Samvinnan - 01.02.1949, Qupperneq 23
Skip Sambandsins á Akureyri
Um mánaöamótin febrúar—marz voru tvö skip Sambandsins á Akureyri aÖ
losa vörur til Kaupfélags Eyfirðinga. Við pað tœkifœri tók Edvard Sigurgeirs-
son Ijósmyndari pessa mynd fyrir Samvinnuna. ,,Hvassafell“ er við nyrðri
Torfunefsbryggjuna (t. v. á myndinni). Flutti pað sement o. fl. frá Dan-
mörku. Leiguskipið „Herma“ er við syðri Torfunefsbryggjuna (t. h.) að
losa kol frá Póllandi. í forgrunninn eru: Verzlunarhiís KEA og Hótel KEA.
s—. ■■■■ ~u
SVIPIR SAMTÍÐARMANNA
(Framhald af bls. 22.)
SÍÐAN kommúnistum tókst að búa örugg-
lega um sig í Yenan, hefur Chu Teh
horfið í skuggann í vitund almennings. En
sigrar kommúnistaherjanna að undanförnu
minna á kenningar hans og sýna skipulags-
snillina, sem að baki býr. Fyrir 20 árum
sagði hann við hinar óæfðu sveitir sínar i
Suður-Kína: „Teflið aldrei á tæpasta vaðið
í orrustu. Sækið heldur að óvinunum eins
og mýflugur, stingið þá, ærið og látið aldrei
í friði. Lokið flutningaleiðum þeirra, eyði-
leggið samgöngutækin, gerið þá þreytta og
mædda. Þá fyrst, er þér eruð sannfærðir um
yfirburði yðar, er kominn tími til þess að yfir
ljúki."
Stundar Chu Teh stríð af því að hann
elskar styrjaldir? Mikið af sigrum kommún-
ista hefur verið unnið með lævíslegu propa-
ganda meðal liðsmanna stjórnarinnar. Þegar
litið er yfir feril Chu Teh, virðist augljóst,
að honurn falli ekki létt að slátra löndum
sínum, jafnvel ekki þeim, sem berjast fyrir
kínversku stjórnina. Það er ekki ósennilegt,
að hann sé í hópi þeirra leiðtoga, sem gjarn-
an vilja binda endir á borgarastyrjöldina
með samningum. En eigi að síður er hann
og verður kommúnisti. Hann mun aldrei
gera neitt, sem hann telur óhagstætt þeim,
sem hann hóf baráttu fyrir, er hann sneri
baki við hóglífinu í Yunnan.
FLOGIÐ TIL MANNHEIMA
(Framhald af 'bls. 25.)
Maju langaði ekkert til að vita, hverju
hann svaraði stúlkunni. Hjarna hennar barð-
ist, eins og hún ætti hlutdeild í þeirri gleði,
sem stafaði frá manneskjunum.
„Nú hef ég séð hið dýrðlegasta á jörð,"
hvíslaði hún skjálfandi röddu, „sem augu
mín munu nokkru sinni líta. Ég veit nú,
að manneskjurnar eru fegurstar, þegar þær
unnast hugástum."
Hún vissi ekki, live lengi hún hafði
setið hljóð og niðursokkin í hugsun sína að
baki blaðanna. Þegar hún leit við, var ljós
eldflugunnar slokknað og álfurinn horfinn.
Þá sá hún út um laufskáladyrnar mjóa,
rauða ljósrák út við fjarlægan sjóndeildar-
hringinn.
í STUTTU MÁLI
(Framhald af bls. 2.)
fundi. Þannig er það ríkisvaldið, sem skipar
meirihluta stjórnarmeðlimanna. Hið saina
er upp á teningnum í svonefndu eftirlits-
ráði sambandsins. Hins vegar eru það ekki
þessar stjórnarnefndir, sem ráða málefnum
sambandsins, heldur ráðuneyti það, sem fer
með innanríkisverzlunina. Samvinnuhreyf-
ingin i Tékkóslóvakíu er því ekki lengur
frjáls eða lýtur stjórn kaupfélagsmanna. í
reyndinni er hún orðin ríkisfyrirtæk'i. Þar
með er fengin enn ein sönnun fyrir þvi, að
aðeins í lýðræðisþjóðfélagi geta frjáls sam-
vinnusamtök dafnað.
Samvinumerki. Brezku samvinnufélögin
hafa tekið upp eitt allsherjar samvinnu-
merki, sem jafnan á að prýða alla samvinnu-
framleiðslu, samvinnubúðir, sendiferðabií-
reiðar kaupfélaganna og yfirleitt að sjást
hvarvetna þar, sem samvinnumenn hafa ein-
hverja starfsemi. Merkið er eins fyrir alla.
Það eru stafirnir CO-OP, haglega settir í
svartan grunn.
Forseti ICA. Hinn nýi forseti Alþjóðasam-
bands samvinnumanna (ICA), Mr. T. H.
Gill, er fæddur í Yorkshire á Bretlandi árið
1885. Hann er af fátæku bergi brotinn, varð
að hætta skólanámi 15 ára gamall og hefja
daglaunavinnu. Hann starfaði lengi á brezk-
um járnbrautum og varð síðan starfsmaður
Sambands járnbrautarverkamanna. Árið 1919
varð hann forseti þess sambands. Hann tók
snemma þátt í kaupfélagsmálum héraðs síns
og varð fulltrúi á brezka samvinnuþinginu.
Árið 1932 var hann kjörinn í stjórn brezka
heildsölusambandsins (C. W. S.). Árin 1929—
1931 sat hann á þingi sem fulltrúi Verka-
mannaflokksins. í marz 1948 varð hann for-
seti stjórnar C. W. S. og í september saina
ár var hann kjörinn forseti Alþjóðasambands
samvinnumanna á þinginu í Prag, í stað
Rusholme lávarðar. Nú nýlega var hann
kjörinn til þess að vera forseti næsta þings
brezka samvinnusambandsins, en það þykir
ein hin mesta virðingarstaða innan sam-
vinnuhreyfingarinnar þar í landi. Síðan 1945
liefur hann og gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir ríkisstjórnina, bæði heima og cr-
lendis.
Samvinna var fyrir nokkru tekin upp milli
samvinnumanna í Illinois-fylki í Bandaríkj-
unum og verklýðshreyfingarinnar, um að
vinna að aukinni þátttöku almennings í sam-
vinnustarfinu. Sett var á stofn sérstök sam-
vinnunefnd til þess að vinna að þessu máli.
Samkvæmt frásögn fréttablaðs Alþjóðasam-
bands samvinnumanna, hefur þegar orðið
mikill árangur af þessu samstarfi.
Bakur. í nýlegu fréttablaði ICA er getið
um nokkrar merkar bækur um samvinnumál,
sem út eru komnar nú nýlega. Má þar
nefna þessar: „The Cooperative Way to
Peace and Social Justice", eftir A. Bonner,
kennara við brezka samvinnuskólann — Saga
danska Sambandsins, gefin út af FDB í
Khöfn, textinn á ensku, frönsku, þýzku og
dönsku — Saga ungliðahreyfingar brezku sam-
vinnuhreyfingarinnar (B. F. Y. C.J, og 1948
Blue Book, árleg greinargerð um framleið-
endasamtök samvinnubænda í Bandarikiun-
um.
23