Samvinnan - 01.12.1975, Síða 75
Orðalisti
AFC er skammstöfun á Automatic fre-
kvens control. Stilling af og á mörg-
um útvarpstækjum með FM. Skal vera
i afstillingu, þegar stillt er inn á stöð-
ina, síðan sett á og á þá að leitast við
að halda stöðinni inni.
AM er skammstöfun á Amplitudemodu-
lation, sem er styrkmótun. Hún er
notuð á lang-, mið- og stuttbylgjum.
Antiskating. Mótverkun gegn þeim eigin-
leika tónarmsins, að þrýsta nálinni
fastar að þeirri hlið plötuskurðarins
sem er nær miðju. Stilling á antiskat-
ing er háð nálarþunga.
AVX er merking á inngang á magnara,
sem ekki er ætlaður í neitt sérstakt.
Distortion er alls konar bjögun og brengl-
un á hljóðmerkinu í hinum ýmsu lið-
um hljómtækjasamstæðna.
Dynamik er munur frá minnsta og mesta
styrk. Dynamik i venjulegri útvarps-
dagskrá fer sjaldan yfir 30 dB.
Dynamiskt pickup. Það eru tvær aðal-
gerðir:
Electrodynamiskt: þar er merkispenn-
an tekin út af spólu, sem hreyfist á
föstum spegli.
Magnetodynamiskt: þar er merki-
spennan tekin frá fastri spólu, en
nálin hreyfir segul.
í Hi-Fi samstæðum er venjulegust el-
ectrodynamisk pickup með dem-
antsnál.
FM er skammstöfun á Frequencymodula-
tion, sem þýðir tíðnimótun.
Hún er notuð á FM-bylgju.
Flutter. Hraðar hraðabreytingar (sjá
kafla um plötuspilara).
Frequency responce er tíðnisvið (sjá
kafla um hátalara).
Impedence þýðir viðnám. Samanlagt rið-
straums- og jafnstraums-viðnám. Er
notað um viðnám í hátölurum. Mæli-
eining ohm. Oft táknað með gríska
bókstafnum omega.
Intermodulation er bjögun á hljóði, sem
myndast vegna þess að nýjar tiðnir
myndast vegna samlagningar og frá-
dráttar á yfir- og undirtónum.
Á sér stað i mögnurum.
Kanalseparation er rása-aðskil eða hæfi-
leikinn til að greina hljóð að i hægri
og vinstri rás í t. d. mögnurum og
pickupum.
Keramiskt pickup, hefur tvo kristalla sem
hljóðgjafa, sem tengdir eru nálinni.
Þegar nálin hreyfist eftir mishæðun-
um á plötunni gefur hún kristöllunum
högg sem við þau gefa frá sér merki-
spennu í samræmi við mishæðirnar.
Merkið er síðan leitt inn á magnara.
Músíkwött gefa hærri tölu en sínuswött
(sjá sínuswött).
Rumble er niður frá drifmótor, sem berst
til hljóðgjafa (t. d. pickups).
Sinuswött. Útgangsorka magnara með
jöfnum óslitnum tón.
Tuner. Útvarp sem er magnaralaust;
þarf því að tengjast magnara og há-
talara.
Volymencontrol er styrkstilli.
Wow. Hægar hraðabreytingar (sjá kafla
um plötuspilara).
Crossover frequency er skiptitíðni eða sú
tíðni þar sem millitóna hátalari tekur
við af bassahátalara og diskant tekur
við af millitónahátalara.
Hum er bjögun í mögnurum, lágur, þung-
ur tónn. Stafar oft af ónógri jarðteng-
ingu.
Noise er einnig bjögun í mögnurum og er
af hærri tíðni en hum, heyrist sem
suða.
Pickup, sjá Crystal pickup (hljóðdós)
(segulþreifir, magnetiskt pickup).
Power output er heildar útgangsorka.
Uppgefin í wöttum, sínus eða músík.
Tape er segulband eða segulbandstæki.
Tweeter er hátóna (diskant) hátalari.
Woofer er lágtóna (bassa) hátalari.
15