Samvinnan - 01.12.1975, Side 47
skóla. Þess vegna er það, að í
dag njóta teikningar H. C.
Andersen miklu meiri viður-
kenningar þeirra, sem til þeirra
þekkja, en samtíð hans vildi
veita þeim. Menn kunna nú að
meta það, sem i þeim býr, en
þær eru einkennilegar, per-
sónulegar, og sýna mæta vel
hvernig miklir listamannshæfi-
leikar brjótast fram, hvernig
sjálfstæð listaverk verða til.
Allar teikningarnar eru frá
suðurför Andersens árið 1833,
er hann hlaut styrk til Ítalíu-
ferðar. Á þessari ferð lærði
hann mikið og þroskaðist. Síð-
ar sagði hann, að hann hefði
óskað sér að hverfa aldrei heim
aftur fremur en að koma heim
án þess að vera tilbúinn að
skapa sönn skáldverk. Hann
ferðaðist frá Kaupmannahöfn
um Hamborg, Kassel og Frank-
furt til Parísar. Þaðan fór hann
um Júralfjöllin, í gegnum
Rhone-dalinn, til Mílanó og
siðan lengra suður á bóginn,
til Genúa, Písa, Flórens og loks
til Rómar, en þangað kom
hann hinn 18. október 1833.
Þaðan ferðaðist hann til
margra merkra staða, svo til
Capri, Pompeji og Neapel, en
dvaldi að öðru leyti í Róm til
vorsins 1834, en hélt þá heim
og kom við i mörgum borgum,
aðallega i Þýzkalandi og Aust-
urríki.
Á þessari ferð var hugur hans
opinn og móttækilegur fyrir
margs konar áhrifum, eins og
hann getur aðeins verið, er
menn ferðast frá föðurgarði í
fyrsta sinn. Þetta má m. a.
ráða af hinum mörgu riss-
myndum og teikningum, sem
hann gerði á ferðinni, m. a. af
landslagi, götum, krám og
klaustrum, fornum rústum og
grafsteinum.
Þótt Andersen teiknaði margt
um dagana, er nafn hans þó
ekki geymt i huga milljóna
manna i flestum þjóðfélögum
þess vegna. Það eru hin snilld-
arlegu og djúphugsuðu ævin-
týri, sem varðveita nafn hans.
Þau hafa verið þýdd á flestar
þjóðtungur og þau eru orðin
hluti af lífsþroska og uppeldi
hvers ungmennis í menningar-
löndunum. En teikningarnar
eru samt merkilegar. Þær
varpa ljósi á hæfileika þessa
merkilega skálds, sýna þátt í
fari þess og skapgerð, sem ekki
er eins kunnur. Fyrir því hafa
allir sem lært hafa að meta
snilligáfu H. C. Andersen, gam-
an af að skoða myndir hans og
læra nokkuð nýtt um manninn.
Af þessum ástæðum eru sýnis-
horn teikninganna birt hér.
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsœldar á komandi ári
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
PÖNTUNARFÉLAG ESKFIRÐNGA
Eskifirði
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsœldar á komandi ári
Þakkar gott samstarf og viðskipti á liðnum árum
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
Hafnarfirði
Sendum öllum viðskiptavinum og velunnurum
BEZTU JÓLAKVEÐJUR
með ósk um farsœlt nýtt ár
Þökkum viðskiptin á liðnum árum
KAUPFÉLAG STÖÐFIRÐINGA
Stöðvarfirði og Breiðdalsvík
v---------------------------------------------------J
53