Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1964, Blaðsíða 39

Samvinnan - 01.12.1964, Blaðsíða 39
Heimilisþáttur Framhald af bls. 29. ustu með sítrónusneið, rækjum og steinselju, karsa eða dilli sé það fyrir hendi. KJÖTBÉTTIR Nautatunga með grænmeti Nautatunga er drjúgur og góður matur bæði heit og köld til miðdegisverðar og sem á- legg á brauð. Hana má mat- reiða á eftirfarandi hátt: 1 tunga léttsöltuð eða létt- reykt, vatn, piparkorn (4—6), 1 laukur, 1—2 gulrætur, 1 lár- viðarlauf, 2 msk. smjör, soð, rjómi, grænmeti. Leggið tung- una í kalt vatn nokkra tíma, burstið hana síðan og skafið vel. Setjið tunguna í sjóðandi vatn og veiðið froðuna er suð- an kemur upp. Bætið kryddi og skornu grænmeti í. Látið sjóða 2—3 kflist. eða þar til tungubroddurinn er meyr. Takið skinnið af tungunni og brúnið hana við hægan hita í smjörinu. Skerið tunguna í fremur þunnar sneiðar, raðið þeim á fat ásamt soðnum kart- öflum og soðnu eða niðursoðnu grænmeti. 2—3 dl. af soði er hitað, kryddað og dekkt með kjötkrafti. 1—2 dl. af þeyttum rjóma blandað saman við. Sé tungan borin fram köld eða sem álegg á brauð er gott að hafa með henni grænmeti í olíusósu (ítalskt salat). Hænsni með ávaxtasalati 2— 3 hænur, vatn, salt. Jurtaolía eða smjörlíki, 2 eggjahvítur, brauðmylsna 3— 4 msk. salt og pipar. Þvoið hænurnar og sjóðið þær í saltvatni. Suðutími fer eftir aldri og má ætla einn klukkutíma fyrir hvert ár. Ali- kjúklingar þurfa minni suðu. Kælið hænurnar að suðutíma loknum og steikið þær síðan á eftirfarandi hátt. Skerið lærin frá og klippið síðan bringuna í tvennt eða skerið bringukjötið heillega frá beininu og síðan í tvennt. Hitið feitina. Veltið kjötinu úr hálfþeyttri hvítu, og brauð- mylsnu og steikið við fremur hægan hita. Kryddið með salti og pipar og raðið kjötinu á fat. Á fatið eru einnig látnar franskar kartöflur og soðið grænmeti eða gúrkusalat. (Þeg- ar tómatar fást er fallegt að bera það fram í hálfum tómöt- um). Fallegt er að setja vinberja- klasa á annan enda fatsins. Ávaxtasalat er gott hér með, þá er það búið til meðan hænsnin sjóða. Þeytið 2 egg með 2 msk. af sykri, 1 msk. sítrónusafa látið í skálina yfir gufu en gætið þess að gufan komist ekki upp í skálina. Þeyt- ið vel þar til eggin hafa auk- izt um allt að því helming og eru orðin að þéttri froðu. Bæt- ið sítrónusafa samanvið . Kælt. Bezt er að hafa blandaða niðursoðna ávexti í salatið en þá má drýgja með smátt skornum eplum, appel- sínum eða banönum. Blandið síðast ávöxtunum í eggjahrær- una og þeyttum rjómanum (2 —3 dl.). Skreytið með einhverju af ávöxtunum sem eru í salat- inu. Borið fram vel kalt. Gott með kjötréttum en einnig með brauði og kexi. Úr soðinu er síðar gott að búa til súpur og sósur, t. d. hvíta sósu og láta það sem skerst utan af beinun- um þar í ásamt gulrótum og grænum baunum. FLJÓTLEGIR ÁBÆT- ISRÉTTIR ts með möndlusykri (nougat). 1 dl. möndlur, 1—iy2 dl. sykur, 2 egg, 2 msk. sykur, 3 dl. rjómi. Afhýðið möndlurnar og sax- ið smátt. Hitið pönnuna og bræðið sykurinn, þar til mynd- azt hefur hvít froða, setjið þá möndlurnar saman við. Takið pönnuna af og hellið möndlu- sykrinum á smurða plötu. Kæl- ið og myljið síðan með köku- kefli. Hrærið eggjarauðurnar með sykrinum og blandið möndlusykrinum saman við, þá þeyttum rjómanum og síðast stífþeyttum hvítunum. Bragð- bætið ísinn með sherry ef vill, og frystið hann síðan í köku- móti eða venjulegum ísmótum. Athugið að ef ísinn er lengi að frjósa þarf að hræra upp í honum annars setjast egg og sykur á botninn. Hvolft á fat, rjómatoppum sprautað yfir og skreytt með möndlusykri sem tekinn hefur verið frá. ískök- um raðað í kring. ís með súkkulaðisósu Notið sömu uppskrift af ís að undanteknum möndlusykr- inum. Bragðbætið með vanillu. Frystið. Súkkulaðisósa y2 1. vatn, 125 g súkkulaði (dökkt suðusúkkulaði), 2 msk. púðursykur, 1 msk. kartöflu- mjöl, 1 tsk. vanilla, salt. Hrærið kartöflumjöl og helming vatnsins saman og hitið það þar til suðan kem- ur upp. Bræðið súkkulaði í því sem eftir er af vatninu, bragðbætið með sykri, hrærið jafningnum saman við og bætið vanillu og salti í. Borið fram msð vanilluís, hrísgrjónaábæti o. fl. Kakósósa 5 msk. kakó, 4 msk. púður- sykur, y2 1. vatn, 1 msk. kart- öflumjöl, 1 tsk. vanilludropar, salt. Blandið kakói, sykri, kart- öflumjöli og vatni saman, lát- ið suðuna koma upp. Bragð- bætið með vanillu og salti. Isinn er settur í stóra skál einnig er ágætt að skipta hon- um í smáskálar. Borinn fram með volgri sósunni. K Ö K U R Riómaterta með möndlubotni. Möndlubotn 100 g. möndlur 100 g. smjör 1 dl. sykur 1 msk. hveiti 2 msk. mjólk Flysjið og saxið möndlurnar. Blandið öllu saman í pott með þykkum botni og hitið þar til sykurinn er bráðnaður. Smyrj- ið hringmót og stráið hveiti í það. Látið deigið þar í og bak- ið við 225 gráður þar til kakan er fallega gulbrún. Látið kök- una kólna nokkra stund áður en hún er losuð úr mótinu. Sykurbrauðsdeig 4 egg 175 g sykur 50 g hveiti 50 g kartöflumjöl 1 tsk. lyftiduft. Þeytið eggin vel með sykrin- um. Blandið hveiti, kartöflu- mjöli og lyftidufti varlega sam- an við (ath. sigtið það áður saman). Bakað í vel smurðu móti. Krem 2 egg 1 dl sykur safi úr y2—1 sítrónu 4 blöð matarlím 2 dl. rjómi. Þeytið egg og sykur vel sam- an. Bræðið matarlímið sem áð- ur hefur legið í bleyti og kælið það. Blandið sítrónusafa og matarlími saman við eggin og þegar það byrjar að þykkna rjómanum. Sykurbrauðsbotninn er bleytt- ur með ávaxtasafa, kremið sett þar á. Gott er að setja ananas- bita í kremið. Efst er svo möndlubotninn. Þeyttum rjóma sprautað í kring og skreytt með ananas og e. t. v. rauðum berj- um. Piparkökur (skornar) 125 g. smjörlíki 1 dl. síróp y2 dl. sykur 250 g hveiti 1 tsk lyftiduft iy2 tsk. kanell 1 tsk. engifer eða negull 25 g. saxaðar möndlur Hrærið smjörlíkið með sykri og sýrópi, hveiti, lyftidufti, kryddi og söxuðum möndlum blandað saman við. Hnoðað í tvær kantaðar lengjur, kælt. Skorið í þunnar kökur. Bakað við 200 gráðu hita. Kökurnar geymast vel. JÓLAGÓÐGÆTI Toppar 50 g. jurtafeiti 100 g. súkkulaði 1 egg Bræðið feitina. Bræðið súkkulaðið og hrærið feitinni saman við. Kælt. Þeytið eggið og bætið því saman við. Lát- ið í sprautupoka og sprautað í toppa á plötu. Gott sem sælgæti en einnig fallegt í kökuskraut. Gleðileg jól! Óvænt tíðindi Eftir að Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri Skipadeild- ar S.Í.S., skrifaði grein sína „Samvinnuskip í átján ár,“ hafa þau tíðindi gerzt, að vegna samninga við Rússa um olíukaup og flutning á allri olíu til landsins, hefur olíu- flutningaskipið „Hamrafell“ engu hlutverki að sinna fyrir íslendinga næsta ár. Það er því um eitt af þrennu að gera: að leggja skipinu, selja það úr Iandi, eða leita eftir verkefn- um erlendis. Þessu máli verða nánari skii gerð í næsta hefti Samvinn- unnar. Ritstj. SAMVINNAN 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.