Samvinnan - 01.12.1975, Síða 35
Moskva. Þing Cen-
trasoyus var haldið
í aðalfundarsal
Kommúnistaflokks-
ins, sem er skammt
frá Kreml.
Hljómplötudeild
Moskva-vöruhúss-
ins, sem rekið er af
samvinnuhreyfing-
unni í Rússlandi.
skemmdir eftir vörulyftara o.
s. frv.
Nokkur samvinnufélög (eða
sambönd) voru lofuð fyrir góð-
an árangur. Nokkrir ræðu-
manna játuðu slæman árangur
í sinum félögum og gerðu grein
fyrir ráðstöfunum til úrbóta
sem ýmist voru í undirbúningi
eða komnar til framkvæmda.
Fundi lauk eins og fyrr segir
þennan fyrsta fundardag kl.
18. Beint af fundinum var far-
ið í sirkus sem hófst kl. 19.
Þar hittum við eiginkonur okk-
ar, þeir sem áttu þær í Moskvu,
en þær hlýddu á hina löngu
ræðu hr. Klímovs, en var síðan
eftir hádegisverð boðið á tízku-
sýningu, sem þeim þótti fróð-
legt að sjá.
Sirkusinn var góður, svo sem
vænta mátti. Mest bar á ýmiss
konar listhlaupum og sýningum
á skautum.
Miðvikudaginn 20. nóvember
hófst fundur að nýju kl. 10.
Var það beint framhald frá
deginum áður. Seinnipart dags-
ins fluttu margir hinna er-
lendu gesta ávörp, færðu þeir
þakkir og gáfu gjafir. Fundi
lauk ekki fyrr en kl. 19.30.
Fimmtudaginn 21. nóv. var
öllum erlendum gestum boðið
í skoðunarferð til borgarinnar
Zagorsk. Er það um klukku-
stundar akstur frá Hótel Rus-
sia.
Zagorsk er einn af söguleg-
um dýrgripum Rússlands. Borg-
in ber einnig vitni um arki-
tektur Rússa á miðöldum. í
Zagorsk skoðuðum við gamla
og skrautlega kirkju, sem enn
er notuð. Þá skoðuðum við
gamlar klausturbyggingar og
tuma sem nú eru söfn. Þarna
er margt merkilegra muna.
Nutum við leiðsagnar Grísk-
kaþólskra munka sem kunnu
góð skil á öllu sem fyrir augu
bar.
• „BÍDDU ÞANGAÐ TIL ÞIJ
KEMUR TIL GEORGÍU“
Föstudaginn 22. nóv. var síð-
asti fundardagur. Fundur hófst
sem fyrr kl. 10. Var nú greint
frá kjöri fulltrúaráðs, en það
skipa 64 manns. Áður hafði
framboðslisti verið kynntur á
þinginu. Engar athugasemdir
komu fram við listann. Enda
mun hann hafa verið skipaður
í samráði við fulltrúa frá hin-
um ýmsu ríkjum og fylkjum.
Eftir að kjör fulltrúaráðs hafði
verið kunngjört og fleiri forms-
atriðum fullnægt, var gert
fundarhlé. Nú hélt nýkjörið
fulltrúaráð fund, og kaus m. a.
forseta til næstu fjögurra ára.
Fljótlega var þingi haldið
áfram og nú var tilkynnt að hr.
Alexander Klímov hefði verið
kosinn forseti Centrosoyus. Að
síðustu sleit hr. Klímov þing-
inu með stuttri ræðu.
Þessu næst gekk allur þing-
heimur í tvöfaldri röð framhjá
grafhýsi Lenins og framhjá
gröf óþekkta hermannsins, þar
sem stöðugt logar eldur. Bæði
á grafhýsi Lenins og gröf ó-
þekkta hermannsins voru lagð-
ir stórir kransar, tveir hverju
sinni. Annan kransinn báru
tveir Rússar, hinn fulltrúi
Finnlands og fulltrúi eins Afr-
íkurikisins.
Þessari athöfn var lokið um
kl. 13. Klukkan 17 var móttaka
í Kreml. Þar stjórnaði hinn ný-
kjörni forseti móttöku og á-
varpaði veizlugesti.
Veizluföng voru mikil og góð,
bæði í mat og drykk. Gerðu
menn hvort tveggja góð skil.
Þó að menn væru frjálslegir og
kátir, fór þó allt vel fram eins
og vera bar. Eftir að hafa notið
góðra veitinga og skemmtunar
í tæpar tvær klst., gengum við
íslenzku og sænsku gestirnir
fyrir hr. Klimov ásamt túlk
okkar og aðstoðarmanni, þökk-
uðum fyrir okkur og kvöddum.
Hr. Klímov lét í ljósi áhuga á
íslandi. Hann kvaðst hafa
komið þangað einu sinni og þá
m. a. heyrt íslenzka listamenn
flytja rússneska söngva með
ágætum. Sagðist hann óska
þess að hann fengi tækifæri
til þess að koma aftur til þessa
fagra en fjarlæga lands.
Á leiðinni frá veizlunni í
Kreml til hótelsins haf ði ég orð
á því við frú Natösju, sem var
túlkur okkar, að Rússar væru
mjög gestrisnir. Ekki mótmælti
frúin því, en sagði:
„Bíddu þangað til þú kemur
til Georgíu."
• TEKIÐ EINS OG
ÞJÓÐHÖFÐINGJUM
Nú var 1. þingi Centrosoyus
lokið. Erlendu gestunum var
boðið i ferðalög til einhvers af
lýðveldum Sovétríkjanna. Val-
kostirnir voru sex. Við hjónin
höfðum valið Georgíu. Þangað
fóru 28 gestir. Auk þeirra voru
með í ferðinni tveir fararstjór-
ar og sex túlkar sem töluðu auk
rússneskunnar, ensku, þýzku,
sænsku og frönsku.
Farið var frá einum af flug-
völlum þeim sem eru í ná-
grenni Moskvu laust fyrir há-
degi, laugardaginn 23. nóv.
Flugið til Tbilisi, höfuðborgar
Georgíu, tók um tvær og hálfa
klukkustund. Þar var á flug-
vellinum tekið á móti okkur
eins og þjóðhöfðingjum. Ekið
var í smábílum, flestum svört-
um og gljáfægðum, með lög-
reglubíl með blikkandi ljósum
á undan, til bezta hótels borg-
arinnar, Hótel Iveria sem er í
nýlegu 20 hæða húsi. Á her-
bergjunum biðu okkar stórar
körfur, ein á mann, fullar af
alls konar ávöxtum og hinum
rómuðu Grúsíuvínum, sem eru
létt en mjög bragðgóð.
Gestrisni Georgíumanna er
viðfræg, en ekki datt mér í
hug að hún gæti náð svo langt
sem raun varð á í þessari ferð.
Eftir að við höfðum komið
okkur fyrir á herbergjunum,
var borðuð létt máltíð. Þar næst
var farið í skoðunarferð um
borgina. Þó að myrkt væri orð-
ið, skoðuðum við samt ýmsa
staði í borginni svo sem Lenin-
torgið og sigurgarðinn sem
gerður var til minningar um
sigurinn yfir nazistum. Þá virt-
um við fyrir okkur styttu af
Móður Georgíu, sem nú stendur
41