Samvinnan - 01.12.1975, Side 38
Vinstra megin við borðið sjást (frá vinstri):
Matthías Gíslason, Kaupfél. Skaftfellinga, Vík í
Mýrdal; Ólafur Friðriksson, Kaupfél. Langnes-
inga, Þórshöfn — og Hans Chistiansen, Iðnaðar-
deild. Hægra megin sitja m. a.: Ármann Þórðar-
son, Kaupfélagi Ólafsfjarðar, Ólafsfirði; Ólafur
Ólafsson, Kaupfélagi Rangæinga, Hvolsvelli;
Oddur Sigurbergsson, Kaupfélagi Árnesinga, Sel-
fossi, — og Hallgrímur Sigurðsson, forstjóri Sam-
vinnutrygginga.
íslenzkur sjávarútvegur
Frá fundi
kaupfélagsstjóra
Sigurður Markússon frkvstj. Sjávarafurðadeildar flutti mjög ýtarlegt erindi um
íslenzkan sjávarútveg á fundinum. Greindi hann fyrst frá starfsemi og framleiðslu
þeirra frystihúsa og fiskvinnslustöðva, sem deildin selur fyrir, en vék síðan að
helztu markaðssvœðum hennar erlendis og gerði grein fyrir söluaðilum á hverjum
stað. Þá vék hann að landhelgismálinu og þróun þess, og jafnframt gaf hann yfir-
lit yfir helztu hrygningar- og uppeldissvœði nytjafiskistofnanna við landið, svo og
veiðisvæðin. Loks vék hann að nýjum skýrslum Hafrannsóknastofnunar og Rann-
sóknarráðs ríkisins um ástand fiskistofnanna við landið og gerði grein fyrir ásókn
erlendra fiskimanna á miðin, svo og framtíðarhorfunum á sviði fiskveiða við ísland
í heild.
Hinn árlegi kaupfélagsstjóra-
fundur var að þessu sinni hald-
inn að Hótel Sögu i Reykjavik
21. og 22. nóvember. Fundinn
sóttu velflestir kaupfélagsstjór-
ar landsins, en auk þess stjórn
og framkvæmdastjórn Sam-
bandsins, allmargir starfsmenn
þess og framkvæmdastjórar
samstarfsfyrirtækjanna. Fund-
arstjóri var Valur Arnþórsson
kfstj. á Akureyri, en fundarrit-
ari Gunnar Grímsson starfs-
mannastjóri.
Yfirlitserindi forstjóra
Erlendur Einarsson forstjóri
flutti að vanda efnismikið yfir-
litserindi um rekstur Sam-
bandsins það sem af er árinu,
og um framtíðarhorfur í
rekstrinum. Verulegur hluti af
erindi hans fjallaði að þessu
sinni um þá fjárhagslegu erf-
iðleika, sem við hefur verið að
glíma á árinu, en fram kom, að
með skipulegum aðgerðum hef-
ur tekizt að leysa þau mál svo,
að ekki eru horfur á, að rekstr-
arafkoma Sambandsins verði
vandamál í ár. Þó hefur allur
rekstrarkostnaður Sambands-
ins aukizt mjög mikið, eða um
14% fyrstu níu mánuði ársins,
en á móti kemur, að veltuaukn-
ing hefur orðið nokkuð almenn.
Hefur veltan fyrstu níu mánuði
ársins hjá einstökum deildum
verið sem hér segir:
Innflutningsd. milj. 3.859 Aukn. % 39
Véladeild 1.253 8
Sjávarafurðad. 5.266 113
Búvörudeild 2.473 24
Skipadeild 685 45
Iðnaðardeild 2.092 67
Samtals nemur velta þessara
deilda því 15.629 milj. kr. fyrstu
níu mánuðina, sem samsvarar
tæplega 60% aukningu. Erlend-
ur lagði þó áherzlu á það í er-
indi sínu, að þrátt fyrir þetta
væru fyrirsjáanlega erfiðir
tímar framundan. Verðbólgan
héldi áfram að skapa alvarleg
rekstrarvandamál, og sama
gegndi um hina slæmu aðstöðu
ríkissjóðs og gjaldeyrisstöðu
þjóðarbúsins. Þá væri rekstr-
arstaðan í sjávarútveginum
erfið, og sama máli gegndi um
stöðu kaupfélaganna, sem hætt
væri við að myndu sum hver
skila taprekstri á yfirstand-
andi ári. Því væri nú brýnna en
oftast áður að fara gætilega í
sambandi við fjármálin, og sér-
staklega yrði að gæta hófs í
útlánum og fjárfestingum.
44