Fréttablaðið - 13.06.2009, Qupperneq 72
48 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Helgi Björnsson er að ræsa
hljómsveitina SSSól sem
hann líkir við Kröflu. Og
sér við Ferguson. Hann hef-
ur úr slíkri breidd að spila
að hann getur skipt inn á í
bandið eftir hentugleika.
„Það er búið að setja startkapla á
skrímslið. Ræsa Kröflu. Við erum
að taka upp nýtt efni,“ segir Helgi
Björnsson, söngvari SSSólar.
Fréttablaðið náði tali af Helga
í alveg banastuði í Stúdíó Sýr-
landi þar sem SSSól var að taka
upp nýtt lag. Viðtalið sveiflaðist
milli þess að Helgi svaraði blaða-
mannslegum spurningum og þess
að hann syngi hendingar úr þessu
nýjasta lagi sem verið var að taka
upp og heitir Fullorðinn en mein-
ingin er að það fari í spilun strax
í dag. Frumflutt í morgunþætti
Simma og Jóa á Bylgjunni í dag:
„Dansa frá mér allt vit,“ syngur
Helgi og upplýsir jafnframt að
þetta sé gamall texti úr smiðju
Davíðs Þórs Jónssonar við Stóns-
legan slagara eftir sig sjálfan.
Helgi fer ekki í grafgötur með
hvaðan áhrifin eru. „... á morgun
er ekkert samviskubit... Ég er full-
orðinn, ef mér sýnist fer ég út að
leika mér... Já, sko, þetta er alvöru
„rock’n’roll“. Ekkert bílasalavæl
eins og oft hefur heyrst á þessum
popplendum.”
Helgi er í essinu sínu í stúd-
íóinu og yfirlýsingaglaður eftir
því. Vogar sér jafnvel inn á jarð-
sprengjusvæði sem það að texti
lagsins fjalli meðal annars um
inngróið en óþarft samviskubit
nútímakarlsins. SSSól hefur verið
lengi að og Helgi er ánægður með
sitt band. Líkir sjálfum sér við
Ferguson stjóra Manchester Unit-
ed í þeim skilningi að hann búi
við slíka breidd afbragðs hljóð-
færaleikara að hann geti skipt
inná eftir þörfum. SSSól ætlar að
koma fram í Officeraklúbbnum í
kvöld og er að bóka gigg vítt og
breitt um landið. Njálsbúð 4. júlí
– sveitaball eins og þau voru best
fyrir tíu eða tuttugu árum. Þegar
fitjað er upp á því við Helga hvort
sveitaböllin tilheyri liðinni tíð
er það nánast eins og að spyrja
Þorstein frá Hamri hvort ljóðið
sé ekki örugglega dautt? „Þetta
hefur ekki brugðist í þau skipti
sem SSSól hefur poppað upp. Þá
streymir fólkið inn. Þó ekki sé búið
að taka mynd af hljómsveitinni
í níu ár. Fyrr en nú,“ segir Helgi
og hlær. En neitar því þó ekki að
vissulega hafi komið ákveðið bak-
slag í sveitaballamenninguna. „Ég
held jafnvel að þetta „meika´ða-í-
útlöndum“ hafi gert hinn íslenska
alþýðulistamann eitthvað feiminn.
Hann hafi farið inní sig í stað þess
að láta ljós sitt skína af festu og
einurð. En með breyttri fjárhags-
stöðu þjóðarinnar og fækkandi
utanlandsferðum hlýtur alþýðu-
listamaðurinn að fá aukna trú á
mátt sinn og megin... Ég þarf ekki
að biðja neinn um leyfi nema sjálf-
an mig,“ syngur Helgi Björnsson.
jakob@frettabladid.is
EKKERT BÍLASALAVÆL FRÁ SSSÓL
SSSÓL EKKI MYNDUÐ Í NÍU ÁR FYRR EN NÚ Mættir í Stúdíó Sýrland á gömlu rokkbomsunum til að taka upp nýtt efni sem stendur
á gömlum merg. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Þrír fyrrverandi meðlimir hljóm-
sveitanna New Order og Joy
Division hafa stofnað nýja hljóm-
sveit með gítarleikara Blur, Alex
James. Sveitin nefnist Bad Lieut-
enant og gefur út sína fyrstu
plötu í október. „Ég er mjög stolt-
ur af henni, þetta er mjög góð
plata,“ sagði söngvarinn Bern-
ard Sumner. „Það eru mikil gít-
aráhrif á henni enda eru þrír
gítarleikarar í hljómsveitinni.“
Bad Lieutenant ætlar í tónleika-
ferð síðar á þessu ári til að kynna
plötuna auk þess sem hún mun
spila á nokkrum tónlistarhátíðum
á næsta ári.
Stofna Bad
Lieutenant
NEW ORDER Þrír fyrrverandi meðlimir
New Order, sem hætti fyrir tveimur árum,
eru í hljómsveitinni Bad Lieutenant.
Yoko Ono, ekkja Johns Lennon,
var heiðruð fyrir æviframlag sitt
til tónlistarheimsins af breska
tímaritinu Mojo. Þetta eru fyrstu
tónlistarverðlaunin sem hún hlýt-
ur á ferli sínum. Yoko, sem hefur
hingað til verið gagnrýnd fyrir
að hafa valdið því að Bítlarnir
hættu, þakkaði Mojo fyrir hug-
rekki sitt. Á 41 ári hefur hún
gefið út 24 plötur, bæði ein og
með Lennon.
„Mér fannst frábært að koma
upp á svið og fá svona hlýjar mót-
tökur. Ég átti ekki von á því,“
sagði hún. Spurð hvað eiginmanni
hennar hefði fundist um þetta
sagði hún: „Hann hefði sagt: „Ég
sagði ykkur þetta“.“
Yoko Ono
verðlaunuð
Systkinin Sólveig og Páll Pálsbörn munu
í sumar bjóða ferðamönnum, erlendum
jafnt sem íslenskum, upp á ókeypis hjóla-
ferðir um miðbæ Reykjavíkur. Verkefn-
ið, sem hlotið hefur nafngiftina Crymog-
uide, er unnið í samstarfi við skapandi
sumarstörf Hins hússins. „Hugmyndin er
að kynna fyrir fólki sögu miðbæjarins á
annan hátt en hefur tíðkast hingað til. Við
fengum að láni Nova-hjólið og ætlar bróð-
ir minn að hjóla með ferðamenn um mið-
bæinn og fræða þá um Ásmundarsafn,
Hljómskálagarðinn og fleiri þekkta staði.
Páll er útskrifaður leiðsögumaður og er
vel að sér í sögu þessara staða,“ segir Sól-
veig en þau systkinin eru fædd og uppal-
in í Þingholtunum og þekkja svæðið vel.
Aðspurð segir hún nafnið vera tilvísun í
rit Arngríms lærða Jónssonar, Crymog-
æa, sem hann skrifaði sem svar við nei-
kvæðri umfjöllun um Ísland. „Tilgang-
ur Crymoguide er svipaður, við munum
leggja áherslu á fegurð og sögu mið-
bæjarins og sýna hann í jákvæðu ljósi.
Ferðamátinn er líka svolítið rómantískur
og gefur ferðamanninum aðra og nálæg-
ari sýn á bæinn en þegar ferðast er með
rútu.“ Upphafspunktur ferðanna er við
Hallgrímskirkju og lýkur þeim við Aust-
urvöll. Hver ferð tekur um tuttugu mín-
útur og er hægt að fá leiðsögn á ensku,
spænsku og íslensku. „Það komast tveir í
vagninn og við byrjum á fjórum til fimm
ferðum á dag á meðan Páll byggir upp
þol,“ segir Sólveig sem hvetur fólk ein-
dregið til að nýta sér ferðirnar og kynn-
ast miðbænum betur. -sm
Systkini hjóla með ferðamenn
PÁLL PÁLSSON Hjólar með fólk um miðbæ
Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
> Í BARNEIGNARHUGLEIÐINGUM?
Girls Aloud-söngkonan og X-factor dóm-
arinn Cheryl Cole er sögð vera í barn-
eignarhugleiðingum. Söngkonan er nú í
fríi í Nice í Suður-Frakklandi með eigin-
manni sínum, fótboltakappanum As-
hley Cole, en hann sleppti ferð með
liðsmönnum sínum til Las Vegas til að
komast í rómantískt frí með Cher-
yl. Hjónin eru sögð vera að reyna
að eignast barn, en litlu munaði að
þau skildu í fyrra eftir meint framhjá-
hald Ashleys.
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
156 / ÍSAFJÖRÐUR