstkomandi sunnu-
dag förum við aftur á stúfana og
mér sýnist við einkum verða að þvo
glugga og taka til í görðum.“
Vigdís Linda segir að hópurinn
hyggist einnig bjóða upp á ókeypis
námskeið á næstunni. „Þar verður
kennd spænska, enska, garðyrkja,
matreiðsla og fleira,“ útskýrir hún.
Verið er að skipuleggja umrædd
námskeið og gert er ráð fyrir að
þau verði í ágúst.
„Hjálparstarfið er mjög skemmti-
legt og gefandi og fólk er mjög
þakklátt,“ segir Vigdís Linda. „Það
er einkum eldra fólk sem biður um
aðstoð vegna þess að það getur ekki
gert hlutina sjálft.“ - jss
SJÁLFBOÐALIÐARNIR Hluti hópsins sem býður þeim sem á þurfa að halda hjálp án
endurgjalds.
Tíu manna hópur vill láta gott af sér leiða í samfélaginu:
Aðstoða fólk án endurgjalds
Ómar, var ekki hægt að kippa
í einhverja spotta?
„Nei, sá tími er liðinn.“
Vegna niðurskurðar verður Brúðubíllinn
ekki með sýningar á gæsluvöllum í Kópa-
vogi í sumar líkt og undanfarin ár. Ómar
Stefánsson er í bæjarstjórn Kópavogs.
SAMGÖNGUR Erfiðlega gengur að
finna ferju sem gæti leyst Herjólf
af þegar hann verður settur í slipp
í byrjun september næstkomandi.
Eistneska ferjan St. Ola sem hlaup-
ið hefur í Herjólfs skarð síðustu
ár er ekki til taks að þessu sinni.
Ráðgert er að viðgerðin taki tvær
vikur en Elliði Vignisson, bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjabæ, segir að
af fenginni reynslu megi búast við
því að Herjólfur verði frá í þrjár til
fjórar vikur.
Kristján Möller samgönguráð-
herra segir að vel komi til greina
að fá ferjuna Baldur sem siglir yfir
Breiðafjörð í afleysingarnar. Ell-
iði segir þann kost ekki koma til
greina af hálfu Eyjamanna. „Ég
gerði ráðherra grein fyrir því að
við yrðum að gera kröfu um skip
sem væri sambærilegt við Herj-
ólf í flutningagetu enda annar það
skip vart þörfinni í dag,“ segir Ell-
iði. „Minna skip með lakari þjón-
ustu kæmi því ekki til greina af
okkar hálfu. Baldur kann að vera
ágætis skip en ég þekki ekki hvort
það hefur haffærni á siglingaleið-
inni milli Þorlákshafnar og Vest-
mannaeyja en sú siglingaleið er
ein sú erfiðasta í heimi.“ Herjólf-
ur tekur um 500 manns og 60 bíla
en Baldur aðeins 45 bíla og 350 far-
þega.
„Hafa þarf hugfast að í Vest-
mannaeyjum búa nú tæplega 4.200
manns,“ segir Elliði. „Atvinnulíf-
ið og samfélagsgerðin er þannig
að þörfin fyrir greiðar samgöng-
ur er á fáum stöðum meiri en hér.
Fyrirtækin þurfa að koma hundr-
uðum tonna af vörum og hráefn-
um til og frá Eyjum í hverri viku
auk þess sem þúsundir bæjarbúa
og gesta nota skipið í hverri viku.
Okkar krafa er sú að það skip sem
leysir Herjólf af sé sambærilegt
við Herjólf. Við erum tilbúin til að
vera ríkinu innan handar við að
finna slíkt skip ef leit þeirra geng-
ur illa.“ Kristján segir ástandið
hins vegar vera þannig að Eyja-
menn verði kannski að gera sér
Baldur að góðu.
