Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Blaðsíða 33
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 79 •
þess að ræða um málið, en niðurstaðan orðið sú, að ekki
þætti gjörlegt, að slíta félagsskap við Skagflrðinga, til
þess að ganga í nýtt félag, sem ósýnt var hvernig mundi
reiða af, en látið líklega, að ef félag kæmist hér á fót,
og því gengi vel, þá mundu þeir máske koma með í
framtíðinni. Sterkasta ástæða þeirra, að vilja ekki þá þeg-
ar ganga úr Kaupfé-
lagi Skagfirðinga virð-
ist hafa verið sú, að
flestallir hreppsbúar,
höfðu þá öll sín verzl-
unarviðskifti á Sauð-
árkróki, og alment
var álitið að kaup-
mannaverslun væri
þá mun betri þar, en
á Blönduósi, og að
sjálfsögðu var þægra,
að sækja pöntun
þangað, sem verzlun
var að öðru leyti
rekin.
I vestur sýslunni
voru undirtektir það
daufari, að þar varð
ekki komið á fund-
um nema í Þverár-
hreppi, og þar var Þorleifur Jónsson
það aðeins ytri hluti hreppsins, sem vildi aðhyllast nýja
kaupfélagsstofnun. Hinir vestursýslubúarnir vildu halda
sér við Kaupfélag Dalamanna, sem þá tók yfir: Snæfells
ness., Dalas., Strandas. og Húnavatnssýslu austur að Gljúf-
urá, þó var þá þegar komið nokkurt ósamþykki í það fé-
lag, og aðalfundi þess veturinn áður, hafði komið fram
tillaga um að skifta því í tvö félög; þannig að Snæfells-
sýsla og Dalasýsla yrðu saman áfram, en að í Stranda-