Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 13. júní 2009 17
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur upp-
fært hagvaxtarspá sína fyrir næsta ár og
reiknar nú með 2,4 prósenta hagvexti á heims-
vísu í stað 1,9 prósenta.
Sjóðurinn gefur út heildarspána fyrir fund
átta umsvifamestu iðnríkja heims, sem hald-
inn verður í ítölsku borginni L’Aquila í júlí.
Borgin komst í heimsfréttirnar í apríl þegar
jarðskjálftar jöfnuðu heimili sextíu þúsund
íbúa hennar við jörðu.
Væntingar AGS eru þvert á spá Alþjóða-
bankans frá í fyrradag en hann telur samdrátt
á heimsvísu munu liggja nær þremur prósent-
um en þeim 1,7 prósentum sem hann reiknaði
með í spá sinni í mars.
Mun fjármálakreppan hafa dregið svo mjög
úr fjárfestingum og brennt upp svo mikið fjár-
magn innan hinna þróaðri hagkerfa að ólíklegt
sé að þau nái sér á næstu misserum.
Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal
segir mismuninn skýrast af því að AGS og
Alþjóðabankinn mæli mismunandi hagvísa.
Blaðið bendir á að fjármálaskýrendur telji
verstu hremmingarnar í alþjóðlegu efnahags-
lífi yfirstaðnar og vænta megi betri tíðar á
næsta ári. Bloomberg-fréttaveitan bætir því
við að japanska Nikkei-hlutabréfavísital-
an hafi endað í 10.135 stigum í gærmorgun
auk þess sem væntingar neytenda hafi auk-
ist nokkuð í Bandaríkjunum. Það glæði vonir
manna um að versta efnahagskreppa í manna
minnum sé í rénun.
Japanska vísitalan hefur verið á góðu skriði
síðan í mars og hafði í gær ekki verið hærri
síðan í byrjun október í fyrra, þegar fjármála-
markaðir voru að fara á hliðina í kjölfar gjald-
þrots bandaríska fjárfestingarbankans Leh-
man Brothers.
Haft er eftir japönskum sérfræðingum að
talsverðrar bjartsýni gæti á asískum mörkuð-
um um þessar mundir, ekki síst í kjölfar birt-
ingar hagtalna í Japan og Kína sem voru ívið
betri en almennt hafði verið búist við. - jab
FRAMKVÆMDASTJÓRI AGS Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
er bjartsýnni en fyrir tveimur mánuðum á horfur í
efnahagslífi þjóðanna á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
AGS spáir betri tíð í uppfærðri hagvaxtarspá
Eignarhaldsfélagið NP Hotels tap-
aði 22 milljónum danskra króna,
jafnvirði hálfs milljarðs króna, á
síðasta ári. Eiginfjárstaða félags-
ins er neikvæð um þrjá milljón-
ir danskra króna og hefur verið
gefið út að lánardrottnar muni
breyta hluta lána í hlutafé.
NP Hotels er dótturfélags
Nordic Partners. Það keypti
dönsku hótelin D‘Angleterre og
Kong Fredrik auk veitingastað-
anna Copenhagen Corner og Le
Coq Rouge í september 2007 en
fyrsta hótelið hefur um áratuga-
skeið verið kallað eitt djásna
Kaupmannahafnar.
Danski netmiðillinn Busin-
ess.dk segir í gær tapið tilkomið
vegna minni tekna og auk-
ins kostnaðar. Þá hafi félagið
afskrifað viðskiptavild sína.
Le Coq Rouge hefur nú verið
lokað og rekstur Hotel Front
verið leigður út.
Ekki náðist í Jón Þór Hjalta-
son, stjórnarformann NP Hotels,
þegar eftir því var leitað í gær.
- jab
Hálfur milljarður í tap í fyrra:
Nordic Partners
tapar á hótelum
HÓTEL D‘ANGLETERRE Félag í eigu Nord-
ic Partners er sagt hafa tapað hálfum
milljarði á dönskum hótelum.