Fálkinn - 16.12.1949, Síða 30
/
Jólablað barnanna
4 4 4* 4* 4* 4» 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4» 4»4*4*4*4*4*4*4*4*4*4* *:4*44*4*4*4*4444444444444444444444
Falleg jólakarfa.
Þessi litla jólakarfa er úr gljápappír
með tveimur litum. Ef þið veljið t.
(1. rautt og hvítt eru stykkin I og III
úr rauðum, og IV og II úr hvítum
pappir. Hankann (III) og tvö fer-
liyrndu stykkin verðið þið að teikna
eftir málinu, sem við þau stendur
með reglustiku á ranghverfuna á
pappírnum., Botninn (IV) er sýndur
í réttri stœrð hérna á myndinni. —
Þegar þið límið hann á pappa og
klippið hann (pappann) út, getið þið
teiknað botninn eftir pappastykkinu
á gljápappirinn. Utan á botninn er
teiknaður limiugarkantur. sem er ská-
strikaður á myndinni.
Nú eru öll stykkin klippt nákvæm-
lega út. (I) er límt saman í hring.
Meðan límingin er að þorna beygið
þið allan limkantinn á botninum inn
að ranghverfunni á gljápappírnum.
Svo er rétthverfan á limkantinum lím-
borin og botninn límdur innan í
hringinn.
Næst tökum við hvita pappirsstykk-
ið (II). Það er brotið saman með rétt-
hverfuna út og brotið látið vera
hvasst. Takið blýant og reglustiku og
gerið strik með % cm. millibili, frá
brotinu og uppundir brúnina, en fyrir
alla muni ekki alla leið, svo að stykkið
fari ekki í tvennt. (sjá Ila).
Beygið % cm. af brúninni út móti
rétthverfunni (báðar brúnirnar). —
Þetta er límkanturinn. Gerið brotið
hvasst, svo að hægt verði að sjá það
eftir að límkanturinn hefir verið
brettur upp aftur. Klippið svo eftir
blýantsstrikunum, upp að límkant-
inum. Brjótið svo pappírsblaðið sund-
ur, límberið kantinn (á ranghverf-
unni) og festíð hvita pappírinn utan
á þann rauða (sjá efstu myndina).
Þegar hankinn er kominn á er karfan
tilbúinn.
Jólastjörnur.
Vitið þið að hægt er að búa til
allra fallegustu jólastjörnur úr punt-
stráum eða hálmi? í hverja stjörnu
á að nota 6 jafnlöng strá, og svo
þarf maður tvinnaspotta, ef maður
notar hálmstrá. Maður þræðir þau
nefnilega saman, 3 og 3, eins og sýnt
er á miðri myndinni og bindur end-
ana saman, svo að hver 3 strá myndi
þríhyrning. Svo bindur maður þrí-
hyrningana saman, eins og sýnt er á
efstu myndinni.
Úr punti má búa til stjörnukross,
eins og sýndur er á neðstu myndinni.
Til þess að stráin leggist ekki saman
verður að vefja festiþráðinn á milli
þeirra, þegar langstráin og þverstráin
eru bundin saman.
Skraut á jólaborðið.
Jólaskrautið er dýrt ef maður á að
kaupa það, en það er bæði auðvelt og
skemmtilegt að búa það til sjálfur.
Úr berjalyngi, mosa, reyniberja-
klösum og mörgu fleira, sem hægt er
að finna úti í náttúrunni, má gera
margskonar fallegt skraut. Auk þess
þarf dálítinn köggul af mótunarleir
(eða „plastilina), sem fæst í máln-
ingarvöruverslunum, og sterinkerti.
Leggið gamalt blað á borðið áður en
þið byrjið. Hnoðið leirinn í kúlu.
þangað til hann er orðinn mjúkur og
þrýstið svo kúlunni niður á blaðið,
svo- að hún verði flöt að neðan. —
I
Kertinu er stungið ofan í kúluna að
ofan, og gætið þess að það standi beint
því að annars getur það runnið niður
þegar kveikt verður á því. Stingið svo
lyng-öngum inn í kúluna allt i kring
og hyljið bilin með mosa, svo að
hvergi sjáist í leirinn. Og skreytið svo
með rauðum berjum hér og þar. Þeg-
ar þið setjið þennan fallega stjaka
á jólaborðið er vissast að hafa disk
eða pappaspjald undir honum, svo að
ekki komi blettur í dúkinn.
Leikföng úr valhnotum.
Ef svo ólíklega kynni að ske að
vallinotur verði til í búðunum í ár, og
nokkrar þeirra slæddust heim til ykk-
ar, þá skulið þið ekki brjóta þær til
að ná í kjarnann heldur opna þær
varlega um samskeytin, því að ýmis-
Iegt skrítið má gera úr skelinni.
Þið getið t. d. búið til seglbát eins
og þennan, sem sést á mynd a. Mastr-
Jólahafur úr basti.
Úr basti utan af blómvendi má búa
til ofurlítinn jóla-hafur til að prýða
jólatréð. — Við byrjum með hornun-
um, því að þau eru það mikilverðasta
við geithafurinn. Takið þrjá bast-
þræði, 12 cm. langa og gerið fléttu
úr þeim. Bindið rauðu bandi um báða
enda. í fæturna þarf 8 bastþræði, 8
cm. langa. Bindið 4 og 4 saman á
endunum með rauðum þræði. Kropp-
urinn og 'hálsinn eru úr 4 þráðum, 6
^cm. löngum. Og svo þarf einfaldan
"'ibastþráð til að festa stykkin saman.
— Þið takið fyrst fæturna og beygið
þá eins og sýnt er á 1. Leggið kropp-
inn ofan á (2) og beygið hálsinn upp.
Sívefjið svo þessu saman. Þegar kom-
ið er að framlöppunum er vafið áfram
utanum hálsinn og leggið svo horna-
fléttuna við og vefjið áfram. Síðan
er sívafið sömu leið til baka og endinn
festur vel.
ið er eldspýta, fest með gipsi eða
kannske bara með tuggugúmmii. —
Límið svo eldspýtubrot út á brúnina,
það verður bugspjót og bóma. Segl-
in eru úr hvítum pappír. *
Eða hvað segið þið um skjaldbök-
una á mynd b. á bls. 27 neðst til hægri.
Það er auðvelt að búa hana til. Klippa
út pappa eftir sniðinu á myndinni,
líma skelina á það og beygja lappirn-
ar niður og hausinn upp.