Samvinnan - 01.12.1975, Blaðsíða 49
Miðstjórnarfundur alþjóðasambands
samvinnumanna
Framhald af bls. 37.
• STARF ICA í ÞRÓUNAR-
LÖNDUNUM
Síðustu árin hefur starf ICA
stöðugt færzt meir yfir á svið
aðstoðar við þróunarlöndin, en
eins og kunnugt er hefur sam-
vinnuþróunaráratugur þess nú
staðið yfir sl. 5 ár. Á þeim
tíma leggur ICA sérstaka
áherzlu á það að efla með sér-
hverjum mögulegum hætti
starfsemi samvinnufélaga í
þróunarlöndunum, og hvílir
hitinn og þunginn af þvi starfi
á tveimur svæðaskrifstofum
þess. Önnur er í Nýju-Dehli i
Indlandi, og sinnir hún mál-
efnum i Suðaustur-Asíu, en
hún var stofnuð 1960. Hin
skrifstofan er í Moshi í Tan-
saníu, en hún var stofnuð 1968
og hefur Austur- og Mið-Afriku
að starfssvæði. Þessar skrif-
stofur eru skipulagsmiðstöðv-
ar, sjá um upplýsingamiðlun,
annast útgáfustarfsemi, halda
uppi fræðslu og námskeiðum,
fást við rannsóknir og leitast
við að greiða fyrir viðskiptum.
Frá 1969 hefur ICA ásamt þró-
unarmiðstöð sænskra sam-
vinnumanna fjármagnað sér-
staka þróunarstofnun í Suður-
Ameriku (LATICI), sem vinn-
ur að eflingu samvinnufélaga
þar i álfu. Loks er einnig ver-
ið að vinna að því, að ICA geti
sett á stofn þriðju svæðisskrif-
stofu sína í Vestur-Afriku.
Samvinnufélög og stjórnvöld í
Ghana hafa óskað eftir því, að
hún verði þar í landi.
Þessar framkvæmdir eru að
mestum hluta fjármagnaðar úr
sérstökum Þróunarsjóði ICA, en
eins og mörgum mun kunnugt
hefur Samband ísl. samvinnu-
félaga haft þann hátt á síð-
ustu árin að greiða til hans
árlega upphæð sem svarar 5
pence í enskri mynt fyrir hvern
félagsmann í Sambandskaup-
félögunum. f því sambandi skal
þess því getið hér, að á fundin-
um rikti mikil ánægja með
þetta starf það sem af er, og
voru fulltrúar frá öllum heims-
hlutum einhuga um að mæla
með því, að svo mikil áherzla
sem frekast væri mögulegt
yrði lögð á að efla það sem
mest í næstu framtíð.
• FISKVEIÐAR
Þá var á fundinum gefin
skýrsla um starf Fiskimála-
nefndar ICA og nýafstaðna
nýjasc
Cœkm
Cun
o °
1 Bfít
Með snældum (kassettum) og kennslubókum getur
nemandinn af eigin rammleik náð góðu valdi á
tungumálum með 10 — 15 mínútna daglegu námi í
3 — 6 mánuði. Hann þarf ekki aðra leiðsögn en
þá sem er að finna í námsgögnunum.
Nú eru á boðstólum:
Enska án erflðis: kennslubók, 3 snasldur og íslensk þýðing.
Þýska án erfiðis: kennslubók, 3 snaeldur og íslensk þýðing.
Spænska án erfiðis: kennslubók, 3 snældur og íslensk
þýðing.
Sænska handa ykkur: kennslubók, æfingabók, 4 snældur
og íslensk þýðing.
French without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Italian without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Russian without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Ennfremur eru á boðstólum bréfanámskeið
í ensku, þýsku, dönsku, spænsku, frönsku og
esperanto.
HEIMANÁM SEM HENTAR ÖLLUM
BRÉFASKÓLINN
Suðurlandsbraut 32 Reykjavík sími 81255
s •
í? v '
I *■:" g
» /
'U U V
qslurer
veiduknstur
Nú á að veita vel, og ostur er ómissandi. Eigum
við að bjóða ostapinna með fordrykknum?
Byrja á ostasúpu? Gæða okkur á ostakjúklingi?
Bera fram ostabakka til að gogga í með sam-
ræðunum? Fá okkur ostafondue, heitt ostabrauð
eða ostborgara eftir miðnætti? Ostur kemur alls
staðar til greina, þegar gera skal góða veislu.
Það gerir fjölbreytni í framboði og
sú staðreynd að ostur gengur
með næstum öllum mat, /CID\
til bragðbætis. I fTTTff I
Ostur er veislukostur.
55