Samvinnan - 01.02.1949, Side 19
Frá itarfsemi brezka
heildsölusambandsins
TÓBAKSVERKSMICJA C. W. S. framleið-
ir vindlinga, vindla og reyktóbak. Sumt
a£ reyktóbakinu er framleitt á sérstakan hátt,
með það fyrir augum, að menn geti notað
það á svipaðan hátt og við íslendingar þekkj-
um „skro“. í námunum geta þeir ekki reykt,
vegna sprengingarhættu, þeir verða því að
tyggja tóbakið, ef þeir nota það á annað
borð.
Aður en framleiðslan hefst, er liráefnið
flokkað og sumt a£ því notað til vindlinga-
gerðar og annað í vindla og svo framvegis.
Þess ber þö að geta, að engin ein tóbaksteg-
und er notuð algerlega til að framleiða t. d.
vindlinga. Allar tegundir af vindlingum eru
úr blönduðu tóbaki. Verksmiðjustjórinn
komst svo að orði, að ef tóbakið væri ekki
blandað í vindlingunum, yrðu þeir eins leiði-
gjarnir og t. d. saltlaus grautur. Bragðið yrði
þá einhliða og þar af leiðandi leiðigjarnt.
Þegar flokkunin hefur farið fram, hefst
framleiðslan. Tóbakið fer í gegnum margar
vélar, öll óhreinindi eru lireinsuð burt, og
í það er bætt olíum og í sumt píputóbakið
er jafnvel bætt víni, að vísu mjög litlu. Vínið
gerir betri lykt, og er það eini tilgangur
þess. Allt. tóbakið er gufuhitað, sumt mjög
mikið cn annað minna. Um leið og það er
gufuhitað, er það pressað saman, og er sumt
af því í þungri pressu og gufuhita allt að
því 12 klukkustundir í einu. Vindlingatóbak-
ið er ekki pressað mikið, en gufuhitað, og
áður en það er tilbúið til að fara í þá vél-
ina, sem að lokum gerir tir því vindlingana,
er það þurrkað hæfilega mikið. Til gamans
er rétt að geta þess, að á hverri einustu
mínútu framleiðir verksmiðjan 1000 til 1100
stk. vindlinga, en auk þess margar tegundir
\'indla og reyktóbaks, eins og áður er sagt.
í sambandi við verksmiðjuna starfar rann-
sóknarstofa, sem einungis athugar, að allt sé
í góðu ástandi og lögum og reglum sam-
kvæmt, sem verksntiðjan framleiðir.
Verksmiðjan er ákaflega lireinleg, og er
lögð á það sérstök áherzla, að engin óhrein-
indi geti borist í framleiðsluvörurnar. Sjö-
hundruð manns vinna í verksmiðjunnni,
mestmegnis stúlkur.
Söluskrifstofur CWS. Skýringarmyndin er
á vinnuaðferðum söluskrifstofu CWS (Gro-
cery Saleroom) í mjög stórum dráttum. Mynd-
in þarfnast skýringar, og fara þær hér á eftir.
1. Þessi deild er að sjálfsögðu undirgefin
framkvæmdarstjórn CWS, eins og allar aðrar
deildir þess. En framkvæmdastjórnin notar
Jjessa deikl til að koma öllum þeim málum
áfram, sem hana varða. Sala allra verksmiðja
CWS er þáttur í starfsemi þessarar deildar.
Söluskrifstofan skipuleggur liana og hefur
samband við kaupfélögin um vantanir.
2. Eins og sagt er í lið eitt, fer sala verk-
smiðjanna á framleiðsluvörum öll fram á
vegum söluskrifstofunnar, sömuleiðis koma
allar kvartanir til verksmiðjanna frá sölu-
skrifstofunni, eins og vikið verður að í lið
nr. 4.
3. Söluskrifstofurnar annast allt sölumanna-
eftirlit og fylgjast með árangri hvers og eins
þeirra, og því kaupfélagi, sem þeir heim-
sækja, hvort þau auka eða minnka söluna á
framleiðsluvörum CWS, eða hvort þessi sala
dregst saman, og þá hvers vegna, of hörð
samkeppni, lélegt „effektivitet", eða ef til
vill að vörurnar reynast gallaðar.
4. Sölumennirnir koma saman í aðalstöðv-
um sínum og skila skýrslum, oftast einu
sinni í viku, og ræða þá um leið þau vanda-
mál, sem þeir hafa rekizt á í vikunni, sem
er að líða, sömuleiðis bera Jjeir fram allar
kvartanir við viðkomandi verksmiðjustjóra,
en Jjc-ir mæta venjulega á þessum fundum,
einn fyrir hverja verksmiðju í hvert skipti.
A þessum sameiginlegu fundum sölumann-
anna eru einnig ræddar nýjungar, eins og
til dæmis sjálfsafgreiðslusölubúðir og fleiri
tæknilegar nýjungar, sem þeir frétta af úti
í kaupfélögunum, hver segir frá því, sem
fannst markverðast í kaupfélögunum, sem
hann heimsótti. Síðan er unnið úr þessum
upplýsingum, Jteim safnað saman og það
markverðasta sent ýmsum þeim kaupfélög-
um, sem búast má við að ekki sé hægt að
heimsækja á næstunni. Ef um sérstaklega al-
mennar upplýsingar er að ræða, eru þær
stundum birtar í „Co-operative News“.
5. Það eru oft ýmsar vörur, sem CWS legg-
ur sérstaka áherzlu á að koma á markað, þá
cru sölumönnum sendar um það skriflegar
tilkynningar (Bulletin). Á hverjum hálfum
mánuði eru sölumönnunum einnig sendir
verðlistar, og eru þeir þá um leið áminning
fyrir sölumennina um það, hvað sé til af
vörum.
6. Sumir sölumannanna hafa mörg kaup-
félög á því svæði, sem þeim er falið að heim-
sækja, en aðrir færri, allt eftir því, hve þétt-
býl svæðin eru. Verksvið þeirra í þessum
heimsóknum er fyrst og fremst að sjá um,
að vörur CWS séu ekki látnar sitja á hak-
anum hjá hinum ýmsu kaupfélögum. En þar
að auki er sölumaðurinn að sjálfsögðu ör-
uggur tengiliður milli aðalstöðvanna og
kaupfélaganna í hinum ýmsu byggðum.
7. 8, 9, 10. í sjálfu sér er þetta einn og
sami liðurinn allt saman og sá liðurinn, sem
allir hinir hvíla á og eru háðir. Þegar hingið
er komið sögunni sést, að jafnframt því sem
CWS kemur hugmyndum sínum og vörum
á framfæri með sölumönnunum, eins komast
hugmyndir kaupfélagsins, meðlimanna, til
þess. En einmitt þetta er brennipunktur
þessa skipulags. B. Þ.
19