Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Side 44

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Side 44
90 Tímarit íslenskra samvinnufélaga. á því heldur lægra, en hjá kaupmönnum, aftur var verð á vorull tölvert hærra en hjá kaupmönnum. Saltfiskur, sem félagið sendi út, seldist líka fremur vel. Arið 1903, skiftu enn sömu deildir við félagið, og varð pöntun nál. '/3 meira en árið áður. A aðalfundi félagsins 10. febi’. var afi'áðið að senda ekki út lifandi sauðfó fremur en ái’ið áður, en á auka- fundi sem haldinn var 3. júní var ákveðið samkvæmt tillögum Zöllners, að reyna að senda nokkuð af því, þareð útlit var fyrir að verð á saitkjöti mundi vérða mjög lágt. Það slys vildi til með útsendingu á þessu fé, að skip, sem tók nokkurn hluta þess, hrepti ofsaveður í hafi og dráp- ust þá rúmar 200 kindur af farminum, en í þeim skipsfarmi átti þetta félag lítinn hluta, svo að það varð ekki til- finnanlegur skaði fyrir félagið, og verðið var mjög svip- að og það hefði orðið, ef fénu hefði öllu verið slátrað hér heima. Verð á ull og kjöti, sem félagið sendi út þetta ár varð heldur hærra en hjá kaupmönnum. A þessu ári fauk vöruskúrinn á Hólanesi, sem félagið l)yggði árið áður enda hafði hann ekki verið fullgjörður, viðir skemdust lítið, og var hann endurbyggður og betur umbúinn, kostaði það rúmar 70 krónur. Engihlíðarhrepps- deild byggði á árinu vöruskúr norðanundir kaupfélags- húsinu á Blönduósi, og lánaði félagið deildinni til þess 100 krónur rentulaust, gegn því, að deildin afsalaði sér afnotarétti af húsi félagsins. Þennan skúr keypti svo fé- lagið síðar. Þorkelshólsdeild, sem ekkert hafði skipt við félagið nokkur ár, en sem ekki hafði borgað að fullu skuld sina við félagið hafði krafist útborgunar á varasjóðshluta sín- um, og var hann samkvæmt útreikningi þar til kjörinna manna kr. 127,70, var það útborgað á þessu ári, enda greiddist þá skuld deildarinnar að fullu. Arið 1904 jókst enn vörupöntun félagsins töluvert, enda var þá aptur reist við deild í Torfalækjarhreppi, sem pantaði töluverðar vörur. Auk þeirra vörutegunda, sem

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.