Stúdentablaðið - 01.12.1965, Síða 29
STÚDENTABLAÐ
29
böndum tannlæknanemafélaga,
Alþjóðasambandi tannlækna-
nema (I.A.D.S.) og Sambandi
norrænna tannlæknanema (N.
O. S.). Alþjóðasambandið hélt
árlegan sumarkongress sinn í
London í ágúst sl., og sótti for-
maður félagsins þingið. Einn-
ig sótti hann ásamt ritara fé-
lagsins þing N. O. S., sem hald-
ið var í Árhus sl. sumar. Fé-
lag tannlæknanema hefur á
undanförnum árum haldið
uppi stúdentaskiptum við fé-
lög innan N. O. S. Á þessu
ári áttum við skipti við Odont-
ologisk forening í Kaupmanna-
höfn og Odontologiska foren-
ingen í Umeá í Svíþjóð, en
þar er nýr tannlæknaháskóli,
einn sá alfullkomnasti á Norð-
urlöndum. Af ofanskráðu má
sjá að starfsemi félagsins stend
ur með allmiklum blóma, þrátt
fyrir ýmislegt sem er starf-
seminni fjötur um fót eins og
t. d. alger skortur á húsnæði
undir félagsstarfsemina og fæð
félagsmannanna, en þeim fer
fækkandi frekar en hitt vegna
ástandsins í deildarmálunum.
Er það von okkar allra að úr
þessu verði hægt að bæta hið
fyrsta.
Sigurður L. Viggósson
stud. odont.
Frá
Orator
Allir stúdentar innritaðir í
lagadeild Háskóla Islands eru
eo ipso félagar í Orator. Mark-
mið félagsins er að vinna að
þeim hagsmunamálum laga-
nema, er varða nám þeirra og
skóla nokkru. Ekki er því að
óttast, að viðfangsefnin þrjóti
hjá þessu elzta deildarfélagi
háskólans.
Félagsstarfsemin hefir það
að megin markmiði, að þjálfa
laganema í meðferð lögfræði-
legra viðfangsefna, rökfimi,
mælskulist og öðru því, sem
prýða má góðan lögfræðing.
Einn meginþátturinn í starfi
Orators er útgáfa Úlfljóts, sem
er málgagn félagsins út á við
og eitt helzta vísindarit um
lögfræðileg efni hér á landi. 1
ritið skrifa bæði laganemar og
lögfræðingar, svo og innlendir
og erlendir vísindamenn.
Úlfljótur kemur út ársfjórð-
ungslega og er röskar 50 bls.
að stærð. Blaðið hefur komið
út í 18 ár.
Málflutningur er væntanlega
vaxandi þáttur í félagsstarf-
seminni. Undanfarin ár hafa
að jafnaði verið flutt tvö mál
á ári, en nú eru horfur á að
auka þennan þátt verulega.
Fyrsta málið, er flutt var i
bæjarþingi Orators, var flutt
fyrir aldarfjórðungi síðan. Var
það svokallað Tertumál. Voru
tildrög þess eitthvað á þá leið,
að kona í Kaupmannahöfn
pantaði rjómatertu hjá bakara
og átti að fá hana senda heim.
En margt fer öðru vísi en ætl-
að er. I sama húsi og konan
bjó í vildi svo til, að verið var
að heyja afmæli þennan dag
og sendillinn, sem kom með
tertuna, afhenti hana í ógáti í
þann stað, og þar var tertunni
banað í þeirri trú, að hún væri
afmælisgjöf. Upphófust nú mik
il málaferli, er afmælisbarnið
neitaði að borga. En að loknum
málflutningi í bæjarþingi Ora-
tors fékkst þó aldrei endanleg-
ur dómur sökum ósamkomu-
lags milli dómaranna. Og við
það situr enn. Stjórn Orators
hefir nú fullan hug á að taka
mál þetta upp að nýju og
freista þess, að málið fái far-
sælli lyktir.
4. desember n.k. verður bæj-
arþing Orators sett í hátíðasal
háskólans af dómforseta, Sig-
urði Gizurarsyni og fyrir verð-
ur tekið málið 2/1965. — Að
loknum málflutningi mun full-
trúi yfirborgardómara, Björn
Friðfinnsson, reifa málið og
leiða almennar umræður um
viðfangsefnið. Væntanlega
verður bæjarþing Orators fjöl-
sótt.
