Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1975, Síða 34

Samvinnan - 01.12.1975, Síða 34
I góðu yfirlæti hjá Centrosoyus Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri í Borgarnesi, segir frá Rússlandsferð haustið 1974 r 4 i^lS^MLrihlL sSÍÍlSÍ3SSE5«Sggs Þriðjudaginn 19. nóv. hófst 9. þing Centrosoyus. Eftir að hafa neytt morgunverðar var gengið af stað frá hótelinu um kl. 9 áleiðis til Kreml, sem er skammt frá, en fundurinn var haldinn i aðalfundarsal Komm- únistaflokksins. Þessi frægi fundarsalur er vel úr garði gerður og vistlegur, loftræsting góð og upphitun þægileg. Tæknibúnaður er fullkominn, og er hægt að flytja fundar- mönnum efni á 10 tungumálum í gegnum heyrnartæki sem eru við borð hvers fundarmanns. Að þessu sinni voru ræður fluttar á fimm tungumálum, þ. e. rússnesku, ensku, þýzku, frönsku og spænsku. Mjög fær- ir túlkar sáu um þýðingar á ræðum fundarmanna jafnóðum og þær voru fluttar. Stundvíslega kl. 10 var fund- ur settur af forseta Centro- soyus hr. Alexander Klimov. Ýmis stórmenni voru viðstödd þ. á. m. hr. Kosigin forsætis- ráðherra. • SAMVINNUMENN FRÁ 53 LÖNDUM Fulltrúar á fundinum, kjörn- ir af samvinnusamböndunum í hinum ýmsu ríkjum og fylkj- um Ráðstjórnarrikjanna voru 1646. Gestir, einn eða fleiri, voru mættir frá samvinnu- mönnum í 53 löndum. Auk þess var að sjálfsögðu fjöldi starfs- manna, túlka og fleira aðstoð- arfólks. Hefur sennilega verið hátt í 2000 manns á fundinum. Eftir um 15 mínútna setn- ingarávarp hr. Klimovs, sem var að miklu leyti ýmiss konar hvatning, stóð hann fyrir kjöri fundarforseta. Síðan hófst hin eiginlega framsöguræða. Ekki varð ég var við ársskýrslu eða skriflegar upplýsingar, svo sem efnahags- og rekstursreikning um árangur á því starfstíma- bili sem til umræðu var. Er þetta gagnstætt því sem tíðk- ast á íslandi og öðrum vest- rænum löndum þar sem ég þekki til, þar sem birtir eru reikningar og meira og minna af öðrum upplýsingum í prent- uðum ársskýrslum, sem lagðar eru fyrir fundi sem þennan. Ræða hr. Klímovs var aftur á móti löng og ýtarleg. Hr. Klímov talaði allan tímann frá kl. 10 til kl. 14 að undanteknu rúmlega 30 mínútna hléi, sem gert var kl. 12 til þess að menn gætu rétt úr sér og fengið sér hressingu sem boðið var upp á. Kl. 14 var gert hlé á fundi til miðdegisverðar. Fundur hófst aftur kl. 16 og stóð til kl. 18. í hinni löngu og kraftmiklu ræðu hr. Klímovs kom að sjálf- sögðu margt fram um starfsemi samvinnufélaga í USSR. Þessi framsöguræða var svo um- fangsmikil að ekki er nokkur leið að gera henni skil í stuttri frásögn. Hinir erlendu gestir fengu m. a. eintak af Centro- soyus Review sem gefið er út á ensku. Þar er að finna tals- verðar uppiýsingar um starf- semi samvinnufyrirtækja und- anfarin ár. Þar eru þessar töl- ur mest áberandi og er þá rætt um undanfarin fjögur ár: '1600 stór iðnfyrirtæki hafa verið stofnuð. Fjárfesting i landbún- aði varð 91.000 milljónir rúblna. Framleiðsla iðnfyrirtækja hafði vaxið um 33%. Um 80% af auknum arði iðnfyrirtækja fór í launauppbætur. Kaupgeta hækkaði um yfir 20%. 45 millj. manna fluttu i nýjar íbúðir. Yfir 13.000 nýir skólar voru byggðir. Tala sjónvarpseigenda hækkaði um 60%. Þetta er um Sovétríkin i heild. Um málefni samvinnufélaga þar kom fram m. a., varðandi þróun frá ár- inu 1969 til 1973: Félagsmönnum hefur fjölgað úr 58,6 millj. í 62,1 millj. Sala (árleg) hefur vaxið úr 41.500 millj. rúblna í 53.300 millj. rúblna. Aukning 29% og verð- lag sambærilegt. Selt hafði verið af samv.fél. 8 millj. sjón- varpstækja, 4 millj. kæliskápa, 7.3 millj. útvarpstæki, 5,7 millj. þvottavéla og 540.000 bílar. Þannig mætti lengi telja. Þess ber að geta að hér er eingöngu um neytendasam- vinnufélög að ræða, en ekki um blönduð félög eins og algeng- ast er hér á landi. • FÉLÖG SAMEINAST í STÆRRI HEILDIR Sama þróunin virðist hafa átt sér stað i Sovétríkjunum og viðast annars staðar, þ. e. fé- lögum fækkar, þ. e. þau sam- einast í stærri heildir. Á árun- um 1969 til 1973 hefur sam- vinnufélögum í USSR fækkað úr 15.509 i 7.894. Héraðssam- böndum samvinnufélaga hefur fækkað úr 2.459 í 1.374. Stórum samvinnufélögum sem ná yfir heil héruð eða fylki hefur aftur á móti fjölgað úr 471 í 1644. Samvinnufélögin i Sovétrikj- unum hafa margvíslegan rekst- ur með höndum annan en verzlun. Árið 1973 framleiddu þessi fyrirtæki samtals fyrir 4.200 millj. rúblna. Félögin eða ýmis samvinnusambönd reka mikinn fjölda verksmiðja af ýmsu tagi t. d. starfrækja þau um 12.000 brauðgerðir. Mjög mörg samvinnufélög eiga og starfrækja veitingahús, eitt eða fleiri. Samvinnufélögin eru sterkust í sveitum landsins og minni borgum. í stórborgum svo sem Moskvu eru flestar verzlanir rikisreknar, svo sem allur ann- ar atvinnuvegur yfirleitt. Þessar upplýsingar sem hér hefur verið getið um, eru ýmist úr fyrrnefndri ræðu Alexanders Klimovs eða eru teknar upp úr skýrslum í Centrosoyus Review. Seinnipart þessa fyrsta fund- ardags voru haldnar margar ræður. Talaði þá fólk frá ýms- um ríkjum og fylkjum Sovét- ríkjanna. Þessar ræður voru að miklu leyti lofgjörðir. Þó bar nokkuð á gagnrýni og hvatn- ingum um að gera betur. Tals- vert var talað um slæma flutn- inga, of miklar skemmdir við meðhöndlun vöru, vöntun og ónákvæmni í afgreiðslu,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.