„Svo er mikilvægt að undirbúa
allt vel þannig að skipið verði ekki
lengur en tvær vikur í slipp. Á þess-
um tíma verður einnig mesti ferða-
mannatíminn genginn yfir. Svo
mega Eyjamenn ekki gleyma af
hverju er verið að þessu, það er til
dæmis verið að gera breytingar á
Herjólfi svo að hann geti komið að
bryggju í Landeyjahöfn sem verður
stór samgöngubót fyrir Eyjamenn
og landsmenn alla.“ jse@frettabladid.is
Finna ekki skip í
staðinn fyrir Herjólf
Afleysingaskip Herjólfs verður ekki til taks þegar hann fer í slipp í september í
allt að mánuð. Rætt hefur verið um að Breiðafjarðarferjan Baldur leysi Herjólf
af en hún er töluvert minni. Eyjamenn taka þann möguleika ekki í mál.
HERJÓLFUR Í ÓLGUSJÓ Þarna er Herjólfur í ólgusjó en það gæti orðið erfitt fyrir Eyja-
menn að stíga ölduna þegar Herjólfur fer á þurrt í september. MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
ELLIÐI VIGNISSONKRISTJÁN MÖLLER
BANKAHRUN Gögn um niðurfell-
ingu á persónulegum ábyrgðum
lykilstarfsmanna Kaupþings töfð-
ust mánuðum saman á leiðinni frá
embætti ríkissaksóknara til sér-
staks saksóknara.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksókn-
ari segir að þetta megi meðal ann-
ars rekja til þess að tafir urðu á
stofnun embættis sérstaks saksókn-
ara, en bendir um leið á að þriggja
mánaða töf sé ekki mikið, miðað við
það sem gengur og gerist, jafnvel í
nauðgunarmálum.
„Eitt af fyrstu verkum sérstaks
saksóknara var að sækja banka-
málin til mín og þar á meðal þetta
mál. Síðan spyrst kærandi fyrir um
málið í maí og þá
kemur í ljós að
starfsmenn sér-
staks saksókn-
ara finna þetta
ekki hjá sér. Þá
var þeim sent
afrit,“ segir Val-
týr.
Ha nn hafi
ákveðið í byrj-
un nóvember
að aðhafast ekki í málum tengdum
bankahruninu og tilkynnt dóms-
málaráðuneyti að hann biði skip-
unar sérstaks saksóknara. Málið
hafi komið til hans í lok nóvember,
en stofnun embættis sérstaks sak-
sóknara dregist fram í janúar. Málið
hefur komist í hámæli þar sem
sonur Valtýs, Sigurður, er fram-
kvæmdastjóri Exista, aðaleiganda
gamla Kaupþings.
Dómsmálaráðherra íhugar víst
að biðja um skýrslu um þessa töf.
„Ég hlýt að fagna því að ráðherra
hefur áhuga á töfinni, því ég hef
bent á að ég hafi ekki aðstöðu til að
fylgja eftir málshraðareglum í þeim
málum sem ég legg mesta áherslu á,
ofbeldis- og kynferðisbrotamálum.
Þau mál eru jafnvel mæld í árum.
Það væri því kærkomin stefnubreyt-
ing ef stjórnvöld sýndu áhuga á að
halda uppi eðlilegum málshraða og
forgangsraða,“ segir Valtýr. - kóþ
Ríkissaksóknari fagnar áhuga stjórnvalda á eðlilegum málshraða:
Kaupþingsgögnin voru sótt í vetur
VALTÝR
SIGURÐSSON
UTANRÍKISMÁL Hryðjuverkalögun-
um bresku verður aflétt af Lands-
bankanum eftir helgi, í kjölfar
samninga Íslendinga og Breta um
Icesave. Bresk
stjórnvöld hafa
tilkynnt um
það formlega,
eftir ákvörðun
þingsins ytra.
