Fálkinn - 22.12.1944, Síða 40
36 JÓLABLAÐ FALKANS 1944
BYRON
ÆVISAGil HHNS
EFTIR
ANDRÉ MAUROIS
er jólabókin í ár
Þessi ágæta bók er komin í bókaverslanir. Þeir sem vilja tryggja sjer eintak, ættu að gera
aðvart í ísafoldarprentsmiðju eða Bókaverslun ísafoldar og útibuinu Laugavegi 12.
ANDRÉ MAUROIS er án ails vafa einhver víðlesnasti
og vinsælasti rithöfundur Frakklands, þeirra, er nú lifa.
Stílsnilli hans skarpleika, lærdóms og fyndni er við brugö-
ið. Skáldsögur hans hafa þótt frábærlega snjallar, en
mesta frægð hefir hann þó getið sjer fyrir æfisögur sínar,
ekki síst æfisögur enskra mikilmenna. Maurois hefir kann-
að til grunna enska menningu og lífsviðhorf og er viður-
kenndur snjallari túlkur þeiria og skýrandi, en jafnvel hin-
ir snjöllustu meðal Breta. Fara þar saman skáldlegt innsæi
hans og gleggni gestsaugans.
Maurois hefir skrifað æfisögur Chateaubriands, skálds-
ins, stjórnmálamannsins og ástamannsins Voltaires, hins
nafnfræga rithöfundar. Lyanteys, stofnanda Afríkulýð-
veldis Frakka. Disraelis, hins mikla breska stjórnmála-
manns, Shelleys, hins hugljúfa, enska skálds. En frægastur
hefir hann orðið fyrir æfisögu BAYRONS LÁVARÐAR,
höfuðskáldsins mikla, sem hann skilur og túlkar af undur-
samlegri nærfærni, ætt hans og erfðir, uppeldi hans og
menntun, ástir hans og skáldskap — í einu orði allt líf
hans, unz hann fellur í valinn í Missolaughi, glæsilegasta
hetjan í frelsisstríði Grikkands og sá, er barg málstað þess.
Eitt ágætasta bókmenntablað Bretlands, Times Litterary
Supplement, segir í ritdómi um þessa b,ók:
„Franskur snillingur hefir með þessu verki góldið minn-
ingu Byrcns lávarðar þá skuld, sem engum var skyldara
að greiða en oss sjálfum. En bók hans mun eigi að síður
skipa varanlsgt og virðulegt sæti í hópi þeirra rita, er ágæt-
ast hafa verið rituð um enska menn og enskar bókmenntir.
Hún er dásamlegur lykill að hinni dularfullu og fjöl-
þættu sái Byrone, smíðaður af skyggnum völundi, sem
hefir töfravald til þess að láta hlið Sesams opnast.“
Með snilldarlegum þýðingum hafa þeir Steingrímur og
Matthías gert Byron að einu ástsælasta skáldi íslendinga.
Með þessari bók gefst þeim kostur á að kynnast ævi hans
og samtíð, skapgerð hans og persónu, sem einu sinni var
frelsiskáld allrar Norðurálfunnar og glæsilegastur allra
sinna samtíðarmanna.