Fálkinn


Fálkinn - 22.12.1944, Qupperneq 40

Fálkinn - 22.12.1944, Qupperneq 40
36 JÓLABLAÐ FALKANS 1944 BYRON ÆVISAGil HHNS EFTIR ANDRÉ MAUROIS er jólabókin í ár Þessi ágæta bók er komin í bókaverslanir. Þeir sem vilja tryggja sjer eintak, ættu að gera aðvart í ísafoldarprentsmiðju eða Bókaverslun ísafoldar og útibuinu Laugavegi 12. ANDRÉ MAUROIS er án ails vafa einhver víðlesnasti og vinsælasti rithöfundur Frakklands, þeirra, er nú lifa. Stílsnilli hans skarpleika, lærdóms og fyndni er við brugö- ið. Skáldsögur hans hafa þótt frábærlega snjallar, en mesta frægð hefir hann þó getið sjer fyrir æfisögur sínar, ekki síst æfisögur enskra mikilmenna. Maurois hefir kann- að til grunna enska menningu og lífsviðhorf og er viður- kenndur snjallari túlkur þeiria og skýrandi, en jafnvel hin- ir snjöllustu meðal Breta. Fara þar saman skáldlegt innsæi hans og gleggni gestsaugans. Maurois hefir skrifað æfisögur Chateaubriands, skálds- ins, stjórnmálamannsins og ástamannsins Voltaires, hins nafnfræga rithöfundar. Lyanteys, stofnanda Afríkulýð- veldis Frakka. Disraelis, hins mikla breska stjórnmála- manns, Shelleys, hins hugljúfa, enska skálds. En frægastur hefir hann orðið fyrir æfisögu BAYRONS LÁVARÐAR, höfuðskáldsins mikla, sem hann skilur og túlkar af undur- samlegri nærfærni, ætt hans og erfðir, uppeldi hans og menntun, ástir hans og skáldskap — í einu orði allt líf hans, unz hann fellur í valinn í Missolaughi, glæsilegasta hetjan í frelsisstríði Grikkands og sá, er barg málstað þess. Eitt ágætasta bókmenntablað Bretlands, Times Litterary Supplement, segir í ritdómi um þessa b,ók: „Franskur snillingur hefir með þessu verki góldið minn- ingu Byrcns lávarðar þá skuld, sem engum var skyldara að greiða en oss sjálfum. En bók hans mun eigi að síður skipa varanlsgt og virðulegt sæti í hópi þeirra rita, er ágæt- ast hafa verið rituð um enska menn og enskar bókmenntir. Hún er dásamlegur lykill að hinni dularfullu og fjöl- þættu sái Byrone, smíðaður af skyggnum völundi, sem hefir töfravald til þess að láta hlið Sesams opnast.“ Með snilldarlegum þýðingum hafa þeir Steingrímur og Matthías gert Byron að einu ástsælasta skáldi íslendinga. Með þessari bók gefst þeim kostur á að kynnast ævi hans og samtíð, skapgerð hans og persónu, sem einu sinni var frelsiskáld allrar Norðurálfunnar og glæsilegastur allra sinna samtíðarmanna.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.