Fálkinn


Fálkinn - 17.12.1953, Side 9

Fálkinn - 17.12.1953, Side 9
Og í sömu svipan var meö englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði i upphæðum, og friður á jörðu meðal velþóknanlegra manna. Lúk. 2, 13—lý. {VAÐ er það, sem mann- kynið allt þráir nú heitar en frið á jörðu? 1 skelfingu styrjaldar- ógna hefir það verið statt um áratugi, ýmist undir fargi heims- styrjalda eða í ótta við nýja og enn geigvænlegri heimsstyrjöld, meðan ófriður hefir logað í ýms- um hlutum heims, og enginn hefir vitað, livenær það bál legð- ist yfir gjörvalla heimskringluna. Mannkynið er nú komið svo langt á veg i eyðingartœkni, að full- beiting hennar getur orðið því sjálfu að fjörtjóni, að talið er, eða a. m. k. tortimt megni þeirt'a menningarverðmæta, sem áldir og árþúsundir hefir tékið að skapa. Nýr álheimsófriður getur þannig orðið jarðarbúum sú vá, er alla hryllir til að hugsa, og hver hugsandi maður hlýtur að biðja þess af hjarta, að henni megi verða bægt frá dyrum vor- um að fullu og öllu. Inn í þennan heim óttans og friðleysisins koma jólin ár hvert með boðskap sinn — boðskapinn um frið meðál velþóknanlegra manna. Vér furðum oss á, að sá boðskapur skuli eklci enn vera orðinn að veruleika, boðskapur, sem nú hefir verið fluttur i hálfa tuttugustu öld, og mannkynið þráir raunverulega að rætist. Og vér slcellum skuldinni á boðskap- inn, og sumum hættir við að telja kristindóminn fánýtan, fyrst hann hefir enn ekki komið til leiðar allsherjarfriði. En þá gœt- um vér þess ekki, að sjónarsvið vort er mjög takmarkað og mœli- kvarðinn, sem vér leggjum á rás sögunnar, er miðaður við vora stuttu ævi. Þær rúmar nítján aldir, sem liðnar eru síðan Krist- ur lauk starfi sínu hér á jörð, eru eins og örlítill dropi i hafi þeirra áldaraða, sem mannkynið hefir lifað. Og vér gætum þess ekki, að skilyrðin fyrir hinum varan- lega friði verða að koma að inn- an, frá hverjum einstökum manni. Mennirnir verða sjálfir, hver og einn, að verða Guði vélþóknan- legir — þá skapast friðurinn liið ytra, friður á jörðu. Þetta er hinn einfáldi boðskapur fyrsta jóla- sálmsins, sem hersveitir himn- anna, hersveitir friðarins eilífa, sungu fyrstu jólanóttina á Betle- hemsvöllum. Jesús kom til að um- skapa hjörtun, endurnýja manns- hugina, stefna þeim á rétta braut — í áttina til samúðar, fórnfýsi og þjónustusemi, brott frá sér- hyggju, eigingirni og metorða- girnd. I sama mæli sem einstákl- ingunum tekst að láta heilagan kærleiksanda hans endurnýja hugarfar sitt, eflist friðurinn á jörðu, styrkist sveit þeirra, sem heldur vilja þola nauð, en gera náunganum mein, heldur vilja fórna þægindum og efnálegum ávinningi, en bregðast því besta í sjálfum sér, guðseðlinu, og beita yfirgangi. Friðurinn verður að búa hið innra í mönnum, sem eru Guði vélþóknanlegir, til þess að hann geti orðið staðfestur hið ytra. Þess vegna félur jólasálmur englanna í sér bæn um það, að mennirnir megi verða vélþóknan- legir, að hugarfar þeirra megi umskapast, svo að þeir viti sig i sátt við sjálfan Guð, og eignist þannig hinn innri frið, er leiðir af samfélagi við hann, sem er uppspretta kærleikans, og þar með uppspretta alls lifs. Megi þessi jól, sem enn renna upp yfir þjakað mannkyn, verða til að efla hinn sanna guðsfrið hið innra í hverri mannssál, svo að hann breiðist út, til heimil- anna, til vinnustöðva vorra og menntasetra, til stjórnenda vorra og löggjafa, til þeirra manna, er afskipti hafa af rás hinna álþjóð- legu lieimsmála, og geta liaft áhrif á það, hvort friður verður eða ófriður þjóða á milli. Ef vér eignumst þennan innri frið, eign- umst vér í sannleika Qleðileg fÖl!

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.