Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Síða 49

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Síða 49
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 95 verði. En auk þess stóð félagið fyrir fóðurvörupöntun fyrir alla hreppa sýslunnar. Vorið 1906 var svo hart, að víðast um sýsluna var öllu sauðfé gefið inni til maíloka. Voru því heyfyrningar víðast mjög litlar. Sumarið var svo bæði stutt og kalt, svo að heyafli var yfirleitt með minsta móti. Heybirgðir voru því ekki sem bestar fyrir þann pening, sem á vetur var settur, ef hann yrði harður. En fyrir veturnætur lagði að með frosti og snjóhríðum, og sauðfé því tekið mjög snemma á gjöf, og um lok des- embermánaðar var víðast um sýsluna orðið haglaust einnig fyrir hross, svo útlitið var mjög ískyggilegt ef harðindi héldust fram á vor. Kaupfélagið gekkst því fyrir pöntun á rúgmjöli og nokkrum öðrum fóðurvörum fyrir alla sýsluna. Þessi fóðurvörupöntun varð fyrir nokkuð meiri upphæð, en aðal vörupöntun félagsins, og komu þessar fóðurvörur með skipinu „Patria“ til Skagastrandar, Blönduóss, Hvammstanga og Borðeyrar uin mánaðamótin febrúar og mars, og var það í fyrsta sinn, sem skip kom hér með vörur á þcim tíma árs, enda þótti harðsótt að ná vörunum í land í gaddfrostum og verstu ótíð, þó liepn- aðist það slysalaust, að öðru en þvi, að líiill hluti af vör- unum blotnaði dálítið af sjó í uppskipuninni. Kostnaður á hinum venjulegu pöntuharvörum varð þetta ár 24"/0 af innkaupsverrði vörunnar, en 38°/0 á fóðurvörunum. Sala á íslenskum vörum, sem félagið sendi út, gekk sæmilega að öðru leyti en því, að sala á linsöltuðu dilka- kjöti gekk fremur illa, og ekki náðist fyrir það jafn hátt verð og fyrir annað kjöt, sem sent var út sterksaltað, og stafaði það af því, að nokkur hluti þessa linsaltaða kjöts skenundist nokkuð, var talið súrt þegar það kom út, en til allrar lukku var þetta að eins lítill hluti af því kjöti, sem félagið sendi út þetta haust. Árið 1908 skiptu sömu 4 deildir við pöntunardeildina, sem árið áður. Vöruumsetning pöntunardeildarinnar varð nokkuð meiri en árið áður, en söludeildin seldi vörur fyrir kr. 13.582.10. Ágóði af þeirri verslun var 8°/0.

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.