Fréttablaðið - 13.06.2009, Qupperneq 34
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sigríður Björg Tómasdóttir, Roald
Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Forsíðumynd: Nordicphotos Getty Pennar: Gunnþóra
Gunnars dóttir, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Hrefna
Sigur jónsdóttir, Marta María Friðriksdóttir, Sólveig Gísladóttir
Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Jónsson
benediktj@365.is
Sólveig Gísladóttir
skrifar
Leikir fyrir unga og aldna Hressileg bók sem
ber heitið 10x10 leikir hefur verið endurútgefin og nú í
kilju hjá Forlaginu. Í henni eru hundrað leikir sem henta
ungum og öldnum og öllum þar á milli. Höfundurinn
Sóley Elídóttir er íþróttafræðingur og mikil áhugakona
um leiki. „Ég ólst upp á Akranesi og þar var mikið um
útileiki þegar ég var krakki. Ég rétt kom inn í hádegis-
mat og var svo farin út aftur,“ lýsir hún.
Leikjunum skiptir hún í nokkra í flokka, svo sem
afmælisleiki, boltaleiki, eltingaleiki, feluleiki, bílaleiki,
inni- og útileiki og meira að segja útileguleiki. Tíu leikir
eru í hverjum kafla og af því dregur bókin heiti sitt.
Hverjum leik er lýst í stuttum og greinargóðum texta.
Þar kemur fram hversu margir geta verið með,
heppilegur aldur þátttakenda, hvar best er að leika
leikinn og hvaða áhöld eru nauðsynleg. Margrét E.
Laxness skreytti bókina líflegum teikningum og
skýringarmyndum.
10x10 leikir kom út í kápu árið 2007 og seldist
upp. Kiljan er enn meðfærilegri og má fullyrða að
fáum muni leiðast í sumarfríinu með hana við
höndina. - gun
BÓKIN
Kunningi minn velti því fyrir sér um daginn hvernig heimurinn væri ef allir hegðuðu sér jafn hvatvíslega og lítil börn. Þessar vangavelt-
ur spunnust út frá því að ég sagði honum sögu af
stúlkunni minni litlu, rúmlega eins árs gamalli.
Við mæðgurnar eigum ávallt morgnana saman.
Pabbi gamli er þá farinn í vinnuna og við dúllum
okkur aðeins saman áður en við höldum út í umferð-
ina til dagmömmunnar. Einn morguninn stóðum við
saman inni á baði og móðirin var að tannbursta sig.
Barnið er hins vegar haldið þeirri ónáttúru að vera
algerlega tannlaust, orðið fjórtán mánaða. Til að
venja hana við fékk hún tannbursta að naga en það
þykir stúlkunni mikið sport. Móðirin var í mesta
sakleysi með munninn fullan af froðu og stírur í
augum þegar hún sá allt í einu útundan sér að litla
barnið hafði einhver óknytti í huga.
Þarna stóð sú stutta, búin að lyfta klósettsetunni
með annarri hendi og hélt hinni yfir skálinni
með tannburstann dinglandi yfir vatnsborðinu.
Varfærnis lega sagði þá móðirin: „Nei, nei, þetta er
ó, ó.“ En allt kom fyrir ekki, sú litla pírði augun og
horfði beint í augu móður sinnar þegar hún lét tann-
burstann falla í klósettvatnið með smelli.
En erfitt er að reiðast svona skottum og jafnvel
enn erfiðara að fara ekki að hlæja yfir þessum
uppátækjum sem yfirleitt má rekja til forvitni og
hvatvísi. Þetta er jú tíminn þegar hvatvísin ræður
ríkjum enda hefur félagslega taumhaldið ekki náð
tökum á börnunum enn. Þau bara framkvæma. Ef
þau vilja vita hvernig hljóð verður til þegar glasi er
fleygt í gólfið þá er það gert. Ef þau langar í kexið
uppi á borði er bent og öskrað. Ef þau vilja komast
fram úr sófanum kasta þau sér fram af án tillits til
þess hvort þau muni meiða sig eða ekki. Mamma og
pabbi verða jú til bjargar, þau vita það.
