Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Side 18

Stúdentablaðið - 01.12.1965, Side 18
18 STÚDENTABLAÐ næst verður nokkuð rætt um hugsanlega þátttöku Islands á þessum vetvangi. Alþjáðlega skipulögð sam- hjálp, eða hjálp á vegum ein- stakra ríkja? Eins og þegar hefir verið getið hafa efnahags- vandamál þróunarlandanna verið mjög til umræðu á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna enda myndi það vafalaust í beztu samræmi við óskir íbúa þessara landa, að aðstoð sú sem þau fá, sé sem mest á vegum alþjóðlegra samtaka, þar eð slíkt veiti bezta trygg- ingu fyrir því, að hjálpin verði ekki bundin pólitízkum skil- yrðum. En þótt Sameinuðu þjóðirnar og einstakar stofnan- ir, er starfa á vegum þeirra, svo sem Matvælastofnunin (F A O) hafi að vísu látið þessi mál mjög til sín taka, þá hef- ir reynslan sýnt það, að mikl- ir örðugleikar hafa verið á því, að afla nægilegs fjár til þessarar starfsemi, þannig að úthlutun fjárins væri á vegum slíkra alþjóðlegra samtaka. Þau lönd, sem mest hafa ver- ið aflögufær í þágu slíkra verkefna hafa ekki talið það samrýmast hagsmunum sínum að leggja fram mikla fjármuni án þess að geta haft nema tak- mörkuð áhrif á það hvernig slíkum fjármunum yrði ráð stafað. Veldur „kalda stríðið" og sú tortryggni er það hefir skapað þjóða í millivafalaust miklu hér um. Raunin hefir því orðið sú, að mest af þeirri aðstoð sem þróunarlöndunum er veitt, er í þeirri mynd að hjálpin er veitt af einstökum ríkjum og ráðstafað af þeim í samráði við lönd þau, er hjálp- ar þessarar hafa notið. Vafalaust ber að harma það frá sjónarmiði þess málefnis, sem hér er um að ræða, að sú skuli hafa orðið raunin á, að hin alþjóðlegu samtök hafa ekki nema að litlu leyti reynst þess megnug að hafa forystu um lausn þessara viðfangsefna. Telja má víst að skipulagning aðstoðarinnar við þróunarlönd- in á vegum alþjóðlegra sam- taka myndi gefa hina beztu fáanlega tryggingu fyrir því að hjálp þessi megi verða sem árangursríkust og þau verkefni að jafnaði látin sitja í fyrir- rúmi, sem mest eru aðkallandi. En hvað sem því líður er það staðreynd, að mest af þeirri að- stoð, sem þróunarlöndunum er veitt er á tvíhliða grundvelli, þ. e. hún er veitt af einstökum ríkjum sem ákveða hverjir skuli njóta hennar og í hvaða mynd. Til er einnig sú millileið milli tvíhliða aðstoðar og al- þjóðlegrar skipulagningar að- stoðarinnar að nokkur lönd stofni til samvinnu sín á milli um ráðstöfun þess fjár, er þessi lönd, hvort um sig ákveða að leggja fram til hjálpar þróun- arlöndunum. Sem dæmi um þetta má nefna samvinnu þá sem Norðurlöndin, að íslend- ingum undanteknum hafa sín í milli um ráðstöfun þess fjár er þau veita til þessarar starf- semi. í hvaða mynd er aðstoðin veitt? Megintilgangur aðstoð- arinnar við þróunarlöndin er auðvitað sá, að auka fram- leiðsluafköstin í þessum lönd- um, þannig að vinna megi bug á þeirri sáru fátækt og þeim skorti, er þar ríkir. Orsök ör- birgðarinnar í þessum löndum er sjaldnast sú, að náttúrugæði séu minni þar en í þeim lönd- um, sem lengra eru komin á þróunarbrautinni, heldur hitt, að þjóðir þær, er þessi lönd byggja, skortir fjármagn og þekkingu til þess að hagnýta þau náttúruauðæfi, sem fyrir hendi eru. Hér við bætist og, að fólksfjölgun er mjög ör í mörgum þessara landa, en slíkt torveldur auðvitað, að fram- leiðsluaukningin, ekki sízt aukning matvælaframleiðsl- unnar, geti haldizt í hendur við mannfjölgunina. Með hliðsjón af ofangreindu hefir aðstoð sú, sem þróunar- löndunum hefir verið, veitt einkum verið með eftirfarandi hætti. 