Fréttablaðið - 13.06.2009, Side 78
54 13. júní 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Ólafur Haukur Gísla-
son, markvörður Vals, íhugar
þessa dagana tilboð frá norska
félaginu Haugaland. Tilboð félags-
ins er freistandi enda getur félagið
útvegað bæði honum og konu hans
vinnu en þau eru atvinnulaus og
þurfa að sjá fyrir sjálfum sér og
tveim börnum.
„Eðlilega er þetta fýsilegur kost-
ur þar sem félagið getur tryggt
bæði mér og konunni vinnu. Þeir
gera mér tilboð upp á góða vinnu
og smá aukapening. Það má að
vissu leyti segja að kreppan sé
hugsanlega að reka okkur út en
við þurfum að sjá fyrir tveim
börnum og ég hef lítinn áhuga á að
vera hér heima á atvinnuleysisbót-
um,“ sagði Ólafur Haukur. Hann
var að ljúka viðskiptafræðinámi
frá Háskóla Íslands en þrátt fyrir
fína menntun er ekki mikla vinnu
að hafa hér heima.
„Auðvitað er staðan erfið fyrir
Valsmenn ef ég fer, þar sem Pálm-
ar fór í FH um daginn. Það er verið
að vinna í þessu og Valsmenn eru
að athuga hvort þeir geti aðstoð-
að mig með vinnu, sem er mjög
jákvætt. Því miður hefur það ekki
skilað neinu enn sem komið er,“
sagði Ólafur, sem er enn samn-
ingsbundinn Val. Valsmenn þurfa
að sleppa honum án greiðslu ef
hann á að geta farið til Noregs þar
sem félagið hefur ekki efni á að
greiða fyrir hann.
„Ég hef óskað eftir því við Vals-
menn að fá að fara án greiðslu. Ég
hef alla tíð verið í Val og vona að
þeir standi ekki í vegi fyrir mér.
Ég held að þeir muni ekki gera
það en það er ekki alveg sama við
hvern maður talar hjá félaginu,“
sagði Ólafur en heyrst hefur að
Valsmenn ætli sér að reyna að fá
gamla brýnið Roland Eradze til
félagsins fari svo að Ólafur fari
til Noregs.
Haugaland lenti í sjötta sæti í
norsku úrvalsdeildinni í fyrra og
ætlar sér stóra hluti á næstu árum.
„Þetta er ágætis lið sem stefnir
hátt. Það er að byggja nýja höll og
stefnan er að komast í hóp þriggja
bestu liða landsins sem fyrst. Liðið
er ungt og hefur verið í efstu deild
í þrjú ár. Ég fór þarna út í síðustu
viku og leist ágætlega á aðstæður,“
sagði Ólafur Haukur að lokum.
henry@frettabladid.is
Markvarðalausir Valsarar?
Ólafur Haukur Gíslason, markvörður Valsmanna, er hugsanlega á förum til
Noregs. Norska úrvalsdeildarfélagið Haugaland hefur gert Ólafi tilboð og getur
tryggt honum og konu hans vinnu. Fari Ólafur eru Valsmenn markvarðalausir.
FJÖLSKYLDAN Í FYRIRRÚMI Ólafur Haukur setur fjölskylduna í fyrsta sætið og þess
vegna gæti hann verið á förum til Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Manuel Pellegrini, þjálf-
ari Real Madrid, hefur greint frá
því að ekkert þak sé á því hversu
marga leikmenn félagið ætli sér
að kaupa í sumar.
Real er þegar búið að kaupa
Kaká og hefur Manchester Unit-
ed tekið tilboði félagsins í Cristi-
ano Ronaldo.
Framherjinn David Villa hjá
Valencia er sagður næstur á
óskalistanum hjá Real og Arsen-
al-maðurinn Gael Clichy hefur
einnig verið orðaður við Real.
„Við höfum ekkert ákveðið
hvað við ætlum að kaupa marga
leikmenn. Við erum aðeins að
reyna að koma saman samkeppn-
ishæfum leikmannahópi. Við
erum að keppa á þrennum víg-
stöðvum næsta vetur og viljum
vinna allar keppnir,“ sagði Pell-
egrini.
„Ég myndi helst ekki vilja
ræða leikmenn sem gætu hugsan-
lega komið til félagsins í framtíð-
inni. Það væru einungis vanga-
veltur. Í sannleika sagt eru til
margir góðir knattspyrnumenn
sem gætu gengið til liðs við Real
Madrid.“ - hbg
Kaupæðið heldur áfram:
Fleiri á leið til
Real Madrid?
KAUPÆÐI Pellegrini og Perez leggja á
ráðin um næstu kaup. NORDIC PHOTOS/GETTY
GOLF Tiger Woods vonast til þess
að verja titil sinn á Opna banda-
ríska meistaramótinu í golfi sem
hefst í næstu viku en Woods vann
þar eftirminnilegan sigur í fyrra
þegar hann var meiddur á hné.
Woods fór svo í uppskurð eftir
mótið og var frá keppni í um átta
mánuði en er allur að komast
aftur á skrið. Hann sneri aftur í
febrúar og vann strax á Arnold
Palmer-mótinu og um síðustu
helgi vann hann Memorial-meist-
aramótið.
„Það er alltaf gott að spila vel
stuttu fyrir stórmót eins og Opna
bandaríska meistaramótið. Þetta
gefur mikið sjálfstraust. Það er
samt sem áður langur vegur til
stefnu,“ segir Woods.