Á almennum félagsfundum,
sem haldnir eru einir 10 á ári,
koma lögspakir fræðimenn og
fjalla um hin margvíslegu efni,
sem lögfræðin fæst við. Að
framsögu lokinni hefjast síðan
almennar umræður, laganem-
ar varpa fram fyrirspurnum til
fyrirlesara og taka þátt í um-
ræðum, sem venjulega erfitt
er að slíta.
Auk þess, sem að framan
greinir mætti nefna hinn ár-
lega vísindaleiðangur laga-
nema og árshátíðina 16. febrú-
ar. I ár sóttu menn heim Pál
sýslumann Hallgrímsson í Ár-
nessýslu. Flutti hann erindi
leiðangursmönnum til mikils
fróðleiks um embætti sitt. Síð-
an voru ýmsir merkisstaðir í
sýslunni sóttir heim, m. a. var
komið við á vinnuhælinu að
Litla-Hrauni. Sigurður Líndal
kynnti mönnum sögu Kambs-
ránsins og staðhætti að Kambi.
Auk þess flutti hæstaréttarritari
gagnmerkt erindi á Þingvöllum
um lögtöku Jónsbókar. Hátíðis-
dagurinn 16. febrúar er að vanda
hátíðlegur haldinn, og er þá mik-
ið um dýrðir. Haldnir eru vís-
indalegir fyrirlestrar, mál eru
sótt og varin á bæjarþingi Ora
tors, og merkar þjóðfélags-
stofnanir eru sóttar heim s. s.
Alþingi, borgarstjórn og sendi-
ráð.
Orator er aðili að Norræna
laganemaráðinu. Vinnur það, að
eflingu kynna og samvinnu nor-
rænna laganema og prófess-
ora. Ráð þetta hefur nýlega
verið sett á laggirnar. Vænta
norrænir laganemar mikils af
starfsemi þess.
Hér hefur verið stiklað á
stóru og mörgum þáttum
sleppt, er ræða mætti. Ljóst
má þó vera, að starfsemi Ora-
tors er ekki aðeins mikilvæg-
ur þáttur í félagslífi laganema
almennt heldur jafnframt stór
þáttur í sjálfu laganáminu.
Jón Oddsson, stud. jur.
Frá Félagi
verkfræði-
nema
Deildarfélag verkfræðinema
var stofnað í janúar 1948 og
hefur verið starfrækt síðan. I
haust innrituðust 34 nýstúdent-
ar í deildina, en í fyrrahaust
21 og þóttu þá margir. Þetta
er þó eðlileg þróun, þ. e. raun-
vísindi eiga æ ríkari þátt i
þjóðfélaginu. I deildinni eru
alls 70 nemendur.
Félagsstarfsemi innan deild-
arinnar hefur staðið með nokk-
uð misjöfnum blóma á ýmsum
tímum hennar, en hefur þó
glæðst undanfarin ár. Hefur
deildin þó ekkert deildarher-
bergi, og er það náttúrulega ó-
hæft.
Á síðasta aðalfundi var sam-
þykkt tillaga þess efnis, að 1.
árs menn fengu kosinn áheyrn-
arfulltrúa í stjórn félagsins og
fengu þannig betra tækifæri
til að koma óskum sínum á
framfæri og fylgjast með störf
um félagsins.
Undanfarin ár hefur aðbún-
aður deildarinnar einkum varð-
andi húsnæði og áhöld verið
mjög ábótavant. Stafar þetta af
óvanalega mikilli fjölgun nem-
enda. Verkfræðinemar hafa til
skamms tíma kvartað sáran
yfir lélegum teikniborðum og
ekki að ástæðulausu. Nú hefur
verið úr þessu bætt og ný hent
ug og snyrtileg borð fengizt.
Ríkir mikil gleði meðal verk-
fræðinema yfir þessu.
í marz síðastliðnum var far-
ið í vísindaleiðangur til Surts-
eyjar. Tókst hann með ágæt-
um. Var lagt af stað úr Reykja-
vík kl. 6 að morgni áleiðis til
Þorlákshafnar. Þar vildi til, að
einum gá(mmíbátnum hvolfdi
í lendingu, og féllu nokkrir
prófessorar ásamt tveimur
nemendum útbyrðis. Ekki varð