1. Rannsóknir á náttúru- auðlindum þróunarlandinu og aðstoð við gerð framkvæmda- áætlana, þar sem á skipulegan hátt er raðað niður þeim fram- kvæmdum, sem talið er hyggi- legast að ráðast í til lausnar efnahagsvandamálum ríkis þess, er í hlut á. 2. Fjárframlög í mynd lána og/eða gjafa til þess að standa straum af kostnaði við verk- legar og aðrar framkvæmdir í þágu uppbyggingar atvinnu- veganna í þróunarlöndunum. 3. Tækniaðstoð. Þar sem fá- fræðin er vafalaust einhver mikilvægasta hindrunin á vegi þess, að hægt sé að draga úr örbirgð þróunarlandanna, er mikil áherzla á það lögð, að auka þekkingu almennings í þróunarlöndunum, ekki sízt tækni og verkmenningu. Hefir þessi þáttur hjálparinnar jafn- vel verið svo stór, að eins og kunnugt, er, hefir nafnið „tækniaðstoð við þróunarlönd- in“ verið notað sem samnefn- ari yfir alla þá hjálp, sem veitt hefir verið í þessu skyni. Þetta er að vísu villandi, því að um aðstoð í ýmsum öðrum mynd- um er að ræða, en sennilega er þetta hinn mikilvægasti ein- staki þáttur hjálparinnar. Tækniaðstoðin er svo á ýms- um myndum. I fyrsta lagi er þróunarlöndunum veitt bein aðstoð með því að sérfræðing- ar eru sendir þeim til þess að hafa með höndum kennslu- störf í sinni grein eða láta íbúa þeirra njóta starfskrafta sérfræðinganna á annan hátt, svo sem að þeir hafi með hönd- um leiðbeiningarstarfsemi o.fl. í öðru lagi er lagt fram fé til þess að koma á fót skólum og öðrum menntastofnunum í þessum löndum. 1 þriðja lagi taka lönd þau, er aðstoðina veita á móti námsfólki frá þróunarlöndunum og annast þjálfun þeirra og menntun. Rétt er að vekja athygli á því, að ráðstafanir þær, sem gerðar eru á þennan hátt til aukningar menntunar íbúa þróunarlandanna eru ekki ein- vörðungu fólgnar í eflingu verkkunnáttu og tæknimennt- unar í þrengri merkingu þess orðs heldur er einnig lögð á- herzla á það að efla hæfni til skipulagningar, málakunnáttu og annað, sem auðveldar sam- skipti þróunarlandanna og ann- arra landa. Mikil áherzla hef- ir einnig verið lögð á „tækni- aðstoð“ í þeirri mynd, að skapa skilyrði fyrir aukinni sparifjár- myndun í þróunarlöndunum t. d. með því að vinna að því, að koma þar á fót stofnunum, er á öruggan hátt ávaxti spari- fé íbúanna. Er tilgangur þeirra auðvitað sá, að hjálpa þróun- arlöndunum þannig til þess að leysa sjálf fjármagnsvandamál sitt. 4. Gerð „fjölskylduáætlana" Þar sem megintilgangur að- stoðarinnar við þróunarlöndin er útrýming örbirgðarinnar í þessum löndum, eða aukning þjóðartekna á íbúa, þar er aukning framleiðsluafkasta ekki eina leiðin, sem til greina kemur til að ná settu marki. Eins og áður var nefnt, er offjölgun fólks, þ. e. meiri fólksfjölgun en nemur fram- leiðsluaukningunni, ein sér me^inorsök er heldur fátækt- inni við í þessum löndum. Hinar miklu framfarir, sem orðið hafa í læknavísindunum og þróunarlöndin hafa orðið aðnjótandi vegna hjálparsstarf- seminnar í þágu þeirra, hafa jafnvel orðið til þess að auka þennan vanda, þar sem þessar framfarir hafa örvað fólksfjölg- unina, án þess að um hafi ver- ið að ræða samsvarandi aukn- inga framleiðsluafkasta. Ein þeirra leiða, sem til greina kemur til þess að draga úr ör- birgðinni í þróunarlöndunum, er því sú, að leitast við að hefta hina öru fólksfjölgun með upplýsingarstarfsemi með- al íbúanna sem nauðsyn þess að fólksfjölgun sé haldið í skefjun, útbreiðslu þekkingar á því hversu megi takmarka fæðingar o. s. frv. Fræðsla af þessu tagi hefir verið kölluð „fjölskylduáætlanir“ og er gerð þeirra einn þáttur aðstoðarinn- ar við þróunarlöndin. Mjög er það auðvitað mis- munandi, hverja áherzlu þau lönd, er tekið hafa þátt í að- stoðinni við þróunarlöndin, hafa lagt á hvern hinna ein- stöku þátta hjálparinnar sem hér hefir verið gerð grein fyr- ir. Slíkt fer í fyrsta lagi eftir

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.