Fréttablaðið - 13.06.2009, Qupperneq 16
16 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 37 Velta: 58 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
266 -1,41% 735 -0,80%
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANKI +0,41%
MESTA LÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ -30,0%
BAKKAVÖR -5,56%
ATLANTIC PETROL. -2,91%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,20 +0,00% ... Atlantic
Airways 164,00 -1,80% ... Atlantic Petroleum 500,00 -2,91% ...
Bakkavör 1,02 -5,56% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,70 -30,00% ... Føroya Banki 123,00 +0,41% ... Icelandair Group
4,60 +0,00% ... Marel Food Systems 53,00 -1,85% ... Össur 111,00
-0,89%
Fjármálaeftirlitið birtir á mánu-
dag ákvörðun sína um hversu lang-
an frest stjórnvöld, skilanefndir
og kröfuhafar gömlu bankanna fá
til þess að ljúka uppgjöri vegna til-
færslu eigna milli nýju og gömlu
bankanna.
Stefnt hefur verið að því að ljúka
uppgjörinu fyrir mánaðamót, en
fjármálaráðuneytið á í viðræðum
við skilanefndir bankanna og ráð-
gefandi fyrirtæki Morgan Stan-
ley og Hawkpoint. Á vettvangi
kröfuhafa og skilanefnda stendur
yfir áreiðanleikakönnun á verð-
mati eigna bankanna sem Pric-
eWaterhouseCoopers (PWC) innti
af hendi, en samkvæmt heimildum
blaðsins er búist við að sú vinna
haldi áfram út næstu viku.
Í punktum af fundi skilanefndar
Kaupþings með fulltrúum kröfu-
hafa sem birtir hafa verið á vef
nefndarinnar kemur fram að í
virðismatsskýrslu PWC sé stað-
fest að færðar hafi verið yfir til
nýju bankanna eignir sem betur
hefðu átt heima í þrotabúum gömlu
bankanna. Fyrr á árinu var upp-
lýst að eignir hefðu í einhverjum
tilvikum verið færðar aftur yfir
í þrotabú gömlu bankanna, en á
þeim tíma óttuðust sumir kröfu-
hafar að verið væri að skila verð-
lausum eignum.
Í punktum skilanefndar Kaup-
þings kemur fram að farið verði
yfir allar færslur sem tengist slík-
um eignum sem ekki hefði átt að
flytja yfir og uppgjör leiðrétt á
milli bankanna, en Fjármálaeft-
irlitið eigi eftir að staðfesta leið-
réttingarnar. - óká
Tímaáætlun vegna uppgjörs við gömlu bankana á að vera ljós eftir helgina:
Farið verður yfir tekjur af
eignum sem átti ekki að færa
Í SAL KAUPÞINGS Finnski bankasérfræðingurinn Kaarlo Jännäri hefur sagt áríðandi
að ljúka uppgjöri nýju og gömlu bankanna. Hann flytur hér erindi hjá Samtökum
fjármálafyrirtækja í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Föroya Banki og Eik Banki,
umsvifamestu bankar Færeyja,
hafa tekið yfir stjórn færeyska
olíuleitarfélagsins Atlantic Pet-
roleum.
Þetta fullyrðir danska dagblaðið
Berlingske Tidende.
Hlutabréf fyrirtækjanna þriggja
eru skráð hér og í Danmörku.
Í blaðinu segir að bankarnir
hafi gert tilkall til stjórnarsetu og
stjórnarformannsstóls eftir að þeir
framlengdu gjalddaga í byrjun vik-
unnar á brúarláni olíuleitarfélags-
ins til loka næsta árs. Þá geti fyr-
irtækið hvorki hreyft legg né lið
án samþykkis stjórnarmanna frá
bönkunum og lúti því í raun stjórn
þeirra. - jab
Stóru bankarn-
ir stýra olíuleit
Gengislækkun krónunnar undanfarið má að
hluta rekja til vaxtalækkana Seðlabankans,
en stór áhrifavaldur er skortur á skýrum
áætlunum nýrrar ríkistjórnar, meðal annars
í fjármálum hins opinbera. Þetta kemur fram
í nýju fréttabréfi Viðskiptaráðs Íslands.
