Fréttablaðið - 26.09.2009, Qupperneq 35
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
SÓLSKINSDRENGURINN verður endursýnd
í Háskólabíói dagana 28. september til 1. október.
Sýnd verður ensk útgáfa myndarinnar þar sem stór-
leikkonan Kate Winslet er í hlutverki sögumanns.
Úlfhildur Þorsteinsdóttir er eitt
þeirra níutíu ungmenna sem munu
flytja fimmtu sinfóníu Sjostakov-
itsj með Ungsveit Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Háskólabíói
klukkan 17 í dag, en hún hefur
verið á æfingum með sveitinni frá
því um miðjan mánuðinn. Sveitin
er skipuð ungmennum á aldrinum
tólf til 25 ára og er þetta í fyrsta
skipti sem tónlistarnemendum á
þeim aldri gefst tækifæri til að
spila saman í jafn stórri hljóm-
sveit.
„Þetta hefur verið frábært ferli
og ómetanlegt að fá að vinna með
fagmönnum á borð við Rumon
Gamba, aðalhljómsveitarstjóra
Sinfóníuhljómsveitarinnar, Guð-
nýju Guðmundsdóttur konsert-
meistara og öðrum leiðtogum
hljómsveitarinnar sem hafa
leiðbeint hverri rödd fyrir sig,“
segir Úlfhildur. Að tónleikunum
loknum ætlar hluti hópsins að
halda upp á áfangann með því að
sækja útitónleika Gus Gus sem
verða haldnir í bakgarðinum á
Laugavegi 56 til að fagna útkomu
sjöundu plötu teknótríósins.
Úlfhildur byrjaði að læra á fiðlu
þriggja ára gömul í Suzukiskóla
íslenska Suzukisambandsins eins
og hann hét þá. „Amma mín og
mamma eru báðar fiðluleikarar
og lá fiðlunámið því nokkuð beint
við,“ segir Úlfhildur, sem er stað-
ráðin í því að leggja fiðluleikinn
fyrir sig. „Mig langar að fara út
í Suzuki-kennslu að loknu námi
auk þess sem Sinfóníuhljómsveit-
in heillar.“
Til þess að það geti orðið að
veruleika þarf Úlfhildur þó að
leggja mikið á sig og til marks um
það má nefna að hún stundar fullt
nám við bæði mennta- og háskóla.
„Ég klára MH um jólin en er auk
þess á diplómabraut í fiðluleik við
Listaháskóla Íslands. Skýringin á
því er sú að Suzuki-nemendur eru
yfirleitt komnir langt á undan
jafnöldrum sínum sem feta hefð-
bundna leið í tónlistinni.“
Úlfhildur mun verja sunnudeg-
inum í að kafa ofan í námsbæk-
urnar, sem hafa setið á hakanum
síðustu vikur. Tónlistin verður
þó ekki langt undan því henni er
ætlað að læra allt um þýska tón-
skáldið Johannes Brahms fyrir
próf í Listaháskólanum á mánu-
dag. vera@frettabladid.is
Flytur sinfóníu og fer á
tónleika með Gus Gus
Úlfhildur Þorsteinsdóttir á annasama helgi fyrir höndum. Hún hefst á sannkallaðri tónlistarveislu en
lýkur með lærdómi á morgun. Ekki er vanþörf á, því Úlfhildur stundar bæði nám við mennta- og háskóla.
Úlfhildur hefur leikið á fiðlu frá þriggja ára aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STIGAR
Allar mögulegar gerðir og stærðir
smíðað eftir óskum hvers og eins
Beygjanlegir Handlistar & Gólflistar
Loftastigar, Innihurðir, Gerefti
Gólflistar, Franskir gluggar í hurðir
Smíðum Harmonikkuhurðir eftir máli
Bílkerrur úr Áli frá Anssems í Hollandi
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
Skólavörðustíg 8, S: 5513130
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir