Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.08.1922, Qupperneq 56
102 Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
en aftur varð umsetning söludeildarinnar töluvert meiri
en árið áður. Ágóði af söludeildarverslun varð 10°/0. Ull
sem félagið sendi út, seldist miklu betur heldur en kaup-
menn gáfu fyrir hana hér á Blönduósi.
Á þessu ári keypti félagið vélbátinn „Leif“ til léttis
við upp- og útskipun, og var honum um tíma lialdið út
til fiskjar með hagnaði. Einnig var á þessu ári myndaður
sérstakur sjóður, „Eyrningarsjóðuru, og var hann þannig
myndaður að til hans var lagt 3°/0 af bókfærðu verði
liúseigna, og 20 °/0 af bókfærðu verði verslunará-
halda og uppskipunartækja. Sjóður þessi var í árslokin
kr. 1036.18.
Árið 1920 tvöfaldaðist vöruumsetning félágsins, enda
náði þá vöruverðið, þ. e. á útlendu vörunum, hámarki,
en verð á innlendum vörum stórféll, enda seldist nll fé-
lagsins langt fyrir neðan það verð, sem kaupmenn borg-
uðu ull það ár. Ágóði af söludeildarverslun varð 6°/0.
Þess er áður getið að félagið hafði gengið í S. I. S.
og byrjað viðskifti við það árið 1916. Síðan hefir það smá-
aukið viðskifti sín þar, og nú síðustu árin skift þar að
mestu leyti, þó hefir það altaf haft nokkur viðskifti við
C. Mauritzen.
Félagið hefir altaf í árslokin verið skuldlaust við
Sambandið þar til í árslokin 1920, að það skuldaði því
um kr. 140.000.00, en þá átti félagið líka í vörslum S. I.
S. alla ársullina óselda, og Sláturfélag Austur-Húnvetn-
inga átti mikið af sínum vörum þar líka óselt, og þegar
þessar vörur voru seldar, mun þessaii skuld hafaverið um
það bil lokið.
Til frekari skýringar ástæðujn félagsins, í lok þessa
25 ára tímabils, er hér settur síðasti efnahagsreikningur
þess.
A k t i v a:
1. Fasteignir:
a. Steinhús með sölubúð og íbúð
b. Timburhús með skúrum