Samvinnan - 01.12.1975, Side 52
fremur þunnar sneiðar, raðið
þeim á fat ásamt soðnum kart-
öflum og soðnu eða niðursoðnu
grænmeti. 2—3 dl. af soði er
hitað, kryddað og dekkt með
kjötkrafti. 1—2 dl. af þeyttum
rjóma blandað saman við.
Sé tungan borin fram köld
eða sem álegg á brauð er gott
að hafa með henni grænmeti
í olíusósu (ítalskt salat).
Hænsni með ávaxtasalati
2— 3 hænur, vatn, salt.
Jurtaolía eða smjörliki,
2 eggjahvítur, brauðmylsna
3— 4 msk. salt og pipar.
Þvoið hænurnar og sjóðið
þær í saltvatni. Suðutimi fer
eftir aldri og má ætla einn
klukkutíma fyrir hvert ár. Ali-
kjúklingar þurfa minni suðu.
Kælið hænurnar að suðutíma
loknum og steikið þær síðan á
eftirfarandi hátt.
Skerið lærin frá og klippið
siðan bringuna í tvennt eða
skerið bringukjötið heillega
frá beininu og síðan i tvennt.
Hitið feitina. Veltið kjötinu úr
hálfþeyttri hvítu, og brauð-
mylsnu og steikið við fremur
hægan hita. Kryddið með salti
og pipar og raðið kjötinu á fat.
Á fatið eru einnig látnar
franskar kartöflur og soðið
grænmeti eða gúrkusalat. (Þeg-
ar tómatar fást er fallegt að
bera það fram í hálfum tóm-
ötum).
Einnig má setja vínberja-
klasa á annan enda fatsins.
Ávaxtasalat er gott hér með,
þá er það búið til meðan
hænsnin sjóða. Þeytið 2 egg
með 2 msk. af sykri, 1 msk.
sítrónusafa látið i skálina yfir
gufu en gætið þess að gufan
komist ekki upp i skálina. Þeyt-
ið vel þar til eggin hafa auk-
izt um allt að þvi helming og
eru orðin að þéttri froðu. Bæt-
ið sítrónusafa samanvið. Kælt.
Bezt er að hafa blandaða, nið-
ursoðna ávexti i salatið en þá
má drýgja með smátt skornum
eplum, appelsínum eða banön-
um i eggjahræruna og þeyttum
rjómanum (2—3 dl.). Skreytið
með einhverju af ávöxtunum
sem eru í salatinu.
Borið fram vel kalt. Gott með
kjötréttum en einnig með
brauði og kexi. Úr soðinu er
síðar gott að búa til súpur og
sósur, t. d. hvita sósu og láta
það sem skerst utan af bein-
unum þar í ásamt gulrótum og
grænum baunum.
FLJÓTLEGIR
ÁBÆTISRÉTTIR
ís með möndlusykri (nougat)
1 dl. möndlur, 1—1 i/2 dl.
sykur, 2 egg, 2 msk. sykur,
3 dl. rjómi.
Afhýðið möndlurnar og sax-
ið smátt. Hitið pönnuna og
bræðið sykurinn, þar til mynd-
azt hefur hvít froða, setjið þá
möndlurnar saman við. Takið
pönnuna af og hellið möndlu-
sykrinum á smurða plötu. Kæl-
ið og myljið siðan með köku-
kefli. Hrærið eggj arauðurnar
með sykrinum og blandið
möndlusykrinum saman við, þá
þeyttum rjómanum og síðast
stífþeyttum hvitunum. Bragð-
bætið ísinn með sherry ef vill,
og frystið hann siðan i köku-
móti eða venjulegum ismótum.
Athugið að ef ísinn er lengi að
frjósa þarf að hræra upp í
honum, annars setjast egg og
sykur á botninn. Hvolft á fat,
rjómatoppum sprautað yfir og
skreytt með möndlusykri sem
tekinn hefur verið frá. fskök-
um raðað í kring.
ís með súkkulaðisósu
Notið sömu uppskrift af ís
að undanteknum möndlusykr-
inum. Bragðbætið með vanillu.
Frystið.
Súkkulaðisósa
i/2 1. vatn, 125 g súkkulaði
(dökkt suðusúkkulaði), 2 msk.
púðursykur, 1 msk. kartöflu-
mjöl, 1 tsk. vanilla, salt.
Hrærið kartöflumjöl og
helming vatnsins saman og
hitið það þar til suðan kem-
ur upp.
Bræðið súkkulaði í því sem
eftir er af vatninu, bragðbætið
með sykri, hrærið jafningnum
saman við og bætið vanillu og
salti í.
Borið fram með vanilluís,
hrisgrjónaábæti o. fl.
Kakósósa
5 msk. kakó, 4 msk. púður-
sykur, i/2 1. vatn, 1 msk. kart-
öflumjöl, 1 tsk. vanilludropar,
salt.
Blandið kakói, sykri, kart-
öflumjöli og vatni saman, lát-
ið suðuna koma upp. Bragð-
bætið með vanillu og salti.
ísinn er settur í stóra skál
einnig er ágætt að skipta hon-
um í smáskálar. Borinn fram
með volgri sósunni.
fímm hefti
ÓKEYPIS
Samvinnan hefur löngum verið með ódýrustu blöðum,
og er svo enn.
Árgangurinn kostar aðeins 1500 krónur.
Samvinnan kemur nú út tíu sinnum á ári, og er hvert
hefti minnst 28 blaðsíður.
Árgangurinn er því um 300 síður að stærð.
Samvinnan er vönduð að allri ytri gerð; hún er prentuð
á góðan pappír, með litprentaðri forsíðu — og flytur
fjölbreytt efni við allra hæfi.
Nýir áskrifendur Samvinnunnar fá hálfan árgang, fimm
hefti, ÓKEYPIS um leið og þeir gerast áskrifendur.
^Samvinnan
------------------------------------------------------
Undirritaður óskar að gerast áskrifandi að Samvinnunni
Nafn
Heimili
SAMVINNAN
Suðurlandsbraut 32
Reykjavík
<2>
Sparið fé og fyrirhöfn
VIÐ TÖKUAA
af ykkur ómakið
UM LEIÐ og þiö pantið gistingu hjá
Hótel Hof i látið þið okkur vita um ósk-
ir ykkar varðandi dvölina í Reykjavík
og við útvegum m.a. bílaleigubíla með
hagkvæmum kjörum, aðgöngumiða í
leikhús eða að sýningum, borð í
veitingahúsum og ýmislegt annað.
Hótelið er lítið og notalegt og því á
starfsfólk okkar auðvelt með að sinna
óskum ykkar — og svo eruð þið mjög
vel sett gagnvart strætisvagnaferðum
(rétt við Hlemm).
Kynnið ykkur okkar hagstæða vetrar-
verð.
Sérstakur afsláttur fyrir hópa og
langdvalargesti.
tna*am'hiia«ir30«JS(UI
-------
Rauðardrstíg 18
13* 2-88-66
58