Fréttablaðið - 13.06.2009, Page 60
36 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
Hvers konar tónlist ert þú að fást við? Ég
spila „comedy-rock“ með hljómsveitinni
minni Skelkur í bringu.
Hvenær varstu hamingjusamastur ? Akk-
úrat þessa dagana.
Ef þú værir ekki tónlistarmaður hvað
myndirðu þá vera? Eigandi plötufyrirtæk-
is eða kannski flugmaður. Mig langaði rosa
mikið að vera flugmaður þegar ég var lít-
ill og fattaði um daginn að mig langaði það
enn þá.
Hvað er það dýrasta sem þú hefur nokkurn
tímann keypt þér?
Örugglega fartölvan mín. En þegar ég var
þrettán keypti ég „mini-disc“-spilara fyrir
fermingarpeninginn minn, sem mér fannst
vera rosalega dýr. Og hann eyðilagðist eigin-
lega strax. Svo ég keypti annan. Hann eyði-
lagðist líka.
Hvað er það versta sem nokkur hefur sagt
við þig? Að ég væri hálfviti. Ljótt.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík hvar mynd-
irðu vilja búa? Barcelona. Eða jafnvel
París.
Uppáhaldstónlistarmaður/kona og af
hverju? Sem trommari, er uppáhaldstrommu-
leikarinn minn Greg Saunier í Deerhoof.
Hann er ótrúlegur. Annars er mjög erfitt
að velja. Scott Walker, Jonny Greenwood og
Thurston Moore koma allir til greina líka.
Draumahelgin þín í einni setningu?
Draumahelgin myndi vera að tjilla ógeðslega
mikið með kærustunni minni á Indlandi. Við
myndum borða virkilega sterkan mat og fara
svo að sjá Pavement spila í Taj Mahal. Að
sjálfsögðu myndum við gista á sex stjörnu
hóteli.
Hvert er versta starf sem þú hefur nokk-
urn tímann gegnt? Pitsusendill hjá Reykjavík
Pizza Company. Vá hvað það var leiðinlegt.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörðunni?
Other Music í New York. Ég gæti eytt mörg-
um sólarhringum þar inni.
Hvers konar tónlist hefur mest áhrif á þig
og á hvaða lag hlustar þú mest í dag? Það
er held ég ekkert sem stendur upp úr. Það
er rosalega skemmtileg tónlist að koma út á
þessu ári og vil ég sérstaklega benda á það
sem er að gerast hjá útgáfunni In The Red.
Ef þú ættir tímavél, hvert myndirðu fara
og af hverju? Ég myndi fara til New York
árið 1977 og fylgjast með uppvexti No-Wave
senunnar. Fara á ógeðslega marga kúl tón-
leika.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér vöku á
nóttunni? Hroturnar í sjálfum mér valda
miklum usla.
Ef þú gætir breytt einhverju í fortíð þinni,
hvað myndi það vera? Ég hefði teiknað meira
og lært að spila fyrr á gítar.
Hvenær fékkstu síðast hláturskast? Örugg-
lega um þarsíðustu helgi þegar ég og tveir
félagar vorum að finna mismunandi sniðug-
ar leiðir til að stafa orðið SNILLD. Besta
stafsetningin að mínu mati var S.P.A.U.G.
S.T.O.F.A.N. SNILLD.
Áttu þér einhverja leynda nautn? Alls ekki.
Allar mínar nautnir eru vel sýnilegar.
Uppáhaldsbókin þessa stundina? Sudoku-
bókin mín.
Hvaða núlifandi manneskju lítur þú mest
upp til? Stráks sem heitir Dagur sem býr í
næstu íbúð, hann spilar golf og er almennt
flottur alltaf.
En hvaða núlifandi manneskju þolirðu
ekki? Annan strák sem heitir Dagur og er
alltaf að taka húfuna mína og láta á aðra.
Uppáhaldsorðið þitt? SNILLD
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna lífsgæði
þín? Að eiga stóra og fína íbúð. Með risavöxn-
um plötuskáp.
Hvaða lag á að spila í jarðarförinni þinni?
Pray Mode með Sudden Weather Change með
u.þ.b. 10 mínútna feedback-kafla í lokin.
Hver verða þín frægu hinstu orð? Djöfull
er ég búinn að tjilla mikið!
Hvað er næst á dagskrá? Í júlí kemur út
fyrsti geisladiskurinn með Skelk í bringu
sem á enn eftir að hljóta nafn, en svo ætla
ég að flytja til Boston í haust til að læra alls
konar um tónlistarbransann.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Pétur Eggertsson
STARFSFERILL Í HNOTSKURN: Vann mikið
fyrst hjá Hinu húsinu við sprell, en fór
svo að vinna fyrir hin ýmsu tónlistar-
fyrirtæki og tónlistarfólk. Núna vinn ég
fyrir Kimi Records en svo spila ég líka á
trommur.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐIST MARK-
VERÐAST Á ÞVÍ ÁRI: 1985 - Nintendo-tölv-
an kom í búðir.
Uppáhaldsorðið er snilld
Tónlistarmaðurinn Pétur Eggertsson starfar hjá Kimi Records og er að leggja lokahönd á fyrstu plötu sveitarinnar Skelkur í bringu sem
spilar svokallað „comedy rock“. Anna Margrét Björnsson tók hann í þriðju gráðu yfirheyrslu.
FYRSTI GEISLADISKUR HLJÓMSVEITARINNAR MEÐ SKELK Í BRINGU
VÆNTANLEGUR Tónlistarmaðurinn Pétur Eggerz myndi eyða
draumahelginni á Indlandi og finnst ljótt að vera kallaður hálfviti.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/ A
N
TO
N
■ Á uppleið
Sunnudagsboð. Sunnudagar eru
svo oft til mæðu, hvernig væri að
bjóða vinunum eða systkinum í lang-
an hádegisverð og hafa það notalegt?
Gogoyoko-vefurinn. Playlistarnir á
þessari snilldarlegu íslensku síðu eru
frábærir.
Grísk jógúrt. Best
geymda leyndar-
málið í ísskápnum,
dásamlegt í kaldar
grillsósur eða með
hunangi og ferskum
ávöxtum í morgunmat.
Ástin. Sumarið er tíminn til að
skreppa út fyrir bæinn og verja róm-
antískri kvöldstund með elskunni.
■ Á niðurleið
Yfirpósaðar myndir á Facebook.
Fyrirsætumyndir sem prófílmyndir eru
skelfilega hallærislegar. Hvað ertu að
reyna að sanna?
Víðir kjólar við leggings. Sumar-
lúkk sem datt úr tísku fyrir tveimur
árum og er ekki klæðilegt.
Teknó. Er ekki nóg komið af sálar-
lausum dauðum takti á næturbúllum
borgarinnar?
Matjurtagarðar og
heimahannyrðir.
Allir komnir í þenn-
an pakka og þá
er það ekki smart
lengur.
MÆLISTIKAN