Fréttablaðið - 13.06.2009, Síða 10
10 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
KÆLA SIG NIÐUR Gestir á tónlistarhá-
tíðinni Bonnaroo í Tennessee í Banda-
ríkjunum kældu sig niður í gosbrunn-
um í gær. Fjöldinn allur af þekktum
tónlistarmönnum spila á hátíðinni
sem stendur fram á morgundaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMHVERFISMÁL Mestir möguleikar til að draga
úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda liggja í
sjávarútvegi, án tillits til kostnaðar. Talið er að
tæknilega sé hægt að draga úr útstreymi vegna
fiskimjölsframleiðslu um 100 prósent með raf-
væðingu og draga úr útstreymi fiskiflota lands-
ins um 75 prósent með aukinni notkun lífelds-
neytis og orkusparnaðar. Þetta kemur fram í
aðgerðaskýrslu sérfræðinganefndar á vegum
umhverfisráðuneytisins, sem birt var í gær.
„Algjörlega óraunhæft er að fara í þessar
aðgerðir nema verð á lífeldsneyti verði lægra
en verð á olíu,“ segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ. Friðrik segir lofts-
lagsnefnd sjávarútvegsins hafa sett fram til-
lögu um hvernig hægt sé að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda síðasta haust. Þar er
stefnt að því að dregið verði úr útstreymi um
20 prósent fyrir árið 2020. Í ljósi breyttra
aðstæðna þurfi hins vegar að endurmeta þá
skýrslu.
Í skýrslu sérfræðinganefndar umhverf-
isráðuneytisins eru raktir allir tæknilegir
möguleikar sem koma til greina til að draga úr
útstreymi gróðurhúsalofttegunda.
„Ef ráðist yrði í þær allar komumst við
52 prósentum fyrir neðan grunnspá ársins
2020,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, formað-
ur nefndarinnar. Hún segir að um sé að ræða
tæknilega mögulegar aðgerðir, án tillits til
kostnaðar.
Ekki er þó talið mögulegt að ná fram mikilli
minnkun á losun frá stóriðju. Ástæðuna segir
Brynhildur þá að erfitt sé að ná fram frekari
minnkun í losun stóriðju. Álverin hafi staðið
sig vel í að draga úr losun PFC-efna. „Notkun
rafskauta í álverum hleypir hins vegar gríð-
arlegu magni gróðurhúsalofttegunda út í and-
rúmsloftið og kolefnislaus rafskaut verða ekki
komin á markað fyrir árið 2020,“ segir Bryn-
hildur.
Tillögurnar felast margar í að binda gróður-
húsalofttegundir með endurheimtingu votlend-
is, fara í skógrækt og landgræðslu. Í aðgerðum
um samgöngumál er lagt til að ráðist verði í að
styrkja almenningssamgöngur og nota spar-
neytnari bifreiðar.
„Þetta snýst um að breyta hegðun samfé-
lagsins,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra. Hún segir að settur verði í gang
aðgerðahópur sem vinna á tillögur á grund-
velli þessarar skýrslu.
Ríkisstjórnin samþykkti á dögunum að
draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 15
prósent fram til ársins 2020. Í samstarfsyf-
irlýsingu hennar kemur jafnframt fram að
minnka skuli losun gróðurhúsalofttegunda um
50 til 75 prósent til ársins 2050. - vsp
Mestir möguleikar til að draga úr notkun gróðurhúsalofttegunda eru í sjávarútvegi samkvæmt skýrslu:
Snýst um að breyta hegðun samfélagsins
SKIP Framkvæmdastjóri LÍÚ segir aðgerðirnar sem
sérfræðinganefnd hafi lagt til algjörlega óraunhæfar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
SKIPULAGSMÁL Hugmyndasam-
keppni um framtíðarskipu-
lag gamla hafnarsvæðisins í
Reykjavík var formlega opnuð
um síðustu helgi. Heildarverð-
laun nema fjórtán milljónum
króna.
Markmið keppninnar er að
draga fram hugmyndir sem
sameina mismunandi þætti,
meðal annars gömlu höfnina
sem hluta miðbæjarins, vernd-
un sögu og minja og hugsan-
legar landfyllingar og íbúðar-
byggð.
Samkeppnin er opin fagaðil-
um, sem skila inn hefðbundn-
um heildstæðum skipulagshug-
myndum, og almenningi sem
getur skilað inn hugmyndum og
ábendingum með ýmsu sniði.
Skilafrestur tillagna til
keppninnar er til 6. október.
Nánari upplýsingar er að finna
á faxafloahafnir.is. - kg
Samkeppni um hafnarsvæði:
Opin fagaðilum
og almenningi
HEILBRIGÐISMÁL Fjórða tilfelli
svínainflúensunnar svokölluðu
A(H1N1) hefur greinst á Íslandi.
Þar á í hlut kona á miðjum aldri.
Allt bendir til þess að hún hafi
smitast af hjónum sem komu
hingað frá Bandaríkjunum 3. júní
síðastliðinn, að því er segir í til-
kynningu frá sóttvarnalækni og
Almannavörnum. Hjónin greind-
ust bæði með veikina.
Þetta síðasta tilfelli má því
rekja til smits hér innanlands,
en þeir þrír sem áður höfðu
greinst með inflúensuna hérlend-
is smituðust allir í Bandaríkjun-
um og veiktust eftir komuna til
Íslands.
Fulltrúar sóttvarnalæknis,
almannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra, heilbrigðisráðuneyt-
is og dómsmálaráðuneytis ræddu
stöðu mála á fundi í gærmorgun.
Í ljósi þess að Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin - WHO hefur lýst
yfir heimsfaraldri, og þar með
fært sig upp á neyðarstig, gild-
ir það sama hérlendis, eðli máls
samkvæmt. Þrátt fyrir það var
ákveðið að vinna áfram sam-
kvæmt hættustigi viðbragðs-
áætlunar hérlendis í ljósi þess
að veikin er yfirleitt væg, bæði
erlendis og hér. Er þetta einnig í
samræmi við skilning WHO.
- jss
Fjórða tilfellið af svínaflensu hefur greinst hér á landi:
Flensan smitast milli manna
SVÍNAFLENSAN Vænar birgðir af lyfjum
sem gagnast í heimsfaraldri inflúensu
eru til hér á landi.
DÓMSTÓLAR Kona á fertugsaldri
hefur verið dæmd í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir þjófnað.
Hún stal ýmsum varningi úr
Bónus að verðmæti á nítjánda
þúsund krónur. Úr Lyfju stal
hún snyrtivörum fyrir rúmlega
þrjú þúsund krónur.
Konunni hefur í nokkur
skipti verið gerð refsing vegna
umferðarlagabrota og fíkniefna-
brota. Í október var hún dæmd
í fimm mánaða fangelsi fyrir
þjófnað og fleiri brot. Hún rauf
nú skilorð vegna þess dóms.
Skilorðshlutinn var tekinn upp
og dæmdur aftur með brotunum
nú. - jss
Kona á fertugsaldri:
Fjórir mánuðir
fyrir þjófnað