Bent er á að gengi krónunnar standi nú í
ríflega 230 stigum, á svipuðum slóðum og
hún hafi verið áður en gjaldeyrishöft voru
sett á. „Nú virðist ljóst að höftin ein og sér
duga ekki til að stemma stigu við áframhald-
andi gengisveikingu og skapa því ekki for-
sendur fyrir styrkingu krónunnar. Þetta er
í samræmi við viðvaranir Viðskiptaráðs, en
ráðið hefur ítrekað bent á að höft væru ein-
ungis skammtímalausn sem kæmi ekki í stað
stefnumarkandi aðgerða og nýrrar framtíð-
arsýnar af hálfu stjórnvalda,“ segir í frétta-
bréfinu.
Áréttuð er nauðsyn þess að ný ríkisstjórn
leggi fram raunhæfa og trúverðuga áætlun í
ríkisfjármálum eins fljótt og kostur sé. „Slík
áætlun er ómissandi liður í að skapa framtíð-
arsýn hér á landi og þannig endurheimta trú-
verðugleika hagkerfisins,“ segir Viðskipta-
ráð. - óká
Á FUNDI Í MARS Fyrr á árinu hélt Viðskiptaráð morg-
unverðarfund undir yfirskriftinni „Sjálfstæð mynd í
fjármálakreppu“. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Höftin duga ekki ein og sér
Gengi krónunnar styrktist um 1,07
prósent á millibankamarkaði í gær
og endaði gengisvísitalan í 231,7
stigum. Vísitalan var í gær á svip-
uðum slóðum og á mánudag eftir
snarpan kúf um miðja vikuna.
Hæst fór vísitalan yfir 236 stig
innan dags á miðvikudag og ekki
varð ljóst fyrr en í gær að ótti
manna um frekari veikingu krón-
unnar vegna gjalddaga á ríkisbréf-
um í gær hefði verið ástæðulaus
í bili.
Velta með krónur á millibanka-
markaði var um þrefalt meiri en
á venjulegum degi og skýrist að
hluta af ívið meiri inngripum
Seðlabankans á gjaldeyrismark-
aði í því augnamiði að styðja við
krónuna.
Vaxtagreiðsla ríkisbréfanna á
gjalddaganum nam um þremur
milljörðum króna, sem búist er við
að fari fljótlega úr landi. Hert eft-
irfylgni Seðlabankans með gjald-
eyrishöftunum gerir það hins
vegar að verkum að fjárfestar
þurfa að sýna fram á að þeir hafi
átt ríkisbréfin í ár áður en hægt
er að senda fjármagnið utan. Slíkt
gæti tekið nokkra daga. - jab
Varði krónuna falli
SEÐLABANKINN Krónan styrktist í dag
og er hún nú á svipuðu gengi og á
mánudag eftir gengiskúf um miðja
vikuna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Rekstrarhagnaður bresku matvöru-
keðjunnar Iceland nam 112 milljón-
um punda, jafnvirði 23 milljarða
króna, á síðasta ári. Breska leik-
fangaverslunin Hamleys tapaði
hins vegar 2,7 milljónum punda,
jafnvirði 570 milljóna króna, á
sama tíma.
Afkomutölur verslananna voru
birtar í gær. Þær voru að stærst-
um hluta í eigu BG Holding, dótt-
urfyrirtækis Baugs í Bretlandi.
Skilanefnd Landsbankans tók hlut-
ina yfir.
Velta jókst hjá báðum verslun-
unum þrátt fyrir kreppu um nær
allan heim. Iceland-keðjan, sem
selur frysta matvöru á lágu verði,
blómstrar í kreppu og hefur verið
kölluð gullnáma eigenda sinna. Sala
jókst um sextán prósent sem er
fjórða árið í röð sem salan eykst, að
sögn breska blaðsins RetailWeek.
Skilanefnd Landsbankans hefur
stýrt hlutum Baugs í verslununum
síðan hún tók þá yfir í byrjun febrú-
ar. - jab
STOLTUR FORSTJÓRI Macolm Walker,
forstjóri Iceland-keðjunnar, kannast
ekki við kreppu í samtali við RetailWeek
í gær. Velta verslunarinnar jókst um
sextán prósent í fyrra.
Hagur fyrrum Baugsbúða vænkast
GAMLA
GENGIÐ!
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
VERÐDÆMI
GENGI
€170 kr.
TILBOÐSVERÐ
€117 kr.
Wilk S3 395TK 3.700.000 2.900.000
TEC 510TDF 4.870.000 3.860.000
Puccini 540E 5.880.000 4.390.000
Joint Z460 8.900.000 7.890.000
Eigum til örfá hjólhýsi og
húsbíl frá því í vetur á
gamla genginu!
Nánari upplýsingar um tilboð
á www.seglagerdin.is