Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Blaðsíða 29
Tímarit íslenskra samvinnufélaga 75
til að annast þau, með því að hann sjálfur hafði þá margt
að sýsla fyrir sveit sína.
Samkvæmt vörubókum Búnaðarfélags Svínavatns-
lirepps frá 1885—1890, sem enn eru til, voru það tiltölu-
lega fáar vörur sem Coghill útvegaði, það er hrisgrjón,
bankabygg, hveiti, einkum „overhead“ liveiti, sem mikið
var um þá, kaffi, sykur, tóbak steinolía, járn, kol, ljáblöð,
og brýni. Coghill seldi vörurnar „cif“ þ. e. á Sauðárkróks-
höfn, en félagsmenn önnuðust uppskipun og nam sá kostn-
aður ásamt þóknun til pöntunarstjórans hér 2% af vöru-
verðinu árið 1889 en 3°/0 árið eftir1).
Verðmunur á þessum vörum og samskonar vörum lijá
kaupmönnum á Blönduósi var oft geisimikill, t. d. var
1889 járn lijá félaginu 11 aura pundið en 20 hjá kaup
mönnum, kaffi 75 aura en 105 aura lijá kaupmönnum.
Matvörur voru 15—40°,/0 ódýrari í félaginu og sykur 25
-50%.
Þá þóttu sauða- og liestakaup Coghill góð og ekki
minst um það vert að geta fengið hjá lionum gullið góða
J) Jón Guðmundsson frá Brennigerði, nú hreppstjóri á Sauðár-
króki (um áttrætt), sem verið hefir mikill styrktarmaður um langt
skeið alls pöntunarfélagsskapar, er vörur hefir feng'ið á Sauðárkrók,
hefir skýrt -frá þvi, að fyrstu ár Vörupöntunarfélagsins samdi forseti
þess (E. P.) við æfðan uppskipunarmann á Sauðárkróki um upp-
skipun vara félagsins gegn 25 aurum fyrir hvert stykki og fékk
maðurinn þvi jafnt fyrir sykurtoppinn sem oliufatið. Jón benti þá
forseta á, að réttara væri að félagið annaðist sjálft uppskipunina, en
honum þótti það óvarlegt, lét þó tilleiðast með þvi móti, að Jón
stæði fyrir uppslcipun. Kom þá i Ijós að uppskipunarkostnaðurinn
varð aðeins T1/, eyrir á stykki.
Dæmi þetta sýnir ijóst, að þegar bændur lengst ofan úr sveit-
um og alóvanir allri verslun, hófust handa um kaupfélagsskapinn,
þá urðu þeím ýms mistök á, svo sem eðlilegt var, en þeir sem ekki
létu hugfallast fetuðu sig áfram um nauðsynlega þekking, og féiags-
skapurinn dafnaði þrátt fyrir mistökin, þegar heiðvirðir og greindir
menn stóðu fyrir lionum eins og hér, og sýnir það eftirminnilega
lifsþrótt hans og heilbrigði.