Samvinnan - 01.12.1975, Qupperneq 43
Skipzt á skoðunum
montnir og ó[róa?]samir, svo
jeg hef ætið sem minnst viljað
við þá eiga; Fnjóskdælir eru
flestir í mesta basli, en Bárð-
dælir eru á landamerkjum
Húsavíkur og Akureyrar, lána
og svíkja á víxl, svo þeir eru ...
á hvorugum staðnum vel sjeðir.
Um þessar sveitir fóruð þjer
mest og hafið því mestar sagn-
ir þaðan, en i öðrum sveitum
sem að Akureyri sækja og við-
ast um austurland, er...jeg
ekki af kur manna við mig
meira en við er að búast. Því
sá sem er við verzlan og politík,
hlýtur að fá skammir þó hann
væri engill. Tortryggni og stríð
fylgir þessum tveim stöðum, jeg
hef ekki búist við öðru og kippi
mjer ekki upp við hnútur; jeg
finn að jeg gjöri svo rjett sem
kringumstæður og atvik leyfa,
svo sætti jeg mig við það sem
verður að vera. Mín staða er
oft erfið og vandasöm, svo
mjer dytti ekki í hug að búa
við hana, ef ekki væri tilgang-
ur minn að reyna að gjöra öðr-
um gagn með því, sem jeg og
stundum er sannfærður um að
jeg gjöri, hvernig sem það er
þakkað. Jeg er farin að bila að
heilsu, svo jeg hætti innan
skamms tíma við fjelagið og
þingið, og þá geta landar tekið
annan sem þeim er hollari og
betri. —
Hvað snertir „urmul verka-
manna“ við verzl. Grfl., þá
stendur svo á því efni, að
Faktorar fjelagsins hafa ekki
meiri laun en annara Factorar;
þeir hafa og vissa upphæð fyrir
assistenta alla, svo hvert þeir
hafa 5 eða 1 þá er það fyrir
þeirra reikning og kjemur fjár-
hag fjelagsins ekkert við. Þetta
hef jeg oft skýrt á fjel.fundum,
en illkvittnir menn ganga
rægjandi um það samt sem
áður.
Að verri búðarþjónar sjeu við
Grfl. en aðrar isl. verzl. get
jeg ekki sjeð, en afgreiðsla e?
sein og kurteysi lítil við verzl.
á öllu íslandi, sem mikla rót
sína á í skulda verzlaninni; ef
hönd seldi hendi almennt, þá
breyttist þetta. Factorar Grfl.
leggja á vörurnar miklu minna
en hjá flestum öðrum, hversu
mikið þeir leggja á get jeg
betur borið um en landsmenn
eða bændur, sem aldrei sjá út-
sals Facturur. Jeg fyrirtek ekki
Óskum viðskiptamönnum, starfsfólki og
landsmönnum öllum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsceldar á komandi ári
Þökkum gott samstarf á liðnum árum
KAUPFÉLAG ÓLAFSFJARÐAR
Ólafsfirði
Sendum öllum félagsmönnum, starfsfólki og
viðskiptamönnum beztu óskir um
GLEÐILEG JÓL
með þökk fyrir samstarf og viðskipti á liðnum
árum
Óskum landsmönnum öllum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsœldar á komandi ári
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA
Selfossi
KAUPFÉLAG HVAMMSFJARÐAR
Búðardal
49