Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Síða 55
Tímarit íslcnskra samvinnufélaga. 101
stjórn félagsins sérstaklega vel úr hendi, enda var hann
áður töluvert æfður við verslunarstjórn, og sérstaklega
lipur maður og samvinnugóður. Var hans því mjög saknað
af félagsmönnum, og margir voru kvíðnir yfir því, að
örðugt yrði að fá hæfan mann til þess að taka að sér
störf hans. En félagið var þá svo heppið að það réði til
starfsins Pétur Theódórs, sem enn er formaður félagsins
og sölustjóri. Hafði hann þá undanfarin ár verið fastur
starfsmaður við félagið, og þá síðasta árið að mestu staðið
fyrir því í sjúkdómsforföllum Skúla, og munu allir, sem
til þekkja, telja að honum hafi liepnast að leysa þessi
störf mjög vel af hendi.
Arið 1916 varð vörupöntun lítið eitt hærri að krónu-
tali en árið áður. En söludeildin seldi vörur fyrir rúmlega
64.000 krónur.
Agóði af söludeildarversluninni var 6%.
Þess er áður getið að í ársbyrjun 1911 varð C. Maur-
itzen umboðsmaður félagsins, en með byrjun ársins 1916
liófust viðskifti Kaupfélagsins víð S. I. S. og fékk það þá
töluvert af vörum frá því, þó hefir félagið að þessu einnig
skift við Mauritzen, og fengið frá honum mikið af ensk-
um vörum.
Þetta ár lagði félagið enn af varasjóði sínum krónur
927.38 tll bátaskýlisins, sem haldið var áfram að byggja
og endurbæta, sem og til að bæta uppskipunartækin á
bryggjunni.
Árið 1917 lagði félagið enn til af varasjóði sínum kr.
698.00 til bryggjunnar og bátaskýlisins. Þetta ár varð
verslunarumsetning lítið eitt minni en árið áður. En ágóði
af söludeildarverslun varð 10%.
Árið 1918 tvöfaldaðist vöruumsetning félagsins, enda
stórhækkaði verð á öllum vörum. Ágóði af söludeildar-
verslun varð 10%. Á því ári var enn endurbætt steinhús
félagsins, var þá settur kvistur á vesturhlið þess og þar
gerð í stand tvö íbúðarherbergi.
Árið 1919 minkaði umsetning pöntunardeildar um %,