Samvinnan - 01.02.1949, Síða 5
mörgu, sem ennþá hafa það aldrei
augum litið, en eru hins vegar áhuga-
samir fyrir þessu sem öðru varðandi
samtökin — þykir ekki vera út í loftið
að upplýsa lesendur SAMVINN-
UNNAR nokkuð í þessu efni. Má
vera, að ýmsum geti orðið það til fróð-
leiks, er beinlínis má að gagni koma
— jafnvel þótt á stóru sé stiklað — en
öðrum þá til gamans, og sumum e. t. v.
til hvort tveggja.
Þótt það kunni að festast í máli
starfsmanna SÍS o. fl. um stund a. m.
k. að tala um „gamla“ og „nýja“ húsið
— og það er engan veginn óeðlilegt —
er sannleikurinn samt sá, að vegna
sambyggingar húsanna, bæði hið ytra
og innra, má líka með sanni segja, að
enn sem fyrr sé húsið aðeins eitt —
„SAMBANDSHÚSIÐ" - en í annarri
mynd orðið, og miklu stærra.
-pvG MUN NÚ, lesari góður, segja
P i þér í höfuðatriðum frá því, hvað
fram fer á hverri hæð í núverandi hí-
býlurn SÍS, hver störf í aðaldráttum
eru unnin á heimili þeirra félagasam-
taka landsmanna, sem í flest horn hef-
ur að líta og hefur með höndum fjöl-
breyttasta starfsemi í þágu daglegs lífs
fólksins út um breiðar byggðir lands-
ins.
Til léttis skulum við strax ganga frá
örlítilli áætlun um tilhögun innan-
hússferðalags vors. Við byrjum í kjall-
arahæð og fetum okkur síðan hæð af
hæð unz við erum staddir efst. Fyrst
tökum við alltaf eldri hluta hússins —
á hvaða hæð, sem er — en síðan nýbygg-
inguna.
Fyrst má gjarna geta þess að eins og
Fjarritvél SÍS er nýtízkuleg. Tugir simskeyta
fara daglega i gegnum hana.
AfgreiSsla Útflutningsdeildar SÍS.
áður er aðalinngangur í bygginguna
um vestur- og austurdyr frá Sölvhóls-
götu. Er tilhögun innanhúss svo frjáls-
leg og góð, að í flestum tilfellum skipt-
ir ekki miklu máli, hvoru megin er
gengið inn, og aldrei þarf maður að
leita útgöngu aftur vegna villu, hvert
sem halda skal í allri byggingunni fyr-
ir ofan kjallara.
Kjallari:
Hvað getur þá að líta í gamla kjall-
aranum? Ef frá er tekið miðstöðvar-
herbergi og kytra vegna símasambands
hússins, hefir bókaútgáfufyrirtæki SÍS,
„Norðri“, lagt undir sig allt plássið.
Góðbókaraðir þekja alla veggi og auk
þess alhnikið hillikerfi á gólfum úti.
Og þetta húsnæði „Norðra“, svo gjör-
nýtt sem það er — getur samt ekki
orðið nema til bráðabirgða, að því,
er framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Al-
bert Finnbogason, tjáir okkur.
í þeim enda nýja kallarans, sem ligg-
ur fast að „Norðra“, er ennþá smíða-
verkstæði og starfar það til bráða-
birgða fyrir SÍS. Skjalageymsla nokkur
er og í vesturhluta sama enda, nokk-
urs konar „fornbókadeild" Sambands-
ins. Þá tekur við sunnar í miklum
hluta kjallarans, landbúnaðarlager
Véladeildar SÍS. Margt finnst nú þar,
en ýmislegt hvað þó vanta! Ótalin er
svo íbúð húsvarðar. Hún er í suðvest-
ur-kjallaranum.
1. hœð:
Sunnan gangs, að vestanverðu í
gamla húsinu, er húsnæði Fræðslu- og
félagsmáladeildar Sambandsins; tvær
stofur, sú stærri með sérstakri innrétt-
ingu fyrir blaða- og bókageymslu, enn-
fremur vörzlu verkefna Bréfskólans,
sem þarna hefur einnig afgreiðslu. Að
norðan hefur Véladeildin sínar bæki-
stöðvar, samtals 4 herbergi, og auk þess
eitt í nýbyggingunni á sömu hæð.
Vinna nú 9 manns í þessu húsnæði, en
vöxtur deildarinnar er ör, og telur
framkvæmdastjórinn, Agnar Tryggva-
son, að þess muni skammt að bíða, að
bagaleg þrengsli geri vart við sig.
Undirdeildir Véladeildar SÍS eru nú
orðnar 3: Landbúnaðardeild, Bifreiða-
deild og Rafmagnsdeild. — í suð-aust-
ur-horni er herbergi fyrir dyravörð og
litla „sendiherra"!
Að frátekinni þrískiptri stofu fyrir
póst og síma Sambandsins og áminnstu
herbergi Véladeildar, er öll 1. hæð ný-
byggingarinnar leigð Olíufélaginu h.f.
og Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi,
5