Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1975, Síða 14

Samvinnan - 01.12.1975, Síða 14
Skipztá skð&inum Vesturíslenzkur mennta- maður og íslenzkur athafnamaður skrifazt á Eftir Bergstein Jónsson sagnfræðing Það gerðist um svipað leyti, að hafinn var áróður fyrir hóp- flutningum fólks af íslandi til Vesturheims, útbreiðslu Gránu- félags á Norður- og Austurlandi og stofnun fleiri áþekkra félaga víða um land, og kröfum Þjóð- vinafélagsins til aukins stjórn- frelsis handa íslendingum. Eft- ir fund áhugamanna um öll þessi málefni, haldinn á Akur- eyri á útmánuðum 1873, voru þrír menn gerðir út af örkinni, hver með afmarkað verksvið. Var Tryggva Gunnarssyni fal- ið að reka ýmis erindi á veg- urn Gránufélags, Eggert bróður hans að tala máli Þjóðvinafé- lagsins og vinna bændur til stofnunar verzlunarfélaga, og Þorláki Gunnari Jónssyni á Stórutjörnum að fá menn um allt land til vesturferðar á komanda sumri. Þremenningar þessir urðu samferða frá Akureyri til Reykjavíkur síðla vetrar 1873 og héldu fundi í Skagafirði og Húnaþingi. Þeir höfðu þá um árabil átt mikið saman að sælda í samtökum þingeyskra bænda og félagsmálaforkólfa, einkum Tryggvi og Þorlákur. En samfylgd þeirra Þorláks og Eggerts frá Reykjavík austur um sveitir Suðurlands og siðan um Múlasýslur, þar sem annar talaði máli Þjóðvinafélags og verzlunarsamtaka bænda, en hinn boðaði landflótta, virðist hafa orðið grundvöllur ævi- langrar alúðarvináttu. Reyndar var sú vinátta eingöngu rækt bréflega eftir 1873, en margt hefur geymzt, sem vitnar um hana. í riti Thorstinu Jackson (síð- ar Walters), Sögu íslendinga í Norður-Dakota, er eftirfarandi samantekt frá hendi Níelsar Steingríms Thorlakssonar um foreldra hans og fjölskyldu: „Þorlákur Gunnar Jónsson var fæddur 16. ágúst 1824 við Berufjörð í Suður-Múlasýslu. Foreldrar hans voru Jón ív- arsson og Rannveig, dóttir séra Magnúsar Erlendssonar próf- asts að Hrafnagili í Eyjafirði... Ólst Þorlákur upp hjá foreldr- um sínum, sem fluttu til Eyja- fjarðar. Hann varð skrifari hjá Sigfúsi Schulesen á Húsavik, sýslumanni Þingeyinga, og kvæntist þar Henriette Louise Nielsen, dóttur Nielsens faktors af norskum ættum, en móðir hennar var ættuð úr Skaga- firði. Þau fluttust þaðan að Stórutjörnum í Ljósavatns- skarði og bjuggu þar lengst af, þangað til þau fluttu til Am- eríku. Þorlákur var lengi hrepp- stjóri í Ljósavatnshreppi, þótti ágætur hreppstjóri, og gott varð mörgum að leita til.hans. Var oft gestkvæmt hjá þeim, og þótti gott að heimsækja þau. Þau Þorlákur og kona hans eignuðust 9 börn, 6 drengi og 3 stúlkur, sem öll urðu fullorðin. Elztu synir þeirra, Haraldur og Páll, fóru til Ameríku 1872, Har- aldur með konu sína Maríu, dóttur Sigurðar Guðnasonar hreppstjóra á Ljósavatni. Árið 1873 fluttu þau Þorlákur með öll hin börnin ásamt fyrsta stóra hópnum, sem flutti vestur. Var Þorlákur sá, sem var helzti hvatamaður útflutningsins. Fluttu þau til Mihvaukee, Wis- consin, og var þar tekið á móti þeim af Haraldi og Maríu snemma í ágúst; en Páll mætti hó'pnum i Quebec og fylgdi þaðan þeim, sem til Bandaríkj- anna fóru. í Milwaukee var Þorlákur og fjölskylda hans um tveggja ára tíma, unz þau fluttu til Shawano-sýslu,1) norðar i Wisconsin, ásamt Har- aldi og Maríu og börnunum hinum, nema Rannveigu dótt- ur þeirra, sem giftist í ágúst 1875 norskum bónda i Winne- conne-sýslu, Wisconsin, Tönnes Miller að nafni. Páll kom líka norður. Myndaðist þá Sha- wano-nýlendan. Hér tók Þorlákur land og bjó þar, þangað til þau fluttu 1879 ásamt Haraldi og Maríu til ný- lendunnar í Pembina, sem þá var nýmynduð, og námu land þar sem kallað er í Vík (nú Mountain). Fluttust systkinin hin um sama leyti, nema Jak- obína, sem gifzt hafði norskum manni, Gentoft Isaksen, og Steingrímur, sem þá var í skóla í Decorah, Iowa. Giftist Val- gerður nokkru seinna Sigurjóni Sveinssyni, sem numið hafði land við Garðar. Bræðurnir Jón, Þorsteinn og Björn tóku sér allir land suð- vestur af Mountain. Jón kvænt- ist skömmu seinna Petrínu Guðnadóttur; Þorsteinn Hlað- gerði Laxdal, og Björn Ingu, dóttur Jóhanns Stefánssonar. Bjuggu þau Jón og Petrína á landi sinu fram undir aldamót- in. Fluttu þá á land nálægt Milton og bjuggu þar, þangað til þau fluttu norður, ásamt börnum sínum, til Manitoba. Björn dó á landi sínu skömmu eftir aldamótin. Þorsteinn var skömmu áður hættur landbún- aði og vann að ýmsum verzl- unarstörfum, þangað til hann litlu eftir aldamótin flutti á- samt fjölskyldu sinni til Mani- toba. Var Haraldur mest við verzlun, fyrst á landi sínu skammt fyrir sunnan Moun- tain, svo í húsi Páls að honum látnum, og síðar í búð, sem hann byggði rétt hjá. Laust fyrir aldamótin fluttu þau hjón 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.