Kannski verður þessi hvatvísi einnig til þess að
samskiptavandamál eru leyst á fremur einhæfan
hátt. Dóttir mín hefur þó ekki getað verið virkur
þátttakandi í þeim vandamálalausnum sem stundað-
ar eru af hinum börnunum í daggæslunni. Vegur þar
sterkt tannleysið enda erfitt að bíta
frá sér með berum gómunum. Hún
hefur hins vegar verið á hinum enda
þessara barnaerja sem snúast oft
um einfalda hluti eins og leikföng
eða stútkönnur. Oftar en einu sinni
hefur hún snúið heim með bitför,
meðal annars á höndum og jafnvel
augabrún. Henni hefur þó ekki
orðið meint af og von for-
eldrana lifir enn að hún
geti brátt bitið frá sér
eins og öll önnur börn.
Af hvatvísi og forvitni
Golf er vissulega góð fjölskyldu-íþrótt, í því er svo mikil útivera,“ segir Hulda Birna Baldursdóttir, sem stundar golf ásamt þremur
börnum og eiginmanni sínum, Einari Erni
Jónssyni. „Við þurfum reyndar að fara í
tveimur hópum vegna þess að við erum
orðin svo mörg.“
Börnin Mikael, Baldur og Margrét
eru á aldrinum þriggja til átta ára og
eru áhugasöm um golfið. „Áhugi þeirra
er reyndar misjafn. Við foreldrarnir og
strákarnir höfum brennandi áhuga, og
Margrét sem er elst, er öll að koma til.
Núna langar hana mest í bleikt golfsett
og er dugleg að fara með mér á golfvöll-
inn.“
Hulda Birna segist hafa byrjað að
stunda golf árið 2003 þegar Margrét var
eins og hálfs árs og Baldur sjö mánaða.
„Svo lagðist golfveiran alveg á mig og ég
komst í afrekshóp GKG tveimur árum
seinna. Eftir það varð ekki aftur snúið
og þá þurfti ég að koma börnunum í þetta
líka,“ segir hún og bætir við
að golfið taki auðvitað tíma
og því sé skemmtilegt að hafa
alla fjölskylduna með.
Hulda Birna segir að yngsti
sonurinn, Mikael, sem er
þriggja ára, sé duglegur á golf-
vellinum. „Þegar við Mika-
el fórum síðast í golf bar ég
hann á bakinu milli hola því
hann er svo lítill. Hans golf
í dag er þannig að hann er
með pútterinn og stillir kúl-
unni upp tuttugu sentimetra
frá holunni.“
Þegar Hulda Birna er
innt eftir því hvernig sé að
hafa jafn ung börn og þau
Einar Örn eiga á golfvell-
inum segir hún það vera
æðislegt. „Ég hef rosa-
lega gaman af þeim og þeim
finnst þetta gaman. Við fórum
einmitt í golf í gær og litli
strákurinn vildi ekki fara heim þegar
hringurinn var búinn,“ upplýsir hún
hlæjandi.
Mikael virðist hafa fengið
golfáhugann með móðurmjólk-
inni því Hulda Birna spilaði meira
og minna alla meðgönguna. „Ég
spilaði síðasta hringinn þegar
það voru þrjár vikur í að ég ætti
Mikael. Við unnum einmitt síð-
asta mótið mánuði áður en hann
fæddist. Í verðlaunaafhending-
unni var það nefnt hvort sigur-
inn væri svindl því við værum
eiginlega tvö að vinna.“
Hulda Birna segir marga
velta því fyrir sér hvernig þau
hjónin hafi tíma til þess að
stunda golfið af svo miklu kappi
sem þau gera og hvort þau þurfi
ekki að bíða þar til börnin verði
stór. „Við viljum það ekkert. Ég
mæli með því að taka börnin með
í golfið.“ - mmf
Ákváðum að bíða ekki
þar til börnin yrðu stór
Stórir og smáir fjölskyldumeðlimir fimm manna fjölskyldu úr Reykjavík hittast allir á golfvellinum til þess
að eiga tíma saman, stunda útivist og iðka áhugamálið sem þeir eiga allir sameiginlegt.
Fjölskyldan Fjölskyldumeðlimir iðka golfið saman en þurfa nú að fara í tveimur hópum á völlinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGAR
20% afsláttur
til 16. júní