Fréttablaðið - 13.06.2009, Page 38
Eins og nafnið ber með sér er nor-
rænn blómadagur haldinn á sama
tíma á öllum Norðurlöndunum.
Hér á landi er hann tileinkaður
villtum íslenskum jurtum.
Fræðslugöngur eru fimmtán á
öllu landinu. Ein þeirra verður í
Búrfellsgjá á Reykjanesi í fylgd
Evu G. Þorvaldsdóttur grasa-
fræðings. Blómplöntur verða
skoðaðar og skráðar, auk þess
sem sýnt verður hvernig þær eru
greindar eftir plöntulyklum. Gott
er að hafa plöntuhandbók með-
ferðis.
Brottför verður frá aðal-
inngangi Grasagarðsins í
Laugardal, beint á móti Húsdýra-
garðinum. - gun
Dagur hinna
villtu blóma
Norrænn blómadagur er á morg-
un með villtar jurtir í öndvegi.
Blóðberg er bæði skraut- og nytjajurt.
SÖGUSAFNIÐ Í PERLUNNI er opið alla daga í sumar
frá 10 til 18. Þar er fjallað um nokkur afdrifarík augnablik
Íslandssögunnar en persónurnar, sem búnar eru til úr silíkoni,
eru ótrúlega raunverulegar. www.sagamuseum.is
Yngri kynslóðinni verður boðið frítt á hestbak í Viðey
bæði í dag og á morgun milli klukkan 12 og 17 því þægir
hestar frá Laxnesi í Mosfellsdal hafa verið fluttir út í eyju
til að gleðja mann og annan. Einnig verður hoppkastali
á svæðinu og Svali í boði meðan birgðir endast. Léttar
veitingar verða seldar í Viðeyjarstofu á sanngjörnu verði,
eins og það er orðað í fréttatilkynningu, meðal annars
verða grillaðar pylsur þar úti fyrir.
Tilboð fyrir þessa helgi hljóðar upp á ferjugjald, pylsu
og gos á 1.400 krónur fyrir fullorðna og 800 fyrir börn.
Ferjugjald án veitinga er 1.000 fyrir fullorðna og 500 fyrir
börn á aldrinum 7-18 ára en frítt fyrir yngri.
Viðeyjarferjan gengur frá Skarfabakka í Sundahöfn á
klukkutíma fresti milli 11.15 og 19.15 og frá gömlu höfn-
inni í Reykjavík, Ægisgarði, fer hún klukkan 12.
Hestahelgin er liður í því að skoða möguleikann á að
vera með hestaleigu í Viðey í framtíðinni. - gun
Hestahelgi í Viðey
Í VIÐEY ER ÞESSI HELGI TILEINKUÐ ÍSLENSKA HESTINUM.
Hestahelgi er hafin í Viðey og léttar veitingar verða seldar í
og við Viðeyjarstofu.
„Hátíðin er dagur fyrir börn, þar
sem þau eru í forgrunni. Unnið er
að menningarmálum fyrir börn og
með börnum,“ segir Pétur Kristj-
ánsson, skipuleggjandi Karlsins í
tunglinu.
„Við höfum reynt að fá til okkar
reynda listamenn. Í dag kemur
Aðalheiður Eysteinsdóttir og leið-
beinir í listasmiðjunni. Hún smíð-
ar spýtuskúlptúra en er reyndar
mjög fær listmálari líka. Skralli
trúður kemur og fiðlari nokkur,
sem gengur um og spilar á fiðlu og
talar við fólk,“ upplýsir Pétur.
Þegar Pétur er inntur eftir
því hvernig listasmiðjan gengur
fyrir sig segir hann börnin mæta
á svæðið og byrja að vinna. „Sá
sem veitir listasmiðjunni forstöðu
hverju sinni hefur sinn háttinn
á því hvernig dagurinn er upp-
byggður. Sumir byrja á að útskýra
eitthvað verkefni en aðrir hvetja
börnin áfram með sameiginlegri
þátttöku.“
Pétur segir að Karlinn í tunglinu
sé kominn í hálfgerða sjálfstýringu
vegna þess hversu oft hann hefur
verið haldinn. „Það eru mörg börn
sem hafa komið svo oft að þau fara
bara beint að vinna. Þau sem koma
ný hrífast með. Þetta er eins og
að fara niður á baðströnd í sólar-
landi, þar eru sandkastalar og fólk
að leika sér en engin sérstök nám-
skeið eru haldin fyrir börnin.“
„Yfirleitt mæta fjölskyldur
saman,“ útskýrir Pétur og bætir
við að Karlinn í tunglinu sé fyrir
öll börn, sama á hvaða aldri þau
eru.
Karlinn í tunglinu hefst í Herðu-
breið á Seyðisfirði klukkan 10 og
er dagurinn ókeypis fyrir alla.
martaf@frettabladid.is
Líkt og á sólarströndinni
Fiðlari, Skralli trúður, listasmiðja fyrir börn og skemmtiatriði verða á boðstólum í Herðubreið á Seyðis-
firði í dag þegar menningardagur barna, Karlinn í tunglinu, verður haldinn hátíðlegur í tólfta skipti.
Listakonan Aðalheiður Eysteinsdóttir heldur listasmiðju fyrir börn á Karlinum í tungl-
inu í dag. MYND/PÉTUR KRISTJÁNSSON
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
TAKTU BETRI MYNDIRTAKTU YNDIR
SÖLUSTAÐIR
Handbók fyrir byrjendur stafrænnar ljósmyndunar.
Bókin er skrifuð fyrir eigendur
Canon EOS 400D. Í henni er
farið yfir allar helstu stillingar
Canon EOS myndavéla og þær
útskýrðar. Einnig er fjallað um
helstu atriði varðandi almenna
ljósmyndun við mismunandi
aðstæður og úrvinnslu mynda.
Bókin nýtist því einnig eigendum
annarra stafrænna myndavéla.
Bókin fæst í Pedromyndum, Nýherja, Beco og verslunum Eymundsson.
Einnig er hægt að panta bókina á heimasíðu okkar www.pedromyndir.is.
VERÐ KR. 3.990,-
TILVAL
IN GJÖ
F
FYRIR
ALLA
ÁHUGA
LJÓSM
YNDAR
A
www.pedromyndir.is
MATURMATUR
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Ný sending
Skór & töskur
OG FLYTJUM Í FÁKAFEN 9