Fréttablaðið - 13.06.2009, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
Í dag er laugardagurinn 13. júní,
164. dagur ársins.
3.00 13.28 23.57
1.49 13.12 0.40
595,-
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Rannsóknir benda til að einn algengasti ofbeldisverknað-
ur hér á landi sé heimilisofbeldi.
Samkvæmt þeim niðurstöðum ætti
hvert okkar að þekkja þó nokkuð
marga sem orðið hafa fyrir þess
konar ofbeldi. Af hverju svo er
ekki ætti að segja okkur aðra sögu
– þá sögu, sem sönn er, að um leið
er þetta eitt besta falda leyndar-
mál hvers heimilis.
SÉRHVERT okkar getur hjálpað
til við að færa þetta ástand til betri
vegar. Það er ástæða fyrir því að
vandamálið er falið. Við sjáum það
í hverju ofbeldismálinu á fætur
öðru þar sem konur reyna að koma
fram og segja frá því ofbeldi sem
þær urðu fyrir undir nafni. Ger-
endur grípa aftur og aftur til þess
sama. Konurnar eru kallaðar geð-
veikar. Lygnar. Móðursjúkar. Þol-
endur leggja æru sína undir fari
þeir fram með frásögn.
NÝLEGT dæmi sáum við í Sjálf-
stæðu fólki þegar þolandi kynferð-
isofbeldis sagðist hafa á endanum
flúið land eftir að hafa komið fram
með mál sitt. Það er eitt að verða
fyrir miklu ofbeldi. Það er langt
ferli að vinna úr ofbeldi, viður-
kenna það fyrir sjálfum sér, segja
frá því og sætta sig við það. Ger-
endur í þessum málum, sem sjaldn-
ast viðurkenna sök, eiga mun fljót-
legra verk fyrir höndum – að grípa
til velþekktra klisja – um að konan
sé snar. Samkvæmt fagaðila sem
unnið hafa með heimilisofbeldi –
er slíkt einn algengasti mótleik-
urinn.
KONUR hafa verið hvattar til að
stíga fram og segja frá ofbeldi sem
þær hafa orðið fyrir. Láta það ekki
líðast. Ég spyr mig hvort ekki þurfi
að vinna þetta á breiðari grund-
velli – alls samfélagsins. Ef við
viljum fá konur til að stíga fram
og segja frá þarf jarðvegurinn að
vera upplýstari. Það á ekki að vera
jafn áhættusamt verk fyrir konu
að koma fram og segja frá ofbeldi.
Við þurfum að snúa dæminu við og
hætta að refsa þeim konum sem
verða fyrir ofbeldi fyrir að þegja
það ekki í hel. Refsingin á að vera
til handa gerendunum.
ÞAÐ er því nauðsynlegt að byrja
á tveimur staðreyndum í þess-
um viðkvæmu málum. Gerendur,
sem ekki vilja gangast við að hafa
beitt ofbeldi á heimili, bera geð-
veiki og klikkun konunnar jafnan
fyrir sig. Hin staðreyndin er sú að
það er afar fátítt að konur ljúgi til
í svona málum. Og samkvæmt tals-
mönnum Kvennaathvarfsins koma
slík mál sjaldan upp.
Refsing handa
réttum aðila