Woods eltir enn met Jack Nick-
laus sem hefur unnið átján stóra
titla á ferli sínum en Woods er
kominn með fjórtán stóra titla og
stefnir á þann fimmtánda í næstu
viku. - óþ
Styttist í Opna bandaríska:
Tiger Woods er
klár í slaginn
SIGURSTRANGLEGUR Tiger Woods mun
reyna að verja titil sinn í næstu viku.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Um fátt annað hefur
verið rætt síðustu tvo daga en
yfirvofandi kaup Real Madrid á
Cristiano Ronaldo frá Manchest-
er United fyrir 80 milljónir
punda. Fjölmiðlar um allan
heim hafa fjallað um málið
og mátti sjá margar skraut-
legar fyrirsagnir í heim-
spressunni.
Þó það hafi ekki verið
formlega tilkynnt þykir
fullvíst að Ronaldo
muni fá treyju númer
níu hjá Real Madrid.
Hann hefur verið
með sjöuna á bak-
inu hjá Manchester
United en það númer
er upptekið hjá Real
Madrid. Sjálfur fyr-
irliðinn, hefur verið
númer sjö í langan
tíma.
Argentínumaður-
inn Javier Saviola fékk
níuna hjá Real Madrid
þegar hann kom þangað
fyrir tveimur árum. Hvort
sem hann fer frá félaginu eða
ekki þykir nokkuð ljóst að Ron-
aldo fái númerið hans.
Það eru margir mánuðir síðan
Ronaldo lét skrásetja bæði vöru-
merkin CR7 og CR9. Það er
aðeins ein af fjölmörgum
vísbendingum um að þessi
félagaskipti hafi staðið til í
langan tíma.
Spænsk dagblöð brugðust
misjafnalega við frétt-
unum í gær. Marca
sagði þetta kaup ald-
arinnar en aðrir fjöl-
miðlar sögðu kaup-
verðið í engum
tengslum við raun-
veruleikann.
En Los Angeles
Times fann aðra
hlið á málinu.
„Hárgelsiðnaður-
inn í norðvestur-
hluta Englands
varð fyrir gríð-
armiklu áfalli á
fimmtudaginn.“
- esá
Mikið rætt og ritað um Cristiano Ronaldo í gær:
Fær treyju númer níu
> Guðjón leitar að aðstoðarmanni
Guðjón Þórðarson er nú að leita sér að aðstoðarmanni
en fram kom í enskum fjölmiðlum í gær að Dave Kevan
hafnaði tilboði enska D-deildarliðsins Crewe
um að gerast aðstoðarþjálfari Guðjóns hjá
félaginu. Guðjón og Kevan störfuðu saman
hjá Stoke á sínum tíma en sá síðarnefndi
er nú á mála hjá Notts County og vill
ekki fara þaðan. Fullyrt er í frétt BBC
um málið að Guðjón muni nú snúa
sér að Steve Davis, knattspyrnustjóra
utandeildarliðs Nantwich.
Skagamaðurinn Stefán Þór Þórðarson hefur ákveðið að svara
neyðarkalli frá sínu gamla félagi IFK Norrköping og leika með
liðinu í júlí og ágúst en sænska b-deildarfélaginu hefur ekki
gengið sem skyldi á yfirstandandi leiktíð. Félagið er í tólfta
sæti af sextán liðum og nokkuð er um meiðsli í herbúð-
um félagsins auk þess sem fjárhagsstaðan er slæm.
„Félagið á bara í miklum vandræðum og ég ætla
að gera mitt besta til þess að hjálpa til. Þetta eru
allt saman strákar í liðinu sem ég þekki og hef spil-
að með og sama gildir um fólkið í kringum félagið.
Það hefur gengið illa hjá félaginu eftir fallið á síð-
asta tímabili og núna eru vandræði með meiðsli
á framherjum og því leituðu þeir til mín. Peningar
hafa ekkert með það að gera að ég sé að fara
þarna út,“ segir hinn 34 ára gamli Stefán Þór.
Það kemur ekki á óvart að IFK Norrköping hafi
leitað til Stefáns Þórs en hann er sannkölluð
goðsögn hjá félaginu og þegar hann hætti að
spila í Svíþjóð var treyjan hans númer 18 til að
mynda hengd upp í virðingarskyni við kappann. Stefán Þór skor-
aði 23 mörk í b-deildinni fyrir félagið á þremur keppnistímabilum
á árunum 2005-2007 og átti á lokatímabili sínu með félaginu
stóran þátt í því að það komst upp í efstu deild. Stefán Þór segist
vissulega finna fyrir smá pressu að koma aftur inn í þetta en
það sé bara góður hlutur.
„Það er alltaf pressa og það er það sem maður getur ekki
slitið sig frá. Spennufíknin við að vera með fólkið á bakinu
og að það ætlist til þess að maður geri eitthvað,“ segir
Stefán Þór.
Stefán Þór segir þó afar ólíklegt að hann haldi áfram
að spila þegar hann komi heim aftur.
„Þegar ég kem heim aftur þá er ég bara búinn. Ég
hugsa að ég geri ekkert meira eftir þetta. Ég er einn af
þeim sem eru að reyna að hætta, en það gengur ekk-
ert allt of vel. Mér finnst ég endalaust vera að segjast
vera hættur en þetta er bara svona og ég veit að það
lenda margir fótboltamenn í þessu,“ segir Stefán Þór
að lokum.
STEFÁN ÞÓR ÞÓRÐARSON: HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ SKRIFA UNDIR TVEGGJA MÁNAÐA SAMNING VIÐ IFK NORRKÖPING
Er að reyna að hætta, það gengur bara ekki vel