Samvinnan - 01.12.1975, Page 9
„Michelangelo var nú gamall orðinn og þreytt-
ur eftir mörg unnin stórvirki. Stutta stund naut
hann sannrar vináttu göfugrar aðalskonu.
Henni framar öllum öðrum afhjúpaði hann alla
leyndardóma dulrænna en háleitra hugsana
sinna. Þegar hún féll frá, lifði hann eins og
einsetumaður í Róm. Hann bjó eins og öreigi,
þótt í raun og veru hefði hann bræður sína á
framfæri og ætti fjársjóð falinn í vinnustof-
unni...“ Sjá grein um Michelangelo á bls. 16.
„En víst er um það, að margur vesturfarinn
hrakyrti Tryggva Gunnarsson óspart á bak —
og jafnvel brjóst — og kenndi honum um,
hversu dræmt peningagreiðslur bárust frá fs-
landi fyrir ýmislegt, sem þeir höfðu selt gegn
greiðslufresti fyrir brottför sína þaðan. Naum-
ast hafa þeir þá vitað. hvílíkan kross þeir höfðu
lagt á Tryggva, þegar þeir fólu honum að kalla
eftir þessum greiðslum ...“ Sjá greinina Skipzt
á skoðunum eftir Bergstein Jónsson sagnfræð-
ing á bls. 20.
„Svo fór Smádalabóndinn í vetrarúlpuna sína,
dúðaði telpurnar sínar og Iokaði hlöðudyrunum
rækilega, því að aldrei var að vita, hvenær
hann kynni að hvessa. Kannski er byrjað að
rökkva, og kannski tunglkarlinn á gægjum yfir
fellinu, þegar þau leiðast heim túnið — lágvax-
inn bóndinn í miðjunni, Dúfa hægra megin við
hann, Lóa vinstra megin, og langir skuggar á
gljánni. Og Gormur trítlandi spölkporn á und-
an...“ Sjá Feðgin í Smádölum, nýjan sögu-
kafla eftir Jón Helgason á bls. 24.
„Alltaf öðru hverju hafa þær raddir heyrzt, að
æskilegt og nauðsynlegt væri að setja á stofn
útibú í byggðahverfunum. Sannleikurinn er
hins vegar sá, að verzlunarrekstur er orðinn svo
dýr og erfiður, að miðað við þann fjölda fólks
sem býr hér um slóðir, tel ég það fráleitt —
nema ef til vill í nýjasta og fjölmennasta hverf-
inu. Þróunin erlendis er líka sú, að verzlanir
verða færri og stærri. Og langflestar stórverzl-
anir eru reistar utan við borgirnar ...“ Sjá við-
tal við Jón Sigurðsson, kaupfélagsstjóra Kaup-
félags Kjalarnesþings, á bls. 28.
„Ég fæ þá aftur inn í salinn og saman skoðum
við muni úr gröf Tut-ankh-amens, sem fannst
1922. Sá kóngur vann sér það eitt til frægðar
að deyja á unglingsárum fyrir þrjátiu og þrem
öldum, en hans gröf er víst bezt varðveitt allra
grafa, sem upp hafa verið brotnar úr fornum
tíma egypskum, full af djásnum og stórkost-
legum húsgögnum svo ég kemst ekki hjá að
undrast hvílíkt hafurtask piltur þessi var lát-
inn hafa með sér yfir á land hinna dauðu ...“
Sjá grein eftir Sigvalda Hjálmarsson á bls. 32.
^ Samvinnan
Desember 1975, 9.—10. hefti. 69. árg.
Útgefandi: Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Af-
greiösla og auglýsingar: Gunnar Guðna-
son. Ritstjórn og afgreiðsla: Suðurlands-
braut 32, sími 81255. Áskriftarverð: 1500
krónur, i lausasölu 200 krónur hvert
hefti. Gerð myndamóta: Prentmyndastof-
an hf. Litgreining á forsíðu: Prentmynd
sf. Prentun: Prentsmiðjan Edda hf.
16 Eilíf listaverk á tímum spill-
ingar, sagt frá Michelangelo í
tilefni af 500 ára afmæli hans.
20 Skipzt á skoðunum, vesturís-
lenzkur menntamaður og ís-
lenzkur athafnamaður skrif-
ast á, eftir Bergstein Jónsson,
sagnfræðing.
24 Feðgin í Smádölum, nýr sögu-
kafli eftir Jón Helgason.
27 Vangaveltur.
28 Byggðin er allt í kringum okk-
ur, rætt við Jón Sigurðsson,
kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Kjalarnesþings, í tilefni af 25
ára afmæli félagsins.
31 Jólakrossgáta Samvinnunnar.
32 Dauðinn var hámark lífsins,
ferðapunktar frá Egyptalandi
eftir Sigvalda Hjálmarsson.
36 Æskulýðsmál og orkumál voru
efst á baugi, sagt frá mið-
stjórnarfundi Alþjóðasam-
bands samvinnumanna.
38 Sagt.
39 Haustferð, — smásaga eftir
Trausta Ólafsson.
40 f góðu yfirlæti hjá Centro-
soyus, Ólafur Sverrisson kaup-
félagsstjóri í Borgamesi, segir
frá Rússlandsför haustið 1974.
43 Visnaspjall.
44 Frá fundi kaupfélagsstjóra.
46 OK í Sviþjóð.
51 Barnasíðan
60 Verðlaunagetraun
FORSÍÐAN:
Þrengslin að vetri. Ljósmyndina
tók Mats Wibe Lund.