Breska
ríkisstjórn-
in ákvað að
frysta eignir Landsbank-
ans þar í landi tveimur dögum
eftir setningu neyðarlaganna á
Íslandi, eða 8. október síðastlið-
inn. Lögunum hafði áður verið
beitt gegn ríkjum á borð við
Norður-Kóreu og samtök eins og
al-Kaída.
Tilkynnt hefur verið um að lög-
unum verði aflétt, þótt Alþingi
eigi eftir að samþykkja ríkis-
ábyrgð vegna Icesave-lánsins. - sh
Landsbankinn senn frjáls:
Hryðjuverka-
lögunum aflétt
UPPGRÆÐSLA Við Flugvallarveg í
Reykjavík er nýhafin tilraun til
uppgræðslu með gömlum síma-
skrám. Það eru fyrirtækin Já,
sem gefur út Símaskrána, Flögur
og Sáning sem standa saman að
tilrauninni.
Tilraunin fer þannig fram
að blandað er saman grasfræi,
áburði og tættum blöðum úr
Símaskránni. Þessu er hrært út
í vatn í sérbúinni sáningarvél,
sem síðan er notuð til að sprauta
blöndunni á jörðina.
Móttökugámar fyrir eldri
símaskrár eru á bensínstöðv-
um Skeljungs og Olís á höfuð-
borgarsvæðinu og hjá Símanum
við Ármúla. Á landsbyggðinni
er tekið við eldri skrám á öllum
afgreiðslustöðum Póstsins. - kg
Nýtt tilraunaverkefni:
Græða með
símaskrám
UMHVERFISMÁL Milli fimmtíu og
hundrað dauðir fiskar fundust í
Varmá í Mosfellsbæ í gærkvöldi.
Óvíst er hvað olli dauða þeirra
en Guðni Guðbergsson fiskifræð-
ingur telur líkur á því að banvæn
efni hafi borist í ána.
„Hvað það er vitum við ekki en
það eru stútar við ána þar sem
rennur út í hana. Einn er undir
Áhaldahússvegi og það voru
engir dauðir fiskar fyrir ofan
hann,“ segir Guðni.
Stútur þessi er nálægt dælu-
stöð Orkuveitunnar en Guðni
sá engin merki um að það kæmi
málinu við, þó ekki væri það úti-
lokað. - kóþ
Efni hafi komist í ána:
Dauðir fiskar
finnast í Varmá
MÓTMÆLI Hópur Kjalnesinga mót-
mælti við Vesturlandsveg í gær
og krafðist bætts umferðarör-
yggis á nesinu. Mótmælendurnir
hægðu á umferðinni, svo um tíma
tók það ferðalanga allt upp undir
klukkustund að komast frá Esju-
rótum að Hvalfjarðargöngunum.
Kjalnesingarnir komu sér fyrir
við vegkantinn og héldu á skiltum
þar sem kröfur þeirra stóðu skýr-
um stöfum.
Meðal þeirra sem fastir voru í
umferðinni voru fulltrúar í sam-
göngunefnd Alþingis, á leiðinni á
fund í Klébergsskóla. Mótmælin
stóðu frá klukkan fimm síðdegis
til rúmlega átta. - sh
Kjalnesingar vilja úrbætur:
Mótmælendur
töfðu umferð
FRÁ VARMÁ Í GÆR Hér sést Gunnar V.
Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins,
skoða illa farinn fisk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÓPAVOGUR Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi geta
ekki komið sér saman um það
hver þeirra á að taka við sem
bæjarstjóri. Þetta var fullyrt í
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Framsóknarmenn hafa krafist
þess að Gunnar Birgisson víki
eigi samstarf flokkanna að halda
áfram. Gunnar mun hafa boðist
til þess að stíga til hliðar. Gunn-
steinn Sigurðsson og Ármann Kr.
Ólafsson, munu nú bítast um stól-
inn. Fulltrúaráð flokksins fundar
á mánudag um málið. - sh
Bæjarstjóraskipti fyrirhuguð:
Bitist um völdin
í Kópavogsbæ
SPURNING DAGSINS