Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Side 25
Tímarit íslenskra sámvinnufélaga.
71
nefndar er að útvega framkvæmdarstjóra, til þess eftir
skýrslum fulltrúanna að panta vörur, er flytjist til Sauð-
arkróks í byrjun júlímánaðar, og borgist með markaðsfé
að haustinu. Ennfremur annist félagsstjórnin uppskipun á
vörunum, ráði mann til að sjá um geymslu þeirra og af-
hendingu, og jafni niður kostnaði þeim er af því leiðir.
Til þess að koma vörunum í trygga geymslu meðan ver-
ið er að vitja þeirra, skyldi byggja hús — eins og áður
er getið — á Sauðarkróki, er félagsmenn kosti með hluta-
tillögum þannig, að 8 hlutir eða 200 krónur að minst'a
kosti komi úr hverri deild.
Til húsbyggingarinnar var safnað 108 hlutum
= kr. 2700,00
Húsið uppkomið kostaði . . kr. 2024,75
Bryggja með palli og kostnaður
við bát.....................— 134,44 = — 2159,19
Eftir voru -—- 540,81
Þar af voru 500 kr. lánaðar bændaskólanum á Hólum gegn
5% vöxtum og ábyrgð skólastjórnarinnar.
Af gerðabók vörupöntunarfélagsins sést, að þessi versl-
un hefir haldið áfram í saina sniði og verið allstórvaxin
í 4 ár, 1884—1887, en árið 1888 er verslunarmagnið ekki
skráð í bókinni. — Verðhæð vörunnar sem pöntuð var er
hér talin'í krónum:
Árið 1884 ................um 20000
— 1885 ..................— 53728
— 1886 ..................— 45199
— 1887 ..................— 44509
Nærri V3 af vörunum hafði farið í austustu hreppa
Húnavatnssýslu, Bólsstaðahlíðar, Svínavatns, Engihlíðar,
Torfalækjar, og sum árin, Vindhælis og Sveinsstaða lireppa.
Árið 1887 gerði Jón Vídalín félaginu tilboð að panta
fyrir það vörur og senda hingað í mars eða apríl. Stjórn-
arnefndin virðist hafa verið ófús að breyta til, og fulltrú-
arnir vildu bera það undir deildirnar. — Á fundi að Gunn-
steinsstöðum 28. des. s. á., voru stjórnarnefndarmennirnir: