Fréttablaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 13. júní 2009 53
Sjálfsvíg olli ekki dauða leikar-
ans Davids Carradine, sem fannst
látinn á hótelherbergi í Taílandi
fyrir skömmu. Fjölskylda hans
bað um að leikarinn yrði kruf-
inn í annað sinn til að útiloka að
hann hefði fyrirfarið sér og komst
læknirinn að fyrrgreindri niður-
stöðu.
Fjölskyldan þakkaði aðdáendum
hans fyrir stuðninginn á þessum
erfiðu tímum. „Við viljum þakka
öllum fyrir ást þeirra og samúð
vegna þeirra erfiðleika sem við
höfum gengið í gegnum,“ sagði
Keith Carradine, bróðir Davids.
„Þar til við fáum frekari niður-
stöður úr rannsókninni óskum við
eftir því að bróðir okkar, eigin-
maður, faðir, afi og langafi fái að
hvíla í friði og með reisn,“ bætti
bróðir hans Robert við.
David fannst nakinn inni í fata-
skáp með snúru um hálsinn og
kynfærin. Talið er að hann hafi
látist af völdum köfnunar eða
hjartaáfalls á meðan á kynlífs-
athöfn stóð. Enn á þó eftir að stað-
festa dánarorsökina.
Carradine lék í yfir hundrað
kvikmyndum á ferli sínum en var
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem
Kwai Chang Caine í sjónvarps-
þáttunum Kung Fu. Einnig lék
hann í Kill Bill-myndum Quent-
ins Tarantino. Hann var af mik-
illi leikara ætt en faðir hans, John
Carradine, og bræðurnir Bruce,
Keith og Robert voru allir leikar-
ar. David Carradine var að leika í
myndinni Stretch á Taílandi þegar
hann fannst látinn.
Carradine framdi ekki sjálfsvíg
DAVID CARRADINE Leikarinn David
Carradine framdi ekki sjálfsvíg eins og
einhverjir hafa haldið fram. MYND/AP
Fimmta plata hljómsveitarinnar
Múm nefnist Sing Along to Songs
You Don´t Know og kemur út 21.
ágúst. Tvö ár eru liðin síðan sú
síðasta, Go Go Smear the Poison
Ivy, kom út. Nýja platan, sem
þykir afslappaðari en síðustu
verk Múm, var að mestu tekin
upp á Íslandi en einnig í Finn-
landi og á Eistlandi. Múm er í
kjarnann skipuð þeim Örvari
Þóreyjarsyni Smárasyni og
Gunnari Erni Tynes. Þeir félagar
verða duglegir við tónleikahald
í sumar og spila meðal annars á
tónlistarhátíðum í Brighton og
Leicester í Englandi.
Nafn komið
á plötu Múm
MÚM Fimmta plata Múm nefnist Sing
Along to Songs You Don´t Know.
Stór útihátíð fyrir háskólanema
verður haldin í Hallgeirsey í
Austur-Landeyjum dagana 3.-
5. júlí. Nóg verður um að vera,
þar á meðal trúbadorakeppni,
brekkusöngur og blauthokkí, auk
þess sem hljómsveit leikur fyrir
dansi. Útihátíðin er orðin fastur
liður í félagslífi stúdenta og hafa
um fimm hundruð manns sótt
hana á hverju ári. Það er félag
verkfræðinema við Háskóla
Íslands sem skipuleggur hátíð-
ina og hvetur það alla háskóla-
nema, þar á meðal þá sem eru
ekki í HÍ, til að láta sjá sig.
Nánari upplýsingar má finna á
hallgeirsey.rokkar.com.
Stór útihátíð
háskólanema
ÚTIHÁTÍÐ Frá útihátíðinni í Hallgeirsey í
Austur-Landeyjum í fyrra.
Audio Improvement gefur á mánu-
dag út sína fyrstu plötu sem nefn-
ist Story Fragments. Hljómsveit-
in, sem var stofnuð fyrir tæpum
tveimur árum, er skipuð átta tón-
listarmönnum. Spila þeir tilrauna-
kennda hiphop-tónlist þar sem
ýmsum tónlistarstefnum er bland-
að saman.
„Við vorum alltaf bara tveir í
þessu, ég og Jói [Jóhannes Birgir
Pálmason]. Svo komu alltaf fleiri
og fleiri inn,“ segir Pan Thorar-
ensen. Í framhaldinu ákváðu þeir
að spila alla tónlistina með lifandi
hljóðfærum og rappa síðan yfir.
„Þetta er að mínu mati nokkuð
sem hefur aldrei áður verið gert á
Íslandi í hiphop-tónlist. Við erum
undir svolitlum áhrifum frá Buck
65. Hann hefur verið með svipaðar
pælingar í sinni tónlist,“ segir Pan.
Útgáfutónleikar vegna plötunnar
verða haldnir á Café Rosenberg á
mánudagskvöld klukkan 22 og er
enginn aðgangseyrir.
Fyrsta plata Audio
AUDIO IMPROVEMENT Hljómsveitin
gefur á mánudag út plötuna Story
Fragments.
1.999
Nýtt í
Skífunni Laugavegi · Kringlunni · Leifsstöð www.skifan.is
NÝ TÓNLIST The SIMS 3
1.999
2.399
19.
júní