Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 10
Eilíf listaverk
á tíniuin
spillindar s»u
M Michelangelt
í tilefni af
500 ára
afmæli hans
Sjálfsmynd eftir
Michelangelo.
Gjörvallri Plórenz-borg var
hulin ráðgáta, hvað var að ger-
ast bak við timburvegginn háa.
Mánuðum og nú árum saman
höfðu vegfarendur heyrt þung-
an hávaðann, þegar hamarinn
skall af afli á meitlinum. En
eins og allir vissu, þá hafði
þessi margumtalaða marmara-
hella verið eyðilögð, þegar
myndhöggvarinn, sem lét gera
helluna, háa og óheyrilega mjó-
slegna, hjó stórt og þríhyrnt
gat niður við fótstallinn. Marg-
ur listamaðurinn hafði síðan
litið helluna girndarauga, en
þó stóð hún ósnert áratugi,
eins og ósigraður risi.
En þá var það einn mánu-
dagsmorgun (13. seþtember
1501), að hinn ungi Michel-
angelo Buonarroti gekk fram
með meitil í hönd til að fást við
risann. Hann stritaði stanz-
laust í 4 ár. Þegar dómararnir
sáu, hverju hann hafði fengið
áorkað, gáfu þeir honum um
400 gulldúkata i heiðurslaun og
buðu honum að velja styttunni
stað. Án þess að hika valdi
Michelangelo stað þar, sem
mest bar á i Flórenz, fyrir
framan þungbúna höllina við
„Torg aðalsins".
Fjörutíu menn strituðu í
fjóra daga við að flytja stytt-
una á sinn stað. Og þann dag í
dag stendur Davíð, risabani, og
horfist í augu við óvin sinn,
Goliat. Sérhverjum galla hell-
unnar hafði verið breytt í lista-
verk. Steinninn, alltof langur
og eftir því mjór, var orðinn að
stæltum likama hnarreists
iþróttamanns. Gatið við fót-
stallinn myndaði bilið milli
sterkra fótleggjanna. Vöðvar,
sinar og sérhver æð i þöndum
líkamanum eru mótuð af frá-
bærri nákvæmni, rétt eins og
funheitt blóð ungs bardaga-
manns streymi þar um. Eins og
öll listaverk Michelangelos, er
Davið ekki aðeins mynd, höggv-
in i stein. Hann er lifandi sann-
leiki. Enn þá gengur margur
Golíat laus i heiminum og Da-
íðarnir ganga enn til móts við
þá með hnyklaðar brúnir og
óttalaus augu.
• FÉKK GÁFUNA ÚR MJÓLK
FÓSTURMÓÐUR SINNAR
Michelangelo di Ludovico Bu-
anarroti Simoni fæddist 1475 í
Capnese við upptök Tíberfljóts
i Mið-ítalíu. Brjóstmylkingn-
um var komið í fóstur hjá konu
steinhöggvara, og siðar sagði
Michelangelo oft í gamni, að úr
mjólk fósturmóður sinnar hefði
hann fengið gáfuna og löngun-
ina til að hamra grjót.
Móðir hans dó, þegar hann
var aðeins 6 ára, og hann var
orðinn sextugur, þegar hann
komst næst í kynni við ástúð
og umhyggju elskandi konu.
Hann ólst upp í grófu umhverfi
karlmannanna, meðal eigin-
gjarnra, smáborgaralegra
bræðra, sem betluðu af honum
allt hans lif. Faðir hans var
heimtufrekur karl, síkvartandi.
Drengnum gekk illa í skóla.
Hann teiknaði öllum stundum,
og var barinn, en er það bar
engan sýnilegan árangur, var
hann barinn aftur og meira.
Þróttinn til að standast fleng-
ingarnar tókst að berja úr
veikbyggðum líkama hans, en
listamaðurinn stóð óbrotinn
eftir.
Buanarroti vildi fyrir hvern
mun hafa eitthvert gagn af
þessum þrjózka strák sínum, og
Séð' yfir Sistínsku kapclluna í Róm.
1811 flíi II
Engill. Mynd úr marmara, gerð